Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 40/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. febrúar 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 40/2022

í stjórnsýslumálum nr. KNU21120012, KNU21120013, KNU21120014 og KNU21120015

 

Beiðni um endurupptöku í málum [...], [...],[...] og [...]

 

I.       Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í málum nr. KNU21040058, KNU21040059, KNU21040061 og KNU21040062, dags. 26. ágúst 2021, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 8. apríl 2021, um að taka umsóknir einstaklinga er kveðast heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir A), [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir B), [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir C) og [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir D), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum hinn 30. ágúst 2021. Hinn 6. september 2021 lögðu kærendur fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar og endurupptöku málsins. Hinn 4. nóvember 2021 synjaði kærunefnd kærendum um endurupptöku og frestun réttaráhrifa í málum sínum með úrskurði kærunefndar í málum nr. KNU21090016, KNU21090018, KNU21090019, KNU21090034, KNU21090075, KNU21090076, KNU21090077 og KNU21090078. Hinn 9. desember 2021 barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku að nýju. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kærenda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun hinn 13. desember 2021 og hinn 17. desember 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra. Athugasemdir og frekari gögn bárust frá kærendum dagana 21. desember 2021 og 21. 27. og 31. janúar 2022. Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd ásamt syni A og var úrskurður vegna umsóknar þeirra um alþjóðlega vernd kveðinn upp samhliða úrskurði kærunefndar í máli hans. Þá er beiðni kærenda um endurupptöku lögð fram af fjölskyldunni í heild með sameiginlegri greinargerð. Úrskurðir fjölskyldunnar varðandi beiðni þeirra um endurupptöku voru unnir samhliða og kveðnir upp samdægurs, sbr. úrskurð nr. 39/2022.

Af beiðni kærenda um endurupptöku máls þeirra má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kærenda

Í beiðni kærenda um endurupptöku kemur m.a. fram að kærendur hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 8. desember 2020 og að þau hafi ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan 12 mánaða sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með hliðsjón af atvikum máls telja kærendur að tafir á flutningi þeirra til Grikklands verði ekki raktar til þeirra, enda væri það bersýnilega ósanngjarnt af stjórnvöldum að halda því fram. Kærendur telja að skilyrði framangreinds ákvæðis séu uppfyllt í málum þeirra og því skuli umsóknir þeirra teknar til efnismeðferðar hér á landi.

 

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 8. desember 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti hinn 8. desember 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsókna kærenda séu á þeirra ábyrgð, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun hinn 13. desember 2021 varðandi fyrirspurnir um tafir á málsmeðferð og flutningi kærenda kom fram að samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild hafi kærendur ekki viljað fara af landi brott og margsinnis neitað því að fara í sýnatöku. Útlendingastofnun liti því svo á að kærendur hafi tafið mál sitt, sbr. 2. máls. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í svari frá stoðdeild sem barst kærunefnd hinn 17. desember 2021, kemur fram að kærendur hafi hinn 19. nóvember 2021 neitað að skrifa undir og merkja við eyðublaðið Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands. Þá kom fram að lögmaður kærenda myndi ræða við þau um efni tilkynningarinnar. En tilkynning hafi verið kynnt fyrir kærendum með aðstoð Language Line.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 17. desember 2021, voru kærendur upplýstir um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kærenda bárust kærunefnd hinn 21. desember 2021. Í svari kærenda kemur m.a. fram að ljóst sé að lögreglan hafi samþykkt að lögmaður þeirra myndi ræða við þau um efni tilkynningarinnar og því verði að telja það verulega ósanngjarnt að líta svo á að þau hafi ekki skrifað undir skjölin samdægurs hinn 19. nóvember 2021, sem feli í sér tafir í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja að lögreglan hafi hinn 19. nóvember 2021 verið upplýst um að lögmaður þeirra myndi verða við framangreindri beiðni og fara yfir efni tilkynningarinnar með þeim strax eftir helgi, þ.e. hinn 22. nóvember 2021 sem hafi svo verið gert. Jafnframt hafi lögreglan verið upplýst þann sama dag að beiðni hafi verið send til heilsugæslunnar um að afla bólusetningarvottorða fyrir fjölskylduna vegna fyrirhugaðs flutnings þeirra til Grikklands í samræmi við beiðni lögreglu. Þá hafi verið handskrifaður texti á tilkynningunum frá sama lögreglufulltrúa að ekki væri gerð krafa um Covid-19 sýnatöku heldur einungis óskað eftir bólusetningarvottorðum frá kærendum. Í samræmi við beiðni lögreglu hafi kærendur óskað eftir bólusetningarvottorði frá heilsugæslunni Firði hinn 22. nóvember 2021. Þá vísa kærendur til þess að ekki sé að finna leiðbeiningar um hvar þau skuli sækja vottorðin og hafi þau sjálf þurft að afla þessara upplýsinga. Þar sem engin svör hafi borist frá heilsugæslunni ítrekuðu kærendur beiðni sína um að fá bólusetningarvottorðin afhent vegna fyrirhugaðs flutnings þeirra úr landi hinn 25. nóvember 2021. Kærendur hafi fengið þau svör að erindi þeirra væri móttekið og væri í vinnslu hjá lækni. Þrátt fyrir framangreind svör hafi kærendur leitað eftir frekari aðstoð frá félagsráðgjafa sínum sem hafi gefið þeim aðrar upplýsingar um hvert þau ættu að sækja vottorðin, þ.e. hjá Göngudeild sóttvarna. Kærendur hafi fengið tölvubréf dags. 30. nóvember 2021, þar sem þeim hafi verið greint frá því að Hafnarfjarðarbær skyldi hafa samband við lögregluna og skoða þetta með þeim. Kærendur hafi enn ekki fengið frekari upplýsingar frá yfirvöldum um næstu skref í máli sínu og hafi sjálf ítrekað gengið eftir samvinnu við yfirvöld til að liðka fyrir flutningi þeirra úr landi. Kærendur hafna því sem fram kemur í svari Útlendingastofnunar að þau hafi ekki viljað fara af landi brott og margsinnis neitað því að fara í sýnatöku. Kærendur gera athugasemd við það að stoðdeild hafi veitt Útlendingastofnun þessar röngu upplýsingar. Þá telja kærendur ólögmætt af hálfu stofnunarinnar að líta svo á að ef einhver af kærendum hafi ekki sagst vilja fara úr landi að afstaða þess kæranda sé jafngild afstöðu allra kærenda. Með vísan til framangreinds telja kærendur að tafir á flutningi þeirra úr landi verði ekki raktar til þeirra og það sé bersýnilega ósanngjarnt að Útlendingastofnun og stoðdeild haldi því fram. Til vara óska kærendur eftir því að í mesta lagi hafi verið um þriggja daga töf að ræða vegna samráðs þeirra við lögmann sinn en þau hafi strax að því loknu leitast með virkum hætti við að fá óskir stjórnvalda uppfylltar.

Líkt og áður kom fram héldu kærendur því fram hinn 19. nóvember 2021 að þau væru bólusett og gætu aflað vottorða um það. Hinn 19. janúar 2022 óskaði kærunefnd eftir staðfestingu frá kærendum um að þau væru bólusett, líkt og þau héldu fram við framkvæmd flutnings, og þá hvenær sú bólusetning hefði farið fram, svo hægt væri að leggja mat á það hvort tafir á afgreiðslu umsókna þeirra hafi verið á þeirra ábyrgð. Viðbótarathugasemdir kærenda bárust kærunefnd hinn 21. janúar 2022. Þar kemur m.a. fram að kærendur mótmæli því nú harðlega að hafa verið spurð af lögreglu hvort þau væru bólusett en kærendur hafi upplýst lögreglu um að þau hafi fengið Covid-19 sýkingu. Kærendur telja að misræmi sé í svörum stjórnvalda til nefndarinnar um ástæður þess að þau hafi tafið mál sitt. Þá vísa kærendur til þess að þau hafi gert tilraun til að afla bólusetningarvottorða í samræmi við beiðni og ósk lögreglunnar og það án þess að valda töfum. Kærendur hafi talið að öflun á slíku skjali myndi upplýsa um hvort þau væru bólusett eða ekki. Þá vísa kærendur til þess að hefði beiðni þeirra til heilsugæslunnar um afhendingu vottorðanna verið afgreidd án dráttar hefði strax orðið ljóst hvort þau þyrftu á bólusetningarvottorðum eða öðrum vottorðum að halda. Í tölvubréfi frá heilsugæslunni Firði, dags. 20. janúar 2022, hafi fyrst komið fram að kærendur gætu ekki fengið slík vottorð þar sem bólusetning þeirra varðaði ekki Covid-19. Kærendur telja það bersýnilega ósanngjarnt að meta það svo að tafir í málinu séu á þeirra ábyrgð enda ljóst að hefðu þau fengið þessar upplýsingar innan tíðar hefðu þau óskað eftir öðrum og viðeigandi vottorðum. Þá hafi lögreglan ekki uppfyllt leiðbeiningarskyldu 7. gr. stjórnsýslulaga en kærendum hafi hvorki verið leiðbeint um hvert þau ættu að fara til að afla slíks vottorðs né hafi lögreglan orðið við loforði sínu um að aðstoða við öflun vottorðanna. Kærandi telur að hefðu þau fengið aðstoð við að komast á afhendingarstað hefði komið í ljós hvort þau þyrftu bólusetningarvottorð eða önnur vottorð. Þá byggja kærendur á því að af málsmeðferð kærunefndar í öðrum sambærilegum málum geri nefndin mun strangari kröfur til þeirra við mat á því hvort þau hafi tafið mál sín eða ekki. Kærendur fjalla um jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga og vísa til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21110035 frá 25. nóvember 2021, KNU21100053 og KNU21100054 frá 18. nóvember 2021 og KNU21080029, KNU21090040 og KNU21090066 frá 14. október 2021. Þá óska kærendur eftir frestun á framkvæmd, sbr. 5. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að þau hafi fengið boðun frá lögreglu til Grikklands auk þess sem Covid-19 heimsfaraldurinn hafi farið versnandi frá því að úrskurður í máli þeirra var kveðinn upp.

Eftir að viðbótarathugasemdir kærenda bárust kærunefnd óskaði nefndin m.a. eftir upplýsingum frá stoðdeild hinn 26. janúar 2022 um það hvort kærendur hafi verið spurð að því hvort þau væru bólusett og hverju þau hefðu svarað. Í svari stoðdeildar, dags. 27. janúar 2022, kemur fram að kærendur hafi verið spurð að því hvort þau væri bólusett, sem þau hafi svarað játandi, auk þess sem þau hefðu greint frá því að ætla sér ekki að framvísa bólusetningarvottorði. Kærendum hafi verið leiðbeint hvernig hægt væri að nálgast bólusetningarvottorðin á heilsugæslunni í Mjódd. Þá hafi kærendum jafnframt verið upplýst um það að lögreglan hefði ekki heimild til að útvega bólusetningarvottorð þeirra. Í svari frá stoðdeild kom jafnframt fram að lögmaður kærenda hafi verið viðstödd í gegnum fjarfundarbúnað þegar tilkynningin hafi verið birt fyrir kærendum.

Hinn 28. janúar 2022 var framangreint tölvubréf stoðdeildar áframsent til kærenda og þeim gefin frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kærenda bárust kærunefnd hinn 31. janúar 2022. Í svari kærenda kemur m.a. fram að þau telji misræmi vera í svörum lögreglunnar um ástæður tafa í máli þeirra og því sé ekki hægt að leggja svör lögreglunnar til grundvallar. Þá vísa kærendur til þess að hefðu þau fengið fullnægjandi leiðbeiningar sé ljóst að þau hafi fengið viðeigandi vottorð. Þá mótmæla kærendur því að þau hafi verið spurð að því hvort þau væru bólusett en þau hafi einungis farið eftir fyrirmælum um öflun umræddra vottorða. Kærendur vísar til þess að þau hafi fengið upplýsingar um hvar ætti að nálgast umrædd vottorð frá Hafnarfjarðarbæ en ekki lögreglunni líkt og gögn málsins beri með sér. Þá vísa kærendur til þess að lögmaður þeirra hafi ekki verið verið allan tímann í gegnum fjarfundarbúnað þegar tilkynningin var birt fyrir þeim heldur hafi hún verið það að hluta til enda hafi aðstæður ekki leyft annað. Þá telja kærendur að þau hafi leitað allra leiða til samráðs og samvinnu við lögregluna en án árangurs. Kærendur ítreka fyrri beiðni sína um frestun á framkvæmd, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Af gögnum málsins má ráða að lögmaður kærenda hafi hinn 22. nóvember 2021 sent tölvubréf til heilsugæslunnar Fjarðar og óskað eftir bólusetningarvottorði fyrir þau en í tölvubréfinu tekur lögmaður kærenda fram að lögreglan hafi óskað eftir að umbjóðendur sínir framvísi bólusetningarvottorði vegna fyrirhugaðrar endursendingar þeirra til Grikklands. Í framangreindum viðbótarathugasemdum kærenda, dags. 21. janúar 2022, kemur fram að þau mótmæli því harðlega að hafa verið spurð af lögreglu hvort þau væru bólusett en þau hafi þó upplýst lögreglu um það að hafa fengið Covid-19 sýkingu. Kærunefnd telur því misræmi vera í viðbótarathugasemdum kærenda og tölvubréfi frá lögmanni kærenda til heilsugæslunnar Fjarðar, dags. 22. nóvember 2021. Ber tölvubréf lögmanns kærenda til heilsugæslunnar hinn 22. nóvember 2021 með sér að kærendur hafi raunverulega verið beðin um bólusetningarvottorð við Covid-19 líkt og tölvubréf stoðdeildar, dags. 27. janúar 2022, ber með sér. Líkt og að framan greinir kom fram í viðbótarathugasemdum kærenda, dags. 21. janúar 2022, að þau væru ekki bólusett gegn Covid-19. Þá liggur fyrir að  lögmaður kærenda fyrir þeirra hönd óskaði eftir bólusetningarvottorðum fyrir kærendur þegar ljóst var að þau væru ekki bólusett gegn Covid-19.

Kærunefnd telur að líta verði svo á að fyrrnefndar tafir á málsmeðferðinni séu á ábyrgð kærenda, enda héldu þau því ranglega fram við stoðdeild að þau væru bólusett við Covid-19 og óskuðu einnig eftir vottorði um það. Þessi háttsemi kærenda olli töfum á málsmeðferðinni.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kærenda hinn 8. desember 2021. Með framangreindri háttsemi sinni gerðu kærendur framkvæmd endanlegrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi ómögulega innan tilgreindra tímamarka. Jafnvel þótt slík háttsemi kunni að vera skiljanleg, telur kærunefnd ljóst að hún felur í sér tafir af hálfu kærenda enda gerði hún stjórnvöldum ókleift að framkvæma flutning.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsókna kærenda hafi verið á þeirra ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Vegna tilvísunar kærenda til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21110035 frá 25. nóvember 2021, KNU21100053 og KNU21100054 frá 18. nóvember 2021 og KNU21080029, KNU21090040 og KNU21090066 frá 14. október 2021, tekur kærunefnd fram að í fyrrgreindum málum taldi kærunefnd að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kærenda og stoðdeildar hafi snúið að því að kanna almennt afstöðu kærenda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar telur kærunefnd málin því ekki vera sambærileg.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kærenda á þann hátt að þau eigi rétt á endurupptöku á málum sínum, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á málum þeirra er þar með hafnað.

Með vísan til framangreindrar niðurstöðu er beiðni kærenda um frestun á framkvæmd, sbr. 5. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga hafnað.


 

Úrskurðarorð:


Kröfu kærenda er hafnað.

The appellants’ request is denied.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                 Sandra Hlíf Ocares

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum