Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Drög að viðauka við „Saman gegn sóun“ til umsagnar

    - myndJohannes Jansson/norden.org

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna Saman gegn sóun.

Umhverfis- og auðlindaráðherra gaf út stefnu Íslands um úrgangsforvarnir á árinu 2016 sem ber heitið Saman gegn sóun. Stefnan gildir árin 2016-2027 og er megináhersla þar lögð á níu flokka; matvæli, plast, textíl, raftæki, grænar byggingar og pappír. Þá verður unnið til lengri tíma með aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og að draga úr myndun úrgangs frá stóriðju.

Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemdir við stefnu Íslands um úrgangsforvarnir vegna skorts á mælanlegum mælikvörðum og setningu markmiða til að meta þróun ráðstafana stefnunnar og er þar vísað sérstaklega til 3. mgr. 29. gr. rammatilskipunar 2008/98/EB um úrgang. Umhverfisstofnun hefur að beiðni ráðuneytisins útbúið tillögu að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna er lýtur að setningu mælikvarða og markmiða fyrir plast, textíl, aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og ál- og kísilmálmframleiðslu.

Umsögnum um viðaukann skal skilað í samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 17. ágúst næstkomandi.

Drög að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna Saman gegn sóun á Samráðsgátt Stjórnarráðsins.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum