Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 36/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 36/2021

Föstudaginn 30. apríl 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. janúar 2021, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2020, um að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 5. október 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 21. október 2020. Með ákvörðun, dags. 4. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 86%. Þann 10. nóvember 2020 hafði kærandi samband við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og óskaði eftir afturvirkum greiðslum atvinnuleysistrygginga frá og með 5. október 2020. Þá sendi umboðsmaður kæranda tölvupóst til Vinnumálastofnunar þann 11. nóvember 2020 þar sem hann óskaði eftir því að greiðslur til kæranda yrðu leiðréttar í samræmi við beiðni hennar. Þann 17. nóvember 2020 sendi kærandi erindi til Vinnumálastofnunar þar sem hún kveðst að sér hafi verið gert að loka vegna opinberra sóttvarnarráðstafana. Hún hafi hins vegar gert mistök í skráningu og skráð sig atvinnulausa frá og með 25. október 2020 í stað 5. október 2020 og óskaði því eftir að greiðslur til hennar yrðu leiðréttar í samræmi við það. Umsókn kæranda var tekin til umfjöllunar að nýju. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að beiðni hennar um afturvirkar greiðslur atvinnuleysisbóta fyrir tímabil sem hún staðfesti ekki atvinnuleit sína hefði verið hafnað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. janúar 2021. Með bréfi, dags. 26. janúar 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 4. mars 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. mars 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún reki nuddstofu og henni hafi borið að loka starfsemi sinni þann 8. október 2020 en hún hafi aðeins fengið atvinnuleysisbætur frá 8. október 2020. Vinnumálastofnun hafni bótarétti kæranda því að hún hafi gleymt að stimpla sig á réttum tíma, eða 8. október. Samkvæmt úrskurði heilbrigðisráðuneytisins fari ekki á milli mála að öllum nuddstofum hafi verið lokað þann 8. október 2020 og hafi kærandi því verið án vinnu á þeim tíma. Kærandi fer fram á að fá greiddar atvinnuleysisbætur allan þann tíma sem hafi verið lokað, eða frá 8. október 2020, en ekki 20. október þegar kærandi hafi skráð sig inn hjá Vinnumálastofnun.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 21. október 2020 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi fyrst rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 21. október 2020 og að hafna beri beiðni kæranda um afturvirkar greiðslur atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 5. október 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 21. október 2020 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 5. október 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum