Hoppa yfir valmynd
3. maí 2021 Utanríkisráðuneytið

Fjölmiðlafrelsi er grundvöllur heilbrigðs lýðræðis

Ljósmynd: Matt Chesin/ UNSplash - mynd

Í dag, 3. maí, halda Sameinuðu þjóðirnar og UNESCO, mennta-, vísinda og menningarstofnun samtakanna alþjóðlegan dag fjölmiðlafrelsis (World Press Freedom Day). Að þessu sinni er þema dagsins ”Upplýsingar sem almannagæði.”

„Þetta er brýnt málefni fyrir öll ríki hvar sem þau eru í heiminum. Þetta þema er viðurkenning á samskiptakerfi sem er sífelldum breytingum undirorpið. Það hefur áhrif á heilsu okkar, mannréttindi, lýðræði og sjálfbæra þróun,“ segir í frétt á Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC). Þar segir enn fremur að frelsi fjölmiðla fari þverrandi um heim allan. Á sama tíma hafi þörfin fyrir óháða, kjarkmikla og djarfa fjölmiðla sjaldan verið meiri.

„ Á alþjóðlegum degi fjölmiðlafrelsis, 3. maí, fögnum við hugrökkum blaðamönnum sem vinna í þágu almannahagsmuna,“ segir í fréttinni. „Þegar Blaðamenn án landamæra gáfu út síðasta lista sinn yfir fjölmiðlafrelsi kom á daginn að fjölmiðlafrelsi er skert í 73% þeirra 180 ríkja og landsvæða sem úttektin náði til. Þar sem frelsi hefur verið skert hefur aðgangur almennings og blaðamanna að upplýsingum minnkað. Rannsóknarblaðamennsku kunna að vera mikil takmörk sett.“

Minnt er á að blaðamenn hafi týnt lífi sínu vegna starfa sinna. „Þetta er alvarleg ógnun við frelsi fjölmiðla í heiminum. Frá 1993 hafa 1450 blaðamenn verið drepnir að sögn UNESCO. Alþjóðlegur dagur fjölmiðlafrelsis er áminning til ríkisstjórna um að virða skuldbindingar sínar um frelsi fjölmiðla,“ segir í fréttinni.

Þema alþjóðlega dagsins að þessu sinni snýst um almannagæði. Með því er minnt á að standa þurfi vörð um mikilvægi þess að litið sé á upplýsingar sem almannagæði. Kanna beri með hvaða hætti er hægt að greiða fyrir framleiðslu, dreifingu og móttöku efnis til þess að efla blaðamennsku.  

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum