Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt í heilbrigðisumdæmi Vesturlands

Frá kynningarfundi um heilbrigðisstefnuna í heilbrigðisumdæmi Norðurlands í byrjun sumars - myndHeilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra, stendur fyrir opnum fundi um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Vesturlands, þann 15 ágúst. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi kl. 17 – 19.

Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og  hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og hafa kynningarfundir þegar verið haldnir í heilbrigðisumdæmum Norðurlands og Vestfjarða.

Kynningarfundir um heilbrigðisstefnuna verða haldnir í heilbrigðisumdæmi Suðurlands 14. ágúst, í heilbrigðisumdæmi Suðurnesja 19. ágúst, í heilbrigðisumdæmi Austurlands 22. ágúst og í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins 4. september.

Dagskrá fundarins á Akranesi 15. ágúst

  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
  • Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands – Sýn forstjóra.
  • María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) – Áhrif heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ
  • Pallborðsumræður. Auk frummælenda taka eftirtaldir þátt í pallborðsumræðum: Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi og Sveinbjörg Pétursdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Húnaþingi vestra.

Fundarstjóri er Björn Bjarki Þorsteinsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar.

Fundurinn er öllum opinn og gestir boðnir velkomnir.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum