Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 479/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 479/2018

Í stjórnsýslumáli nr. KNU18090007

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

Þann 24. ágúst 2018 barst Útlendingastofnun kæra [...], kt. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. júlí 2018, um að synja honum um ótímabundið dvalarleyfi. Útlendingastofnun framsendi kæruna til kærunefndar útlendingamála þann 31. ágúst 2018.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 30. júlí 2018. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 24. ágúst 2018. Ljóst er því að kærufresturinn, sem var til 14. ágúst 2018, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar, dags. 5. október 2018, veittur frestur til 10. október 2018 til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í bréfi til kærunefndar þann 9. október 2018 greindi kærandi frá ástæðum þess að kæra barst of seint. Í bréfinu vísar kærandi til þess hann hafi ekki gert sér grein fyrir kæruferlinu og að einhver tímamörk væru á slíkri kæru. Ótímabundið dvalarleyfi sé gríðarlega mikilvægt fyrir kæranda og síðan honum hafi borist fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar sé hann búinn að vera í áfalli og þá sé andleg og líkamleg heilsa hans ekki góð. Bendir kærandi á að þegar honum hafi borist fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar hafi hann ekki gert sér grein fyrir því að hann gæti kært þá ákvörðun þar sem skort hafi á leiðbeiningum frá stofnuninni. Loks kemur fram að kærandi hafi miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem komin sé upp vegna umsóknar hans um ótímabundið dvalarleyfi og að hann hefði aldrei meðvitað kært ákvörðun Útlendingastofnunar of seint, hefði stofnunin sinnt leiðbeiningarskyldu sinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar, sem birt var kæranda þann 30. júlí 2018, er að finna leiðbeiningar um kæruleið og kærufresti. Mátti því kæranda vera ljóst hvaða reglur giltu um kæru til æðra stjórnvalds. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt.

Eins og áður hefur komið fram var ákvörðun Útlendingastofnunar birt kæranda þann 30. júlí 2018 og var 15 daga kærufrestur skv. 7. gr. laga um útlendinga því til 14. ágúst 2018. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Kæra kæranda barst Útlendingastofnun hins vegar ekki fyrr en 24. ágúst sl., eða 10 dögum eftir að kærufresturinn var liðinn.

Kærunefnd telur að þær athugasemdir sem færðar hafa verið fram leiði ekki til þess að afsakanlegt geti talist að kæra hafi ekki borist fyrr. Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og greinargerðar kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar.

Í ljósi alls ofangreinds er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi veigamiklar ástæður í skilningi 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, eða að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist innan þess tímaramma sem lögin áskilja.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The Immigration and Asylum Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                               Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum