Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2021 Utanríkisráðuneytið

Bindandi alþjóðsamningur nauðsynlegur gegn rusli og plastmengun í höfunum

Í gær var hleypt af stokkunum hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) svonefndum Næróbí vinahópi gegn rusli og plastmengun í höfunum. Ísland er eitt 27 ríkja sem standa að stofnun vinahópsins en framtakið er leitt af Chile og Portúgal. Öll Norðurlöndin eru meðal stofnríkja.

Á stofnfundinum í gær, fjarfundi með ríflega 200 þátttakendum, voru að sögn Vilhjálms Wiium fastafulltrúa Íslands hjá UNEP flutt ýmis fróðleg erindi, bæði af háttsettum embættismönnum og sérfræðingum, þar sem var farið yfir ýmsar staðreyndir um plastmengun í höfunum og ræddar leiðir fram á við.

„Það ríkti samhljómur um að bindandi alþjóðasamningur gegn rusli og plastmengun í höfunum væri nauðsynlegur, því gildandi alþjóðasamningar nái ekki utan um vandamálið,“ segir Vilhjálmur. „Væntingar eru um að á seinni hluta fimmta umhverfisþings Sameinuðu þjóðanna í byrjun 2022 verði samþykkt ályktun um að hefja formlegar umræður um samning af þessu tagi. Hópur ríkja með Rúanda og Perú í broddi fylkingar hafa þegar hafist handa um að semja drög að ályktuninni og samningi og  þeim verður dreift meðal fastanefnda UNEP í september næstkomandi.“

Vilhjálmur segir að einnig verði í september haldinn ráðherrafundur um plastmengun í höfunum. Að undirbúningi þess fundar standa Þýskaland, Ekvador, Gana og Víetnam.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
12. Ábyrð neysla og framleiðsla

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum