Hoppa yfir valmynd
8. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

Nánast óbreytt atvinnuþátttaka kvenna og karla síðustu þrjá áratugi

Saumakonur í Úganda. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Síðustu þrjá áratugina hefur hlutfall atvinnuþátttöku karla og kvenna í heiminum nánast staðið í stað. Á síðasta ári voru 45% kvenna eldri en fimmtán ára í launuðu starfi samanborið við 71% karla. Á 27 árum hefur munurinn aðeins minnkað um tvö prósent, segir í nýrri skýrslu Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO), einni af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan kemur út í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag, 8. mars.

Kynjamunurinn er ekki tilkominn vegna þess að konur vilji ekki vinna utan heimilis. ILO kannaði sérstaklega þennan þátt og 70% kvenna meðal þjóða sem könnunin náði til kváðust helst kjósa að vera í launuðu starfi. Meirihluti karla lýsti einnig yfir stuðningi við atvinnuþátttöku kvenna.

Ein skýringin á ójafnvægi milli kynjanna í atvinnulífinu tengist ólaunuðum heimilisstörfum og umönnun barna og annarra fjölskyldumeðlima. Konur vinna slík ólaunuð umönnunar- og heimilisstörf að jafnaði í fjórar klukkustundir og 25 mínútur en karlar í eina klukkustund og 23 mínútur. „Síðustu tuttugu árin hefur tíminn sem konur verja til ólaunaðra umönnunar- og heimilisstarfa varla breyst, og þáttur karla hefur aukist um aðeins átta mínútur á hverjum degi. Með þessum hraða tekur það 200 ár að jafna þann tíma sem karlar og konur verja til umönnunar- og heimilisstarfa,“ segir Manuela Tomei hjá ILO í fréttatilkynningu.

Þegar litið er yfir heiminn sést að atvinnuþátttaka kvenna hefur aukist hlutfallslega mest í Afríku en minnst í Asíu. Konur fá enn umtalsvert lægi laun en karlar fyrir sambærileg störf og samkvæmt skýrslu ILO er launamunur kynjanna á heimsvísu um 20%. Þá kemur fram í skýrslunni að konum í stjórnunarstöðum fjölgar hægt. Árið 2018 voru 27,1% kvenna í stjórnunarstöðum og hlutfallið hefur aðeins hækkað um tvö prósentustig frá árinu 1991.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna hefur verið haldinn hátíðlegur af hálfu Sameinuðu þjóðanna í rúma fjóra áratugi eða frá árinu 1977. Að þessu sinni er dagurinn helgaður nýsköpun kvenna og stúlkna í þágu þeirra sjálfra og baráttunnar fyrir því að fjarlægja hindranir á leiðinni til jafnréttis kynjanna.

 

Myndband frá UN Women í tilefni dagsins.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum