Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 18/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 3. júní 2020
í máli nr. 18/2020:
D.Ing-Verk ehf.
gegn
Landsneti hf.

Lykilorð
Hæfiskröfur. Tæknilegt hæfi. Stöðvunarkröfu hafnað.

Útdráttur
Kröfu kæranda um stöðvun útboðs um lagningu jarðstrengja var hafnað, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. maí 2020 kærir D. Ing-Verk ehf. útboð Landsnets hf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. KO1-01 auðkennt „Korpulína 1 og Rauðavatnslína 1, 132kV jarðstrengir, Jarðvinna og lagning“. Kærandi krefst þess að „stöðvuð verði samningsgerð“ varnaraðila á grundvelli hins kærða útboðs og að ógilt verði ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í útboðinu. Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til kröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

Í mars 2020 óskaði varnaraðili eftir tilboðum í lagningu jarðstrengja og fjarskiptaröra og tengda verkþætti. Í útboðsgögnum kom fram að um almennt útboð væri að ræða sem félli undir reglugerð nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Í grein I.2.3 í útboðsgögnum var sú krafa gerð að bjóðendur skyldu á síðastliðnum fimm árum hafa lokið við a.m.k. eitt sambærilegt verk. Með sambærilegu verki væri átt við verkefni svipaðs eðlis og að upphæð þess verksamnings hefði að lágmarki verið 30% af tilboði bjóðenda í verkið. Þá kom fram að verkkaupi myndi hafna tilboði ef bjóðendur hefðu á síðastliðnum 5 árum ekki lokið við a.m.k. eitt sambærilegt verk með fullnægjandi hætti. Í greinum I.4.4 – I.4.6 voru tilgreindar ýmsar upplýsingar sem bjóðendur skyldu skila inn með tilboðum sínum og í grein I.2.1(4) kom fram að verkkaupi gæti krafist frekari upplýsinga ef hann teldi það nauðsynlegt til þess að meta hæfi bjóðenda. Í grein I.6 kom fram að verkkaupi myndi taka lægsta gilda tilboði eða hafna þeim öllum.

Tilboð voru opnuð 8. apríl 2020 og reyndist kærandi eiga lægsta tilboðið að fjárhæð 336.395.880 krónur. Með bréfi 22. apríl 2020 óskaði varnaraðili nánari upplýsinga frá kæranda um reynslu hans af framkvæmd sambærilegra verka. Kærandi skilaði nánari upplýsingum um reynslu sína 24. sama mánaðar og tilgreindi meðal annars verkið „Norðurtún og Túngata Álftanesi“ sem sambærilegt verk. Í kjölfarið óskaði varnaraðili eftir því að kærandi legði fram „endavottorð“ frá verkkaupum í því verki til staðfestu því að verkinu væri lokið. Kærandi lagði fram vottorð HS Veitna hf. og Veitna ohf. sem dagsett eru 27. apríl 2020. Í vottorði Veitna ohf. kom fram að kærandi hefði verið lægstbjóðandi í verkið „Norðurtún og Túngata Álftanesi – endurnýjun lagna“, sem boðið hefði verið út af Veitum ohf., HS Veitum hf. og Garðabæ. Tilboðsfjárhæðin hefði verið 175.176.000 krónur. Verkið hefði hafist 23. apríl 2019 og sé um 80% af verkinu lokið en heildarframvinda í verkinu nemi ríflega 215 milljónum króna. Í yfirlýsingu HS Veitna hf. kom meðal annars fram að framangreindu verkið væri „lokið fyrir 227.027.100 kr.“. Í bréfum kæranda 27. og 29. apríl 2020 kom fram að hann teldi þau gögn sem hefði verið skilað staðfesta að hann fullnægði kröfum útboðsgagna um hæfi. Með bréfi 30. apríl 2020 lýsti varnaraðili því yfir að þar sem kærandi fullnægði ekki því skilyrði að hafa lokið við a.m.k. eitt sambærilegt verk væri tilboði hans í verkið hafnað.

Kærandi byggir málatilbúnað sinn að meginstefnu til á því að við mat á því hvort bjóðandi fullnægi kröfum um tæknilega getu sé ekki heimilt að krefjast þess að hann leggi fram verklokaúttekt eða endavottorð fyrir fyrri verkefni, enda hafi ekki verið gerð krafa um það í útboðsgögnum. Kærandi hafi unnið verkið „Norðurtún og Túngata Álftanesi“ og hafi tilboðsfjárhæð í það verk numið 175.176.000 krónum. Verkið hafi hins vegar reynst umfangsmeira en upphaflega var áætlað og því liggi ekki fyrir vottorð um lok þess. Kærandi hafi hins vegar lokið verki fyrir ríflega 227 milljónir króna og fengið greiddar ríflega 215 milljónir króna vegna verksins. Þetta verk uppfylli því kröfur útboðsgagna um reynslu af sambærilegu verki og sé ljóst að kærandi uppfylli kröfur um tæknilegt hæfi.

Varnaraðili byggir að meginstefnu á því að kærandi hafi ekki fullnægt kröfum útboðsgagna um reynslu af sambærilegu verki. Kærandi hafi ekki enn lokið við verkið „Norðurtún og Túngata Álftanesi“ eins og gerð hafi verið krafa um í útboðsgögnum, en vottorð þau sem kærandi hafi lagt fram frá verkkaupum staðfesti ekki að verkinu sé lokið. Þá hafi önnur tilgreind verk ekki náð fjárhæðarmörkum útboðsgagna og því ekki getað talist sambærileg verk.

Niðurstaða

Eins og áður greinir var í grein 1.2.3 í útboðsgögnum sett fram krafa um að bjóðendur skyldu hafa lokið a.m.k. einu sambærilegu verki á síðastliðnum fimm árum, en með sambærilegu verki er átt við verkefni svipaðs eðlis og hið útboðna verk og að upphæð þess verksamnings hefði að lágmarki verið 30% af tilboði bjóðenda í hinu kærða útboði. Af gögnum málsins verður ráðið að verkinu „Norðurtún og Túngata Álftanesi“, sem kærandi tilgreindi til stuðnings því að krafan væri uppfyllt, sé ekki lokið. Verður því að miða við, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að kærandi hafi ekki fullnægt umræddri kröfu eins og hún var sett fram í útboðsgögnum. Þá var varnaraðila heimilt að kalla eftir frekari gögnum í því skyni að meta hvort kærandi fullnægði hæfiskröfum útboðsins, sbr. grein I.2.1(4) í útboðsgögnum, þar með talið vottorða um efndir framangreinds verksamnings, sbr. til hliðsjónar a. lið 2. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 955/2016 um kröfur á sviði opinberra innkaupa um upplýsingar sem koma eiga fram í auglýsingum og öðrum tilkynningum, gögn til að sannreyna efnahagslega og fjárhagslega stöðu og tæknilega getu og kröfur um tæki og búnað fyrir rafræna móttöku grein, sbr. 5. mgr. 88. gr. reglugerðar nr. 340/2017.

Samkvæmt framangreindu hefur kærandi ekki leitt verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup við framkvæmd útboðsins sem geti leitt til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup. Verður því að hafna kröfu hans um að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, D.Ing – Verk ehf., um að útboð varnaraðila, Landsnets hf., nr. nr. KO1-01 auðkennt „Korpulína 1 og Rauðavatnslína 1, 132kV jarðstrengir, Jarðvinna og lagning“, verði stöðvað um stundarsakir, er hafnað.

Reykjavík, 3. júní 2020

Ásgerður Ragnarsdóttir

Sandra Baldvinsdóttir

Auður Finnbogadóttir








Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum