Hoppa yfir valmynd
22. júní 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Þingvellir viðurkenndir sem fyrsta Varðan á Íslandi

Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra og Einar Á. E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum afhjúpa fyrstu vörðuna. - myndGolli

„Þingvallaþjóðgarður er afskaplega vel að þessari viðurkenningu kominn,“ segja þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra sem í dag veittu þjóðgarðinum á Þingvöllum viðurkenningu sem fyrstu Vörðuna á Íslandi. 

Ráðherrarnir afhjúpuðu heiðursmerki Vörðu og fengu kynningu á Búðarslóð, nýrri afþreyingar- og fræðsluleið á Þingvöllum. 

Fyrsta Varðan

Með Vörðu skuldbindur umsjónaraðili áfangastaðar ferðamanna sig til að vera til fyrirmyndar við stjórnun og umsjón hans og að við áframhaldandi þróun sé sífellt unnið að sjálfbærni á öllum sviðum. Ráðherrarnir kynntu einnig að um næstu áramót geti staðir óháð eignarhaldi eða umsjón sótt um að fara í ferli til þess að verða Vörður og hljóta slíka viðurkenningu. 

„Það er ánægjulegt að fá að verðlauna fyrstu Vörðuna einmitt á þessum tíma, nú þegar sólin stendur sem hæst og faðmur landsins stendur opinn sem aldrei fyrr fyrir áhugasömum gestum. Ég hef þá framtíðarsýn að Vörður verði að finna í öllum landshlutum,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

„Það er mikilvægt að framsýni ráði för þegar ákveðið er hvernig við viljum haga málum við fjölsótta ferðamannastaði í náttúru Íslands og með samstarfsverkefninu Vörðu er  lögð er áhersla á heildstæða áfangastaðastjórnun. Meðal framtíðarmarkmiða sem ég horfi til er að ferðamenn komist um landið okkar á sem vistvænastan hátt og, þess vegna er ánægjulegt að í viðmiðum Vörðu er einmitt kveðið á um hraðhleðslustöðvar þar sem hægt er að koma því við,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. 

Hvað er Varða?

  • Vörður eru merkisstaðir á Íslandi sem teljast einstakir á lands- og/eða heimsvísu. Meginaðdráttarafl þeirra eru náttúrufyrirbæri og/eða menningarsögulegar minjar sem mynda sérstætt landslag eða landslagsheildir. www.varda.is
  • Áfangastaðirnir eru vel þekktir, hluti af ímynd landsins, fjölsóttir og hægt að heimsækja þá allt árið um kring.
  • Heitið byggir á þeim fjölmörgu vörðum sem finnast í íslenskri náttúru. Vörður geyma sögu og arfleifð. Þær eru hlaðnar úr staðarefni, tengjast umhverfinu, vísa veginn í átt að áfangastað og mynda leiðakerfi.
  • Til að fá afnot af vörumerkinu Vörðu þurfa umsjónaraðilar staðar að sýna fram á langtímaskuldbindingu til þess að framfylgja skilgreindum viðmiðum við stjórnun og skipulagningu hvað varðar m.a. aðgengi, gagnasöfnun, fræðslu, umhverfisvernd,sjálfbærni, yfirbragð og öryggi.
  • Sem stendur eru þrír afar fjölsóttir en ólíkir staðir í svokölluðu prufuferli Vörðu auk Þingvalla sem hefur nú lokið því ferli. Það eru Gullfoss, Geysir og Jökulsárlón, sem eru einnig staðir í umsjón ríkisaðila. Þetta eru einna fjölsóttustu ferðamannastaðir landsins, en þeir eru misjafnlega staddir hvað þróun varðar en eiga það sameiginlegt að vera áfangastaðir í eigu ríkisins.
  • Stefnt er að því að opna á að fleiri staðir, óháð eignarhaldi eða umsjón, geti komið í ferli frá næstu áramótum.

Þingvellir 

Þingvallaþjóðgarður er vel að þessari viðurkenningu kominn. Auk þess að vera einn elsti og fjölsóttasti ferðamannastaður landsins er þjóðgarðurinn á heimsminjaskrá Menningar-málastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.  Í slíkri skráningu felst mikil ábyrgð gagnvart því að viðhalda einstöku gildi staðarins til framtíðar fyrir alla heimsbyggðina. Það hefur sannarlega tekist vel á Þingvöllum, svo vel að það er ærin ástæða fyrir nýrri rós í hnappagatið með viðurkenningu Vörðu.

  • Skoða má gagnvirkan fróðleik á Búðarstíg. - mynd
  • Þjóðgarðsvörður og ráðherrar á Búðarstíg sem opnaði nýlega. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum