Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir baráttuna gegn félagslegum undirboðum og brotum á vinnumarkaði

Ákvæði um keðjuábyrgð sem sporna á við mögulegri misnotkun á vinnuafli hér á landi hefur verið innleitt í lög um opinber innkaup, en það er þáttur í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn félagslegum undirboðum og brotum á vinnumarkaði.

Jafnframt hafa verið unnar leiðbeiningar, þar sem fjallað er um keðjuábyrgð og hvernig verktakar og opinberir aðilar geti uppfyllt lagalegar skyldur sem stuðla að ábyrgum vinnumarkaði á Íslandi.

Hið nýja ákvæði um keðjuábyrgð á einnig að koma í veg fyrir undirboð og óeðlilega samkeppnishætti á vinnumarkaði. Það er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem lýst er yfir vilja til að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgum vinnumarkaði. Ákvæðið er að finna í 88.gr a. í lögum um opinber innkaup og tók gildi 1. janúar 2020.

Snýr að verklegum framkvæmdum

Keðjuábyrgðin snýr að verklegum framkvæmdum. Hún felur í sér að aðalverktaka er gert skylt að tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn hans, undirverktaka eða starfsmannaleigna, sem koma að framkvæmd samnings fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni.

Opinberum aðila sem kaupanda ber skylda til að gera grein fyrir ábyrgð aðalverktaka í útboðsgögnum. Honum er einnig heimilt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að greiða vangoldnar verktakagreiðslur til undirverktaka og annarra starfsmanna, sem svara til launatengdra greiðslna, á kostnað aðalverktaka, standi hann ekki í skilum með greiðslur.  

„Ákvæðið um keðjuábyrgð er mikilvægur hvati fyrir opinbera aðila og aðalverktaka til að velja sér ábyrga samningsaðila. Nú þegar hafa nokkrir opinberir aðilar á vegum ríkis og sveitarfélaga tekið inn í útboðsgögn sín ákvæði um keðjuábyrgð verktaka sem sýnir mikilvægi og nauðsyn hennar,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

10. Aukinn jöfnuður

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum