Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2013 Innviðaráðuneytið

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa sunnudaginn 17. nóvember

Athöfn verður við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi í Reykjavík á morgun, sunnudag, klukkan 11 þar sem minnst verður þeirra sem farist hafa í umferðarslysum. Efnt er til hliðstæðrar athafnar víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.

Landsmenn eru hvattir til að nota þennan dag til að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og jafnframt íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber sem þátttakandi í umferðinni. Boðað verður til einnar mínútu þagnar klukkan 11:15.

Það er ekki aðeins að dagurinn sé tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur jafnframt skapast sú venja hér á landi að heiðra á þessum degi þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun fyrir hönd þjóðarinnar flytja þessum starfsstéttum þakkir fyrir það mikilvæga og óeigingjarna starf sem þær sinna.

Þyrla Landhelgisgæslunnar mun lenda á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og í kjölfar þess verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við hlið þyrlunnar. Má í því sambandi nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.

Athöfnin hefst sem fyrr segir klukkan 11 og að loknu ávarpi innanríkisráðherra segja tveir einstaklingar frá lífsreynslu sinni eða störfum tengdum umferðarslysum. Starfshópur innanríkisráðuneytisins um Áratug aðgerða í umferðaröryggi annast undirbúning og framkvæmd þessa verkefnis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum