Hoppa yfir valmynd
16. mars 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 159/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 16. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 159/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120066

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 21. desember 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. desember 2022, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Í kæru krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 16. nóvember 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 11 daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. desember 2022. Hinn 21. desember 2022 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjölum. Viðbótargögn bárust kærunefnd frá kæranda 26. desember 2022. Hinn 24. janúar 2023 óskaði kærunefnd eftir eftirfarandi rökstuðningi frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar. Eftirfarandi rökstuðningur, sem barst kærunefnd 25. janúar 2023, verður rakinn í niðurstöðukafla úrskurðarins. Hinn 14. febrúar 2023 var kæranda sendur eftirfarandi rökstuðningur Útlendingastofnunar til andmæla. Engin svör bárust frá kæranda.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að það hafi verið draumur hans og eiginkonu hans síðan þau hafi gengið í hjónaband 4. júní 2021 að heimsækja Ísland. Þau hafi hins vegar ekki getað skipulagt ferðina fyrr vegna heimsfaraldurs Covid-19. Þau hafi nú skipulagt ferð til Íslands og hafi ætlað að heimsækja Finnland í leiðinni. Fram kemur að þau hafi ætlað að fljúga frá Indlandi til Reykjavíkur 19. janúar 2023 og dvelja hér í fimm daga eða til 24. janúar, fljúga þá héðan til Finnlands og dvelja þar til 29. janúar 2023 áður en þau kæmu aftur til Íslands til að fljúga héðan til Indlands. Kærandi og eiginkona hans hafi verið búin að bóka öll hótel og hafi þau ætlað að deila öllum ferðakostnaði.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 10 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi ekki vitað mikið um fyrirhugaða ferð til Íslands þar sem ferðin hafi að hans sögn verið skipulögð af ferðaskrifstofu. Kærandi hafi þurft að lesa beint upp af ferðaáætluninni til að svara spurningum fulltrúa sendiráðsins um ferðina. Hann hafi getað greint frá því að hann og eiginkona hans myndu taka næturlest frá Rovaniemi í Finnlandi til Helsinki en hann hafi jafnframt greint frá því að fyrst tækju þau lest frá Íslandi til Finnlands. Hann hafi síðan leiðrétt sig en ekki getað greint frá því hvernig hann færi til Finnlands frá Íslandi. Þá hafi hann ekki getað nefnt neina staði á Íslandi heldur aðeins sagst vilja sjá norðurljósin. Þá hafi ekki verið hægt að finna neinar upplýsingar um ferðaskrifstofuna sem hafi að sögn kæranda samið ferðaáætlunina.

Í símaviðtali hafi kærandi m.a. verið spurður með hverjum hann hygðist ferðast og hver ferðaáætlun hans væri. Kærandi hafi greint frá því að ætla að ferðast með eiginkonu sinni en að hann gæti ekki veitt upplýsingar um smáatriði varðandi ferðina þar sem hún hafi verið skipulögð af ferðaskrifstofu. Hann hafi getað greint frá því að þau hygðust dvelja í Reykjavík en ekki getað nefnt neina aðra staði á Íslandi. Hann hafi sagst vilja sjá norðurljós. Þegar kærandi hafi verið spurður út í fyrirhugaða ferð sína til Finnlands hafi hann sagst ætla að taka næturlest frá Rovaniemi til Helsinki, að hann hygðist fara í snjósleðaferð til að sjá norðurljós og að hann myndi gista eina nótt í Helsinki. Kærandi hafi þurft að lesa ferðaáætlunina til að geta greint frá smáatriðum um ferðina. Hann hafi ekki vitað hvernig hann færi frá Íslandi til Finnlands og hafi fyrst sagst ætla að taka næturlest. Eftir að hafa lesið ferðaáætlunina hafi hann leiðrétt sig. Hann hafi ekki verið búinn að bóka flug frá Íslandi til Finnlands. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Hinn 25. janúar 2023 barst kærunefnd eftirfarandi rökstuðningur frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 13. desember 2022, um að synja umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Kemur þar m.a. fram að í máli kæranda hafi verið lögð fram útfærð ferðaáætlun á vegum ferðaskrifstofu þar sem greint hafi verið með skipulögðum hætti frá hverjum degi sem kærandi og eiginkona hans hefðu haft í hyggju að dvelja hér á landi og í Finnlandi. Hinn 30. nóvember og 1. desember 2022 hafi verið haft samband við kæranda og eiginkonu hans í gegnum síma í þeim tilgangi að afla upplýsinga um fyrirhugaða ferð til Íslands og Finnlands. Í viðtalinu hafi kærandi einungis getað veitt takmarkaðar upplýsingar um dvöl sína hér á landi, þ.e. hvaða staði þau hygðust heimsækja fyrir utan Reykjavík, en aðspurður hafi hann sagst ekki þekkja ferðaáætlunina vel þar sem ferðaskrifstofa hefði samið hana. Hafi hann sagt að þau myndu ferðast með lest frá Íslandi til Finnlands en leiðrétt sig eftir að hafa skoðað ferðaáætlun sína. Augljóst hafi verið að kærandi hafi ekki haft mikla þekkingu á landfræðilegri legu Íslands. Þá hafi hann verið beðinn um að senda flugmiða frá Íslandi til Finnlands sem honum hafi láðst að gera. Þegar eiginkona kæranda hafi verið spurð út í ferðaáætlun sína hafi hún sagst ætla að ferðast til Noregs, Finnlands og Íslands í átta til níu daga. Hafi hún greint frá því að ætla að sjá norðurljósin í Noregi og byrjað að telja upp hluti sem hún hugðist gera og hafi fulltrúi sendiráðsins talið augljóst að hún væri að lesa upp af ferðaáætluninni. Þá hafi frásögn kæranda um að ferðaskrifstofa hafi skipulagt ferðina ekki verið í samræmi við frásögn eiginkonu hans. Einnig hafi verið ósamræmi í frásögn eiginkonu kæranda að því leyti að ferða- og flugáætlun þeirra geri ekki ráð fyrir að þau muni ferðast til Noregs. Þá telji Útlendingastofnun ástæðu til að draga í efa áreiðanleika gagna ferðaskrifstofunnar sem kærandi og eiginkona hans hafi lagt fram. Heimasíða ferðaskrifstofunnar virki ekki og Útlendingastofnun og utanríkisráðuneytið hafi ekki fundið upplýsingar á veraldarvefnum um tilvist ferðaskrifstofunnar. Þá hafi kærandi og eiginkona hans haft takmarkaðar upplýsingar um ferð sína. Vegna framangreinds hafi það verið mat Útlendingastofnunar að þær upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og því hafi umsóknum þeirra verið synjað. Eftirfarandi rökstuðningur var sendur á kæranda til andmæla 14. febrúar 2023 en engin svör bárust frá honum vegna þessa.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi vissi lítið sem ekkert um Ísland í símaviðtali eða hvað hann hugðist gera hér á landi, auk þess sem misræmi var í frásögnum kæranda og eiginkonu hans um fyrirhugaða ferð þeirra. Í kæru kæranda kom jafnframt fram að hann og eiginkona hans hygðust ferðast héðan til Finnlands, ferðast aftur til Íslands og fljúga héðan til Indlands. Samkvæmt flugbókun þeirra hugðust þau hins vegar fljúga frá Finnlandi til München í Þýskalandi, en hvorki kærandi né eiginkona hans greindu frá því að ætla að ferðast til Þýskalands. Þá kvað kærandi þau ætla að ferðast frá Íslandi til Finnlands með lest. Sýnir það fram á litla þekkingu á landinu sem kærunefnd telur jafnframt skjóta skökku við frásögn þeirra um að Ísland hafi lengi verið draumaáfangastaður þeirra.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum