Hoppa yfir valmynd
26. október 2023 Innviðaráðuneytið

Framlög vegna þjónustu við fatlað fólk áætluð tæplega 31 milljarður árið 2024

Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2024 nema tæplega 31 milljarði kr. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, samþykkti nýlega tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á næsta ári.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2022 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2022 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2024. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 31.070 m.kr.

Framlögin eru greidd mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 1,21% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í nóvember 2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum