Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tillögur um kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, starfshópur um endurmat á kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar og starfsmenn ráðuneytisins.  - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur fengið afhenta skýrslu starfshóps um endurmat á kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar hér á landi. Ráðherra skipaði starfshópinn í ágúst sl.

Eins og nafnið gefur til kynna felur framlengd framleiðendaábyrgð í sér framlengingu á hefðbundinni ábyrgð framleiðenda og innflytjenda á vörum sínum þegar notkunartíma þeirra er lokið. Úrvinnslusjóður fer að stærstum hluta með framkvæmd þessarar ábyrgðar hér á landi en hann hefur frá árinu 2002 séð um umsýslu og ráðstöfun úrvinnslugjalds.

Í starfshópnum áttu sæti Halldór Árnason, formaður, Bryndís Skúladóttir, Brynhildur Pétursdóttir, Jón Viggó Gunnarsson og Sveinn Margeirsson.

Fram kemur í skýrslu starfshópsins að Úrvinnslusjóður hafi náð ágætum árangri við umsýslu úrvinnslugjalds og komið upp skilvirku fyrirkomulagi á úrvinnslu úrgangs sem leiðir almennt til endurvinnslu úrgangs og fullnægjandi meðhöndlunar spilliefna. Kerfið sé fremur einfalt og undanskot frá greiðslu úrvinnslugjald mun fátíðari en í nágrannaríkjum. Hins vegar bendi fátt til þess að sjóðnum hafi tekist að stuðla nægilega að árangri framar í virðiskeðju hringrásarhagkerfisins, s.s. í átt að visthönnun og því að draga úr úrgangi. Aukinheldur skorti nokkuð á gegnsæi í starfsemi Úrvinnslusjóðs og kerfið hvetji ekki nægjanlega til nýsköpunar. Þá sé mikilvægt að huga að stöðu Úrvinnslusjóðs sem opinberrar stofnunar og trausti innan stjórnar sjóðsins, auk þess sem sífellt flóknari álagning úrvinnslugjalds hafi í för með sér áskoranir fyrir sjóðinn.  

Starfshópurinn leggur til að gegnsæi verði aukið í starfsemi Úrvinnslusjóðs, t.a.m. með birtingu gagna í stafrænni upplýsingagátt, þá verði þátttaka sjóðsins í uppbyggingu hringrásarhagkerfis aukin með skilvirkari beitingu hagrænna hvata, auknum úrgangsforvörnum og fræðslu og aukinni þátttöku í nýsköpun. Jafnframt leggur hópurinn til að athugaðar verði mögulegar nýjar leiðir við innheimtu úrvinnslugjalds í ljósi sífellt flóknari álagningar og að skoðaðar verði hugmyndir að kerfislegum breytingum á framkvæmd framlengdrar framleiðendaábyrgðar, sem hugsanlega gætu auðveldað kerfinu að mæta áskorunum framtíðar. Starfshópurinn leggur áherslu á að samráð verði haft um tillögurnar við hagsmunaaðila og hyggst því standa fyrir vinnustofu um skýrsluna, sem eru nú í undirbúningi.

„Innleiðing á hringrásarhagkerfi er loftslagsmál. Mikilvægt er að innleiðing á hringrásarhagkerfinu hér á landi gangi sem hraðast fyrir sig og til að svo megi verða er mikilvægt að úrvinnslukerfið sé sem einfaldast, styðji við nýsköpun og bjóði upp á heildstæðar lausnir. Ég tek úrbótatillögum starfshópsins fagnandi og legg áherslu á að tillögur sem snúa að innra starfi og gegnsæi Úrvinnslusjóðs verði teknar til athugunar strax. Tillögur sem fela í sér breytingar á eðli og virkni kerfisins þurfum við að skoða vandlega og vera í góðu samtali við atvinnulíf og sveitarfélög um,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Hlutverk framleiðenda í hringrásarhagkerfi

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 12 Ábyrg neysla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum