Hoppa yfir valmynd
12. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 556/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 12. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 556/2021

í stjórnsýslumálum nr. KNU21090032 og KNU21090031

 

Kæra […]

og […]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. september 2021 kærðu […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir K) og […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 12. ágúst 2021, um að synja kærendum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að málinu verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnunar vegna brots á rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Til vara er þess krafist að kærendum verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 7. júní 2021. Kærendur komu í viðtöl hjá Útlendingastofnun m.a. þann 16. júní 2021 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 12. ágúst 2021, synjaði Útlendingastofnun kærendum um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 7. september 2021. Kærunefnd barst greinargerð kærenda þann 21. september 2021. Í greinargerð óskuðu kærendur eftir því að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni mála sinna. Í ljósi frásagnar kærenda og skýrslna um heimaríki þeirra taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa þeim kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Þá var kærendum leiðbeint með tölvubréfi, dags. 14. október 2021, um framlagningu frekari gagna og spurningum beint að kærendum og barst svar samdægurs. Kærendur lögðu fram frekari gögn þann 11. nóvember 2021.

III.    Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar þeirra að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna stjórnmálaskoðana sinna.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kærenda

Í sameiginlegri greinargerð kærenda til kærunefndar er ekki fjallað um málavexti heldur er vísað til greinargerðar þeirra til Útlendingastofnunar. Þar kemur fram að kærendur hafi greint frá ástæðum þess að þau hafi flúið heimaríki sitt í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Kærendur hafi m.a. greint frá því að vera fædd og uppalin í Cali í Kólumbíu. Þau væru ekki meðlimir í tilteknum stjórnmálaflokki í heimaríki en að þau styddu vinstri stjórn og væru á móti stefnu yfirvalda í landinu. Þau hafi mætt á mótmæli í heimaríki sínu og stutt mótmælendur. K hafi greint frá því hún hafi starfað sem blaðakona, samfélagsmiðla- og samskiptakona og hafi starfað fyrir stofnunina USAID. M hafi hafi starfað sem læknir í heimaríki. Kærendur hafi greint frá því að mótmæli gegn yfirvöldum hafi hafist aftur þann 28. apríl 2021. Mótmælin hafi hafist vegna spillingar og fyrirhugaðrar lagasetningar er myndi auka misrétti í landinu. Lögreglan hafi verið árásargjörn í garð mótmælenda og fólk hafi slasast í átökunum. M hafi greint frá því að hann hafi frá 30. apríl 2021 sinnt í sjálfsboðastarfi aðstoð og aðhlynningu við fólk sem hafi sætt ofbeldi eða slasast í mótmælunum. Þann 7. maí 2021 hafi verið skotið á kæranda og samstarfsmenn hans við störf sín. M hafi tekist að komast heim um síðir. K hafi á þessum tíma unnið heima og tekið eftir mótorhjóli sem hafi keyrt nálægt húsinu þeirra og flautað. Þá hafi aðilinn mundað höndina eins og hún væri byssa og hermt eftir að hann skyti af henni með hendinni. Kærendur hafi haldið áfram að vinna og hjálpa fólki á sama stað. Einn daginn hafi M verið að ljúka vakt á heilsugæslunni og verið á heimleið þegar lögreglumaður á mótorhjóli hafi beðið hann að stoppa en hann hafi ekki sagt neitt og farið svo í burtu. Í kjölfarið hafi tveir vopnaðir aðilar á mótorhjóli komið og beint vopnum að kæranda, ásamt því að kalla ljót orð að honum. Annar aðilinn hafi verið mjög æstur og sagt við M að hann ætti að hætta að hjálpa fólki annars myndu þeir fara með hann í ána. Kærendur hafi verið óttaslegin í kjölfarið og verið hjá systur M yfir helgina. Þegar þau hafi heyrt í mótorhjólum í kringum húsið hafi þau áttað sig á því að þau væru ekki örugg og ákveðið að fara úr landi. M telji aðilana sem hafi hótað að henda honum í ánna hafa verið óeinkennisklædda lögreglumenn eða herinn. Kærendur kveðast óttast kerfið, ríkið og herinn. M óttist um líf sitt og að vera beittur ofbeldi. Þá kvað M að staða þeirra yrði viðkvæmari ef þau leituðu aðstoðar yfirvalda eða lögreglu þar sem þau yrðu tvö ein á móti spilltu kerfi.

Í greinargerð kærenda er með vísan til heimilda fjallað almennt um aðstæður í heimaríki þeirra. Þar komi m.a. fram að síðustu 50 ár hafi geisað vopnuð átök þar í landi og rúmlega 200.000 manns hafi látið lífið og tugir þúsunda horfið. Mannskæð átök hafi m.a. veikt stöðu stjórnvalda og dregið úr getu þeirra til að sinna samfélagslegu hlutverki og vernda borgara landsins. Á meðal alvarlegustu mannréttindabrota sem framin séu í landinu séu m.a. morð í skjóli refsileysis og víðtæk spilling.

Ólöglegir vopnaðir glæpahópar hafi framið fjölda ódæðisverka á ári hverju, þ.m.t. fjárkúganir, mannrán, pyndingar, mansal, sprengjuárásir, hótanir og ógnanir í garð fjölmiðlafólks, kvenna og aðgerðarsinna. Frá 1. janúar 2020 og fram í júní sama ár hafi verið tilkynnt um 2.952 mannshvörf í landinu, auk 53 tilvika þar sem fólk hafi verið numið á brott gegn vilja þeirra en yfirvöld hafi ekki veitt upplýsingar um fjölda þeirra einstaklinga sem hafi fundist. Þrátt fyrir að yfirvöld hafi árið 2016 gert friðarsamkomulag við skæruliðahópinn FARC (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia – People´s Army) hafi m.a. innleiðingu samkomulagsins í lög ítrekað verið frestað. Blóðug átök tengd einum stærsta skæruliðahópi landsins, ELN (e. National Liberation Army), geisi enn ásamt átökum tengdum öðrum skæruliðahópum.

Mikil ofbeldisbylgja hafi skekið kólumbísku þjóðina síðastliðna fimm mánuði en upphaf bylgjunnar megi rekja til mótmæla gegn nýrri skattalöggjöf sem hafi þróast í ákall þjóðarinnar um breytingar í efnahagskerfinu. Ólga hafi brotist út á meðal mótmælenda sökum mikillar hörku af hálfu lögreglu, misréttis og spillingar. Þó mikið hafi verið um dauðsföll víðsvegar um landið hafi meirihluti þeirra orðið í borginni Cali í suðvesturhluta Kólumbíu og Valle del Cauca, svæðinu í kringum Cali, en af þeim 66 dauðsföllum sem skráð hafi verið hinn 30. maí 2021 vegna mótmæla í landinu hafi 38 þeirra orðið í Cali og 11 á svæðunum þar í kring. Frá því að mótmæli hafi brotist út í apríl 2021 hafi kólumbíska lögreglan og öryggissveitir beitt mótmælendur ofbeldi þrátt fyrir að mótmælin hafi flest farið fram á friðsamlegan máta. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafi nýlega fordæmt hin verulega alvarlegu ofbeldisbrot sem framin hafi verið af hálfu öryggissveita gegn friðsömum mótmælendum. Í lok maí 2021 hafi mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Michelle Bachelet, lýst áhyggjum sínum af átökum í borginni Cali og hvatt til viðræðna og að dauðsföll þar yrðu rannsökuð.

Tugir ungra drengja hafi safnast saman með vopnum og skjöldum til að mótmæla og vernda mótmælendur gegn ofbeldi lögreglu og öryggissveita og kalli hópurinn sig nafninu Primera Linea. Hinn 26. maí sl. hafi 134 manns út hópnum verið handteknir og sakaðir um glæpsamlegt athæfi, s.s. vegatálmanir, skemmdarverk og árásir gegn yfirvöldum. Yfirvöld í Kólumbíu hafi haldið því fram að hópurinn hafi framið brot sín með fjármögnun ELN og afsprengihópa FARC og hafi það réttlætt handtöku þeirra. Mannréttindasamtök hafi fordæmt þetta athæfi yfirvalda og sakað þau um óhóflega valdbeitingu gegn almennum borgurum. Hinn 25. maí 2021 hafi yfirvöld í Kólumbíu skráð alls 169 árásir gegn heilbrigðisstarfsfólki á þeim fjórum vikum sem þá höfðu liðið frá upphafi mótmælanna í landinu. Þá komi fram í nýrri skýrslu mannréttindanefndarinnar IAHCHR (e. Inter-American Commission on Human Rights) frá júní 2021 að kvartanir hafi borist til nefndarinnar frá læknum í Kólumbíu vegna hótana og áreitni í garð heilbrigðisstarfsfólks, þá sérstaklega þess sem veitt hafi fólki í fremstu víglínu mótmælanna læknisaðstoð.

Kærendur byggja aðalkröfu sína um að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi á þeim grundvelli að stofnunin hafi brotið rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Útlendingastofnun hafi vísað í úreltar og óuppfærðar heimildir um ástandið í Kólumbíu. Með vísan til mikilvægis þeirra upplýsinga um ástand mála í Kólumbíu um þessar mundir og þeirra ógna sem kærendur hafi greint frá sé ljóst að stofnunin hafi ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína.

Kærendur byggja varakröfu sína á því að þau séu flóttamenn samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi sem stafi ógn af vopnuðum glæpamönnum í Kólumbíu auk þess sem þau eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana. Rekja megi ástæðu flótta kærenda einkum til ofsókna óþekktra vopnaðra glæpamanna gegn þeim sökum stjórnmálaskoðana þeirra en þau hafi opinberlega mótmælt stefnu stjórnvalda og veitt særðum mótmælendum læknisaðstoð eftir árásir lögreglu. Menn á mótorhjólum hafi áreitt þau og hótað þeim. Kærendur hafi óttast um líf sitt og gætu ekki leitað til lögreglunnar og yfirvöldum væri ekki treystandi sökum spillingar. Þá hafi kærendur í þrígang fengið sendar hótanir frá óþekktum númerum í gegnum samskiptaforritið Whatsapp. Þá hafi þau lagt fram myndbönd sem sýni menn á mótorhjólum sem hafi lagt fyrir utan hús þeirra. Þolendur skæruliðahópa og glæpatengdra gengja hafa verið talin mynda sérstakan þjóðfélagshóp þar sem þeir hafi sameiginleg einkenni og stöðu sem ekki fáist breytt sbr. leiðbeiningarreglu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þá sé byggt á því að kærendur eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna, en ljóst sé að aðgerðir þeirra til stuðnings mannréttindum, þ.e. mótmæli og aðstoð M við slasaða mótmælendur, hafi gengið gegn stefnu yfirvalda, lögreglu og vopnaðra glæpamanna í Kólumbíu. Megi leiða líkur að því að með aðgerðum sínum eigi þau á hættu á að verða fyrir ofsóknum af hálfu lögreglu og hinna vopnuðu manna. Þá hafi verið skotið að M í mótmælum í Cali. Verulega hættulegt sé fyrir mannréttinda- og aðgerðarsinna að vera í Kólumbíu um þessar mundir vegna ógnana og ofbeldis glæpahópa. Með vísan til frásagnar kærenda og fyrrgreindra landaupplýsinga sé ljóst að kærendur hafi, vegna aðgerða sinna til stuðnings mannréttindum og aðstoðar sinnar við særða mótmælendur, ástæðu til að óttast áframhaldandi ofsóknir af hálfu vopnaðra hópa sem styðji yfirvöld landsins.

Verði ekki fallist á varakröfu kærenda krefjast þau þess til þrautavara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna þess alvarlega almenna ástands sem ríki í landinu vegna glæpagengja, skæruliðahópa og annarra vopnaðra hópa. Frá því mótmæli hafi hafist í apríl 2021 hafi kólumbíska lögreglan og öryggissveitir beitt mótmælendur hrottalegu ofbeldi þrátt fyrir að mótmælin mestu farið fram með friðsamlegum hætti. Ljóst sé að kærendur uppfylli öll skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd þar sem þau eigi í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Kólumbíu. Þá sé það mat kærenda að innri flutningur sé hvorki raunhæf né sanngjörn ráðstöfun fyrir þau. Ekki verði séð að fyrir hendi sé nokkurt svæði sem kærendur kæmust til án þess að eiga á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða.

Til þrautaþrautavara krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð kærenda kemur fram að öryggi almennra borgara í heimaríki þeirra sé ógnað með handahófskenndum árásum og glæpum af hálfu skæruliðahópa og annarra vopnaðra hópa í skjóli refsileysis. Þá þurfi að hafa í huga að afleiðingar af því ofbeldi sem þau hafi upplifað og hinum stanslausa ótta sem þau hafi búið við hafi haft áhrif á andlega heilsu þeirra. 

Þá vísa kærendur til þess að með því að senda þau til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingum, sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun muni brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

 

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur séu kólumbískir ríkisborgarar.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Achieving Health Outcomes in Colombia. Civil Registration and Vital Statistics System, Unique Personal Identification Number, and Unified Beneficiary Registry System for Births and Death (World Bank Group, 2019);
  • A fractured peace, A Reuters Special Report (Reuters International, 26. apríl 2018);
  • Amnesty International Report 2020/2021 – Colombia (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Annual Report 2019 – Colombia (Amnesty International, 27. febrúar 2020);
  • Bloqueos y ataques a misiones médicas escalan protestas en Colombia (France24, 26. maí 2021);
  • Cali vivió otra noche trágica en el marcho de las protestas en Colombia (France24, 6. júní 2021);
  • Cali take on mantle of Colombia´s ´capital of resistance´ (Financial Times, 30. maí 2021);
  • Colombia: Violent repression, paramilitarism, illegal detention and torture of peaceful protesters in Cali (Amnesty International, 30. júlí 2021);
  • Colombia: Cali: In the epicenter of repression: Human rights violations during the 2021 national strike in Cali, Colombia (Amnesty International, 30. júlí 2021);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post-FARC-EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, skoðað 12. október 2021);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Colombia: Events of 2020 (Human Rights Watch, 2021);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Colombia: Spike in attacks against peace community shows conflict still alive (Amnesty International, 21. mars 2017);
  • Colombia arrested 134 anti-government activists in one week (Colombia Reports, 27. júlí 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombians Revive Protests Amid New Tax Plan (VOA News, 21. júlí 2021);
  • Colombia – Peace and Stability in the Post-Conflict Era (Center for Strategic and International Studies (CSIS), mars 2014);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2020);
  • Colombia’s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace. Latin America Report No. 63 (International Crisis Group (ICG), 19. október 2017);
  • Education in Colombia (World Education News And Reviews, 23. júní 2020);
  • Freedom in the World 2020 – Colombia (Freedom House, 4. mars 2020);
  • In the Shadow of “No“: Peace after Colombia’s Plebiscite. Latin America Report No. 60 (International Crisis Group (ICG), 31. janúar 2017);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Colombia: Bachelet calls for dialogue and respect for human rights after new reports of deaths and injuries in Cali (UNCHR, 30. maí 2021);
  • Observaciones y recomendaciones, visita de trabajo a Colombia (CIDH, júní 2021);
  • Piden respeto a misión médica tras 169 ataques durante protestas en Colombia (Swissinfo, 25. maí 2021);
  • Protest in Colombia: HRW condemns “extremely serious abuses” by the police against protesters (BBC News, 9. júní 2021);
  • Primary Health Care Systems (Prymasis). Case study from Colombia (World Health Organization, 2017);
  • Recycled Violence, Abuses by FARC dissident groups in Tumaco on Colombia’s Pacific Coast (Human Rights Watch, 13. desember 2018);
  • Renewed protests in Colombia as government unveils new tax reform (France24, 21. júlí 2021);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 8. maí 2020);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 - Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation, and Statistics, mars 2020);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 25. október 2021);
  • Trincheras y balas en Siloé: 74 muertos y unas protestas que no cesan en Colombia (El Confidencial, 13. júní 2021);
  • The Missing Peace: Colombia’s New Government and Last Guerrillas. Latin America Report No 68 (International Crisis Group (ICG), 12. júlí 2018);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum- Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • 2020 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2021);
  • World Report 2020 – Events of 2019 (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • World Report 2021 - Events of 2020 (Human Rights Watch, 13 . janúar. 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
  • Upplýsingar af vefsíðu InSight Crime (insightcrime.org) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllist 79% íbúa kaþólska trú. Þann 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn LGBTI einstaklingum.  Á meðal þess sem fram kemur í framangreindum heimildum er að spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Þó kemur m.a. fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 að forseta- og þingkosningar í júní árið 2018 hafi verið taldar hafa farið fram með frjálsum og sanngjörnum hætti og þær hafi verið hinar friðsömustu í áratugi. Í skýrslu samtakanna Freedom House kemur t.a.m. fram að spillingar gæti víða í kólumbísku stjórnkerfi. Á síðustu árum hafi komið upp á yfirborðið hneykslismál tengd ýmsum alríkisstofnunum sem hafi verið rannsökuð og sakfellt hafi verið fyrir brot, þ. á m. brot háttsettra embættismanna. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.

Af framangreindum heimildum má ráða að glæpa- og morðtíðni í Kólumbíu sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Nariño, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia – People’s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu þar einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í ársskýrslu samtakanna frá 2020 kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 2.300 talsins. Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2020 kemur fram að almennir borgarar hafi verið beittir misnotkun og ofbeldi af hendi framangreindra skæruliðahópa og glæpahópa. Meðlimir mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólk, leiðtogar frumbyggja og aðrir aðgerðarsinnar hafi staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi og líflátshótunum. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir ofangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN.

Í skýrslu Human Rights Watch kemur fram að kólumbíska ríkislögreglan hafi í nóvember árið 2019 ráðist að mótmælendum í landinu, sem hafi mótmælt breytingum á skattalöggjöf og morðum á mannréttindaaðgerðarsinnum. Dregið hafi úr mótmælunum í kjölfar Covid-19 faraldursins en hinn 28. apríl 2021 hafi þúsundir manns tekið þátt í mótmælum vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalöggjöf. Stjórnvöld hafi dregið umræddar tillögur til baka en mótmæli hafi haldið áfram og tengst óánægju mótmælenda á mörgum sviðum, s.s. atvinnuleysi, versnandi efnahagsástandi í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins, ójöfnuði, glæpatíðni o.fl. Þá var vanefndum samningsaðila á friðarsamningnum sem undirritaður var árið 2016 og stigvaxandi ofbeldi glæpahópa og lögregluyfirvalda mótmælt. Í skýrslu sinni greinir Amnesty International frá ofbeldi og alvarlegum mannréttindabrotum gagnvart mótmælendum af hendi öryggissveita og vopnaðra aðila. Frá því mótmæli hafi hafist hafi kólumbíska lögreglan og öryggissveitir beitt mótmælendur ofbeldi þrátt fyrir að mótmælin hafi flest farið fram með friðsamlegum hætti. Lögreglan hafi brugðist við með því að grípa til óhóflegrar valdbeitingar, beitingu skotvopna og handahófskenndra handtaka. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa fordæmt alvarleg ofbeldisbrot í landinu. Í frétt frá 27. júlí 2021 kemur fram að skráð hafi verið a.m.k. 79 dauðsföll víðsvegar um landið og 1900 manns hafi særst í mótmælunum. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Michelle Bachelet, hefur m.a. lýst yfir áhyggjum af átökum í borginni Cali og hvatt til viðræðna og þess að dauðsföll verði rannsökuð. Skrifstofu hennar hafi borist fregnir af því að 14 manns hafi látið lífið og 98 manns særst, þar af 54 af byssuskotum í átökunum sem hafi átt sér stað tengslum við mótmæli hinn 28. maí 2021. Í skýrslu mannréttindanefndar Ameríkuríkja (e. Inter-American Commission of Human Rights) í tengslum við heimsókn nefndarinnar til landsins í júní 2021, kemur fram að nefndin hafi fundið víðtækan samhljóm meðal fulltrúa ríkisins og fulltrúa borgaralega samfélagsins varðandi orsakir mótmælanna sem liggi í miklum ójöfnuði og misskiptingu auðs, fátækt og skorti á aðgengi að efnahagslegum, menningarlegum og félagslegum réttindum, einkum aðgengi að menntun, atvinnu og heilbrigðisþjónustu. Þá hafi tugir ungra drengja safnast saman, undir merkjum Primera Línea, til að vernda mótmælendur gegn ofbeldi lögreglu og öryggissveita. Hinn 26. maí 2021 hafi 134 manns úr hópnum verið handteknir og sakaðir um glæpsamleg athæfi. Yfirvöld hafi haldið því fram að brot þessara aðila hafi verið fjármögnuð af ELN og afsprengihópum FARC og þannig réttlætt handtöku þeirra. Forseti Kólumbíu hafi lagt fram tillögu að umbótum á lögregluliði Kólumbíu sem feli m.a. í sér að lögreglumenn skuli bera líkamsmyndavélar og að sett verði á fót mannréttindaembætti innan lögreglunnar sem eigi að fá utanaðkomandi tillögur að stefnumótun. Þá ætli ríkisstjórnin að bæta verklag fyrir kvartanir almennings vegna aðgerða lögreglunnar. Í skýrslu Freedom House fyrir árið 2020 kemur fram að Hæstiréttur Kólumbíu hafi skipað fyrir um að réttur til að mótmæla og tjáningarfrelsi skyldi virtur og lagt fyrir hlutaðeigandi stofnanir að setja reglugerðir til að koma í veg fyrir ofbeldi af hálfu öryggissveita.

Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 að um 8 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Þá hafi hætta af ólöglegum vopnuðum hópum í landinu valdið fólksflutningum, bæði í þéttbýli sem og í dreifbýli. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við COVID-19-heimsfaraldurinn.

Í framangreindum heimildum kemur fram að konur eigi undir höggi að sækja á ýmsum sviðum í Kólumbíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur m.a. fram að ofbeldi og refsileysi sé vandamál í landinu. Þá kemur m.a. fram í framangreindri skýrslu samtakanna Freedom House að konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Þá hafi nokkuð skort á innleiðingu kynbundinna þátta friðarsamkomulagsins frá árinu 2016.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu, 15,4% og hafði aukist verulega frá árinu 2019. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni frá árinu 2018, hefur frá árinu 2013 verið í gildi sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu, slík heilbrigðisþjónusta sé að mestu tryggð með sjúkratryggingakerfi landsins og meirihluti fólks sem eigi við andleg vandamál að stríða þurfi ekki að greiða fyrir slíka þjónustu.

Í skýrslu Amnesty International kemur fram að þeir sem berjist fyrir mannréttindum og mótmælendur eigi undir högg að sækja í samfélaginu. Kólumbísk stjórnvöld hafi áhyggjur af áreiti og ofbeldi sem baráttufólk og aðgerðarsinnar mæti. Þó að dregið hafi úr fjölda morða, úr 90 á fyrri hluta ársins 2020 í 78 á sama tímabili 2021, þá sé það of mikið, að leiðtogar séu myrtir, aðallega í tengslum við glæpastarfsemi ólöglegra vopnaðra hópa. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að stjórnvöld hafi sett á fót aðgerðaráætlun um forvarnir og vernd fyrir mannréttindaðagerðarsinna, félags- og samfélagsleiðtoga og fjölmiðlafólk, með það að markmiði að efla viðleitni til að rannsaka og koma í veg fyrir árásir gegn þeim. Umboðsmaður mannréttinda hafi haldið áfram að vekja athygli á aðstæðum í gegnum herferðina „Lead Life“ og sérstök deild innan lögreglunnar á sviði ríkissaksóknara, beri ábyrgð á aðgerðum sem miði að því að vernda mannréttindaaðgerðarsinna fyrir árásum ásamt rannsóknum og ákærum í þessum málum. 

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur bera fyrir sig að ástæðu flótta þeirra frá heimaríki megi einkum rekja til ofsókna sem kærendur hafi sætt af hálfu ónefndra vopnaðra aðila í heimaríki kærenda. Þá hafi M lent í skotárás og K fengið ógnandi skilaboð í gegnum samfélagsmiðla. Kærendur óttist vopnaða hópa í heimaríki sínu, sem njóti stuðnings frá yfirvöldum. Þá greindu kærendur frá því að ekki væri unnt að treysta á yfirvöld í heimaríki sínu.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram gögn til stuðnings frásögn sinni, þ. á m. skjáskot af hótunum á samfélagsmiðlum og myndum sem þau kveða vera af aðilum fyrir utan heimili sitt.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá mótmælum í heimaríki sínu. Aðspurð um þátttöku í mótmælunum kvaðst K hafa lýst mótmælum og gagnrýnt yfirvöld á samfélagsmiðlum ásamt því að hafa mætt á mótmælafundi. Þá sé M læknir og hafi aðstoðað mótmælendur sem hafi særst í mótmælunum. M hefur greint frá því að skotið hafi verið í áttina að honum þegar hann hafi verið að hlúa að særðum mótmælendum. Þau hafi einnig greint frá því að aðilar hafi hótað þeim í gegnum samfélagsmiðla eftir að þau yfirgáfu heimaríki sitt. Kærendur hafa m.a. lagt fram skjáskot af myndum af samfélagsmiðlum sem kærendur kveða vera af aðilum sem hafi hótað þeim og áreitt þau. M hefur greint frá því að hann hafi verið að aðstoða mótmælendur í Cali í gegnum Whatsapp-hóp frá 30. apríl 2021 og að hann hafi orðið fyrir skotárás þann 7. maí 2021 hjá […]. Kærunefnd óskaði eftir nánari upplýsingum varðandi hótanir og áreiti sem þau hafi orðið fyrir. Þá voru þau spurð hvort þau telji sig vera í sérstakri hættu vegna starfa sinna, auk þess sem þau voru beðin um að skýra betur frá hverja þau óttuðust í heimaríki. Í svari kærenda kváðust þau óttast ofsóknaraðila sína sem hafi sent þeim hótanir í gegnum Whatsapp og beðið fyrir utan heimili þeirra. Þau viti ekki nákvæmlega um hvaða aðila sé að ræða en þau telji þá vera úr skipulögðum herliðum og í samstarfi við lögreglu og herinn. Þá óttist þau um líf sitt og frelsi og að þau muni þurfa að sæta pyndingum verði þau send aftur til Kólumbíu, líkt og aðrir mótmælendur og aðgerðarsinnar þar í landi hafi þurft að þola.

Kærendur hafa borið fyrir sig að þau tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi vegna meintra ofsókna glæpagengja í tengslum við þátttöku þeirra í mótmælum í heimaríki sínu. Kærendur telji sig því vera í hættu vegna stjórnmálaskoðana sinna og geti ekki leitað ásjár yfirvalda í heimaríki. Samkvæmt gögnum sem kærunefnd hefur skoðað ríkir óstöðugleiki í Kólumbíu sem hefur brotist út í mótmælum. Mótmælin hafa að mestu farið friðsamlega fram en þó hefur komið til átaka, m.a. í Cali, heimaborg kærenda. Eins og fram hefur komið hafa stjórnvöld og öryggissveitir í einhverjum tilvikum brugðist við af hörku, sem hefur verið gagnrýnt.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærendur eigi þær á hættu. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera m.a. með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik. Með fyrirspurn, dags. 8. nóvember 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um það hvort kærendur tilheyri skipulögðum hópum, sem hafi tekið þátt í mótmælunum. Í svari, dags. 9. nóvember 2021, kemur fram að M hafi gengið til liðs við hóp sjálfboðaliða innan heilbrigðisgeirans og hafi hópurinn stuðning frá mismunandi félögum. Með tölvubréfi, dags. 11. nóvember 2021, lögðu kærendur fram yfirlýsingu verkalýðsfélagsins SINTRAIME þar sem fram komi að meðlimir félagsins hafi stutt við hóp heilbrigðisstarfsfólks með flutningi á matvælum og birgðum til heilbrigðisstarfsfólks sem hafi hjálpað mótmælendum í umræddum mótmælum.

Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að stór hluti landsmanna hefur tekið þátt í framangreindum mótmælum og hugnist ekki aðgerðir stjórnvalda. Það er mat kærunefndar að kærendum hafi ekki tekist að sýna fram á að þau séu útsettari fyrir áreiti og ofbeldi heldur en aðrir sem tekið hafa þátt í mótmælum í landinu. Með vísan til frásagna og heimilda sem liggja fyrir í málinu er það mat kærunefndar að kærendur hafi ekki leitt líkur að því að þau eigi á hættu að verða fyrir áreiti af hálfu kólumbískra yfirvalda eða annarra aðila vegna stjórnmálaskoðana sinna eða vegna aðstoðar M við þátttakendur í mótmælunum umfram það sem almennt gengur og gerist í landinu. Heimildir benda ennfremur ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í Cali að ómögulegt sé fyrir kærendur að leita aðstoðar yfirvalda telji þau þörf á því. Er það því mat kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að stjórnvöld í Kólumbíu geti ekki eða vilji ekki veita þeim vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Kærendur hafa því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef þau telja sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 4. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærendur vísa til þess að þau séu í hættu vegna ótryggs ástands í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- eða skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Það er mat kærunefndar að frásögn kærenda af almennu ástandi í Kólumbíu sé í meginatriðum í samræmi við fyrirliggjandi gögn og upplýsingar um heimaríki þeirra. Þau gögn og heimildir sem kærunefnd hefur yfirfarið benda til þess að töluvert hafi verið um mótmæli í heimaborg kærenda, Cali og að aðgerðir öryggissveita gagnvart mótmælendum, hafi verið gagnrýndar. Hins vegar, að virtum framburði kærenda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið á því svæði sem þau höfðu búsetu í Kólumbíu er það mat kærunefndar að þau eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefndin að aðstæður kærenda þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærendur hafa greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna starfsemi glæpahópa og að yfirvöld geti ekki veitt þeim fullnægjandi vernd. Kærendur telji m.a. ljóst að þau geti ekki lifað öruggu og eðlilegu lífi fjarri ofbeldi og hefndaraðgerðum í heimaríki sínu og að ástand mannréttindamála þar í landi sé slæmt og félagslegar aðstæður bágbornar. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í heimaríki kærenda telur kærunefnd að almennar aðstæður þeirra séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra ástæðna.

Kærendur byggja á því að félagslegar aðstæður þeirra í heimaríki verði bágbornar. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimalandi, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli félagslegra aðstæðna.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans. Í viðtali M hjá Útlendingastofnun kom fram að hann væri líkamlega hraustur en að hann teldi sig vera með áfallastreituröskun vegna atburða í æsku. Í viðtali K hjá Útlendingastofnun greindi hún frá því að vera við góða heilsu, andlega og líkamlega. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ekki ráðið annað en að kærendur hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum í heimaríki sínu. Verður því ekki talið að kærendur hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kærenda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir og sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé að veita kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

Athugasemdir kærenda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærendur gera í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. að í ákvörðuninni hafi verið vísað til eldri heimilda um aðstæður í heimaríki. Aðalkrafa kæranda í máli þessu, um ómerkingu hinna kærðu ákvarðana, er meðal annars byggð á því að málsmeðferð á lægra stjórnsýslustigi haf verið ófullnægjandi. Taka má undir það með kærendum að rannsókn Útlendingastofnunar hafi ekki verið lýtalaus, m.a. m.t.t. þeirra heimilda um stöðu heimaríkis sem útlistaðar eru í hinni kærðu ákvörðun.  Við meðferð málsins á æðra stjórnsýslustigi hefur kærunefnd bætt úr þeim annmörkum, skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun, svo sem að framan greinir. Af þeim sökum er aðalkröfu kæranda hafnað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærendur komu hingað til lands 7. júní 2021 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur eru við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi COVID-19 faraldursins er athygli kæranda einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda.

Athygli er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda eru staðfestar. Lagt er fyrir kærendur að hverfa af landi brott. Kærendum er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants are affirmed. The appellants are requested to leave the country. The appellants have 30 days to leave the country voluntarily.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                            Þorbjörg I. Jónsdóttir


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum