Hoppa yfir valmynd
18. október 2000 Utanríkisráðuneytið

Nr. 079, 18. október 2000 Samkomulag um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2001

Utanríkisráðuneytið

Frjálst form
Fréttatilkynning
frá utanríkisráðuneytinu og sjávarútvegsráðuneytinu
-----------------------------------
Nr. 079.


Í dag var í Skagen í Danmörku undirritað samkomulag milli Íslands, Færeyja, Noregs, Rússlands og Evrópusambandsins um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2001.

Samkvæmt samkomulaginu verður heildarafli viðkomandi aðila á næsta ári 850.000 tonn, sem er 400.000 tonna samdráttur frá hámarksafla þessa árs. Aflinn skiptist þannig að í hlut Íslands koma 132 þúsund tonn, í hlut ESB koma 71 þúsund tonn, í hlut Færeyja 46 þúsund tonn, í hlut Noregs koma 484 þúsund tonn og í hlut Rússlands koma 116 þúsund tonn.

Reglur um aðgang aðila að lögsögu hvers annars til veiða úr síldarstofninum eru óbreyttar frá því sem verið hefur, nema hvað leyfilegur afli minnkar í hlutfalli við samdrátt í heildarafla. Íslensk skip mega áfram veiða allan sinn hlut í lögsögu Færeyja og færeysk skip allan sinn hlut í lögsögu Íslands. Eins og í ár mega íslensk skip veiða sinn hlut við Jan Mayen, en norsk skip mega veiða 94 þúsund tonn í íslensku lögsögunni. Íslensk skip mega veiða 5.900 tonn í norsku efnahagslögsögunni.

Ráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins lagði til að heildaraflinn yrði 753 þúsund tonn á árinu 2001, í samræmi við aflareglu sem samþykkt var að vinna eftir á síðasta fundi aðilanna í október í fyrra. Á fundinum kom í ljós að ekki var samstaða um að fylgja ráðgjöfinni að þessu sinni, og varð að lokum samkomulag um að heildaraflinn verði 850 þúsund tonn eins og áður er getið. Aðilar lýstu yfir að stefnt yrði að því að fylgja aflareglunni frá og með árinu 2002.

Fulltrúi Íslands lýsti yfir vonbrigðum með að ekki skyldi staðið við ákvarðanir sem teknar voru á síðasta fundi og að ekki skuli farið eftir ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðsins.



Skagen, 18. október 2000.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum