Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2017 Forsætisráðuneytið

Styrkir til atvinnumála kvenna fyrir frumkvöðlakonur

Auglýst er eftir styrkjum til atvinnumála kvenna árið 2017 sem félags- og jafnréttismálaráðherra veitir. Til úthlutunar eru 35 milljónir króna og er hámarksstyrkur fjórar milljónir. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar.

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað allt frá árinu 1991. Þeir eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun.

Til að verkefni sé styrkhæfr þarf það að falla að eftirfarandi skilyrðum sem eru að:

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.

  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.

  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.

  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.

  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000 kr.), til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, vöruþróunar, hönnunar og efniskostnaðar.

  • Enn fremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru 35.000.000 kr. og er hámarksstyrkur 4.000.000 kr. Ekki eru veittir lægri styrkir en 600.000 kr.

Umsóknarfrestur er frá 20. janúar til og með 20. febrúar og skal sækja um rafrænt á vefsvæðinu www.atvinnumalkvenna.is

Athugið að búið er að taka í notkun nýtt umsóknarkerfi og búa þarf til aðgang að síðunni til að geta hafið umsóknarvinnuna.

Á vefsvæði verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum