Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 82/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. febrúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 82/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120056

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. desember 2018 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. desember 2018, um að synja henni um dvalarleyfi.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði ógilt.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Þann 20. febrúar 2018 sótti kærandi um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar sem sambúðarmaki Íslendings. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. desember 2018, var umsókn kæranda synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 21. desember 2018 og greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 10. janúar sl. Í kæru óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. desember 2018, á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefndinni, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þann 24. janúar sl. féllst kærunefndin á þá beiðni. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun lögðu kærandi og dóttir hennar inn nýjar umsóknir um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar hjá stofnuninni þann 11. janúar 2019. Viðbótargögn bárust kærunefnd þann 22. febrúar sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að við vinnslu umsóknar kæranda hafi komið í ljós að fylgigögn með umsókninni væru ófullnægjandi. Hafi stofnunin af því tilefni sent kæranda bréf, dags. 18. apríl 2018, þar sem óskað hefði verið eftir þeim gögnum sem upp á vantaði. Sú beiðni hafi verið ítrekuð með bréfi til umboðsmanns kæranda þann 22. ágúst 2018 og honum veittur 15 daga frestur til þess að leggja fram umbeðin gögn áður en stofnunin tæki ákvörðun í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Útlendingastofnun hefði að ósk umboðsmanns kæranda veitt viðbótarfrest til 12. september 2018. Þann 11. september 2018 hafi stofnuninni borist umsókn kæranda um dvalarleyfi fyrir barn hennar. Umsóknin hafi verið undirrituð af umboðsmanni hennar en ekki hafi verið greitt afgreiðslugjald vegna hennar. Sama dag hafi stofnunni borist bréf frá umboðsmanni kæranda þar sem m.a. kom fram að kærandi og maki hennar hefðu eignast barn hérlendis í [...] 2018 og að þau væru að reyna að afla nauðsynlegra gagna til að ganga í hér í hjúskap en hefðu ekki enn aflað sakavottorðs frá heimalandi kæranda. Þann 13. september 2018 hafi Útlendingastofnun sent umboðsmanni kæranda bréf á ný þar sem umbeðin gögn vantaði enn. Þá hefði stofnunin vakið sérstaka athygli á því að umsókn um dvalarleyfi fyrir barn þyrfti að vera undirrituð af foreldri og að greiða þyrfti afgreiðslugjald fyrir slíka umsókn. Enn fremur þyrfti að leggja fram fullnægjandi fæðingarvottorð barns og forsjárgögn. Þann 26. september 2018 hefði maki kæranda afhent stofnuninni fæðingarspjald útgefið af Landspítalanum þar sem kærandi og maki kæranda væru skráðir foreldrar.

Vísaði Útlendingastofnun til þess að í 2. mgr. 52. gr. laga um útlendinga kæmi fram að með umsókn um dvalarleyfi skyldu fylgja öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun gerðu kröfu um til staðfestingar á því að umsækjandi uppfylli skilyrði sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Þá væri ráðherra heimilt skv. 3. mgr. ákvæðisins að setja reglugerð með nánari fyrirmælum um hvaða gögn og vottorð umsækjandi skuli leggja fram, hvaða kröfur skuli gerðar til slíkra gagna og hver skuli leggja mat á gildi skjala og um undanþágu frá kröfu um gögn, en ráðherra hefði sett slík fyrirmæli í 10. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Tók stofnunin fram að þau gögn sem hún hefði óskað eftir frá kæranda hefðu ekki enn borist. Væru fylgigögn umsóknar því enn ófullnægjandi og væri ákvörðun stofnunarinnar því byggð á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Miðað við þau gögn sem kærandi hefði lagt fram og þau gögn sem ekki hefðu borist stofnuninni, þrátt fyrir beiðni þar um, væri ljóst að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 2. mgr. 52. gr. laga um útlendinga um fullnægjandi fylgigögn með umsókn. Hafi kærandi því ekki sýnt fram á að hún uppfyllti skilyrði 69. og 70. gr. um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar. Var umsókn kæranda því synjað og henni gert að yfirgefa landið innan 15 daga frá móttöku ákvörðunarinnar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að strax frá upphafi hafi verið ljóst að erfitt reyndist að afla tilskilinna fylgigagna frá heimaríki hennar með nægilega skjótum hætti. Hafi umboðsmaður hennar átt í samskiptum við Útlendingastofnun vegna þessa. Þá hafi hún gengið í hjúskap með maka sínum þann 20. desember 2018. Vísar kærandi til þessa að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé réttilega rakið að þrátt fyrir ítrekanir hafi enn ekki öll gögn borist stofnuninni. Hins vegar hafi það reynst henni erfitt að afla tilskilinna gagna frá heimaríki kæranda og sjáist það vel í því hve seint hafi gengið að afla nauðsynlegs hjúskapavottorðs frá heimaríki hennar vegna fyrirhugaðs hjúskapar hér á landi. Hafi það tekið um 7 mánuði að afla þess gagns og jafnframt hafi þurft milligöngu frá sendiráði í [...]. Hafi kærandi óskað eftir frekari fresti frá Útlendingastofnun sem hafi ekki fallist á slíkt. Tekur kærandi fram að sakavottorð frá heimaríki sé nú í þýðingu hjá löggiltum skjalaþýðanda og hafi því enn ekki verið lagt fram. Telur kærandi að fyrir utan fyrrgreint sakavottorð sé hún búin að leggja fram öll nauðsynleg gögn. Þá sé auðvelt að bæta úr annmörkum á dvalarleyfisumsókn fyrir dóttur hennar. Jafnframt tekur kærandi fram að hún og maki hennar hafi ákveðið að leggja inn nýja umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar.

Kærandi byggir á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn meðalhófsreglunni við vinnslu á umsókn hennar og dóttur hennar. Hafi hún óskað eftir frekari frestum hjá stofnuninni til að afla tilskilinna gagna en að frekari frestir hafi hins vegar ekki verið veittir. Tekur hún fram að stofnuninni hafi borið að koma til móts við hana enda séu hún og maki hennar, sem sé íslenskur ríkisborgari, búin að eiga í löngu sambandi, þau séu gift í dag og eigi saman barn hér á landi.Með tölvupósti þann 22. febrúar sl. lagði kærandi fram gögn sem bera með sér að vera afrit af fæðingarvottorði og sakarvottorði kæranda ásamt þýðingum.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 51. gr. laga um útlendinga kemur fram sú meginregla að útlendingur sem sækir um dvalarleyfi í fyrsta skipti skuli sækja um leyfið áður en hann kemur til landsins og er honum óheimilt að koma til landsins fyrr en umsóknin hefur verið samþykkt. Frá því skilyrði er heimilt að víkja ef umsækjandi um dvalarleyfi er undanþeginn áritunarskyldu eða hann er staddur hér á landi og aðstæður hans falla undir a-c lið 1. mgr. 51. gr. Varða stafliðirnir m.a. þær aðstæður þar sem umsækjandi er maki eða sambúðarmaki íslensks ríkisborgara, sbr. a-lið, barn íslensks ríkisborgara, sbr. b-lið, eða er umsækjandi um dvalarleyfi á grundvelli 61., 63. eða 64. gr. laga um útlendinga, sbr. c-lið. Í 2. mgr. 51. gr. laga um útlendinga segir að heimild til dvalar þegar umsækjandi sé undanþeginn áritunarskyldu gildi þar til umsækjandi hafi dvalið í 90 daga á Schengen-svæðinu. Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi heimild til dvalar á meðan umsókn hennar var til meðferðar hjá Útlendingastofnun á grundvelli a-liðar 1. mgr. 51. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga tekur Útlendingastofnun ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Þá skulu fylgja öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun gera kröfu um til staðfestingar að umsækjandi uppfylli skilyrði sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 52. gr. laganna. Samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins setur ráðherra reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins, m.a. hvaða gögn og vottorð umsækjandi skuli leggja fram, hvaða kröfur skuli gerðar til framlagðra gagna, hver skuli leggja mat á gildi skjala og um undanþágu frá kröfu um gögn.

Í 10. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, hefur ráðherra útfært nánar reglur um fylgigögn með umsókn um dvalarleyfi. Í 1. mgr. 10. gr. segir að Útlendingastofnun geti krafist þeirra gagna sem nauðsynleg eru við vinnslu umsóknar, m.a. fæðingarvottorðs, hjúskaparstöðuvottorðs, forsjár- eða umgengnisgagna, heilbrigðisvottorðs, dánarvottorðs, og staðfestingu á dvalarstað hér landi. Þá geti stofnunin krafist ljósmynda, greinargerða, gagna um framfærslu og sakavottorðs í þeim tilvikum sem stofnunin meti það nauðsynlegt. Í 3. mgr. 10. gr. segir m.a. að umsækjandi afli sjálfur nauðsynlegra fylgigagna með dvalarleyfisumsókn. Þá skuli fylgigögn vera á því formi sem stofnunin geri kröfu um og staðfest með þeim hætti sem stofnunin telji nauðsynlegan. Í 5. mgr. 10. gr. er m.a. kveðið á um að Útlendingastofnun geti veitt undanþágu frá framlagningu gagna þegar lög krefjist ekki framlagningar og málefnalegar ástæður mæli með því, t.d. ef umsækjanda er ómögulegt að afla þeirra, svo sem vegna stríðsástands í heimaríki.

Við meðferð umsóknar kæranda hjá Útlendingastofnun óskaði stofnunin eftir að kærandi legði fram tilgreind gögn, þ.m.t. frumrit sakarvottorðs, þar sem fylgigögn með umsókn væru ófullnægjandi, s.s. með bréfum stofnunarinnar dags. 18. apríl 2018 og 22. ágúst 2018. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi varð ekki við beiðnum Útlendingastofnunar þrátt fyrir ítrekuð tilmæli stofnunarinnar um að tilgreind gögn vantaði. Að mati kærunefndar er ekki tilefni til að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun að því leyti að kæranda gafst nægt ráðrúm til að verða við gagnabeiðnum Útlendingastofnunar en frá fyrsta bréfi stofnunarinnar til kæranda þess efnis að fylgigögn með umsókn væru ófullnægjandi, dags. 18. apríl 2018, liðu tæplega 8 mánuðir fram að ákvörðun stofnunarinnar án þess að kærandi fullnægði sinni skyldu um að með umsókn hennar væru nauðsynleg fylgigögn.

Fyrir kærunefnd lagði kærandi fram frekari gögn, m.a. sakavottorð frá heimaríki og fæðingarvottorð dóttur kæranda frá heimaríki með þýðingum. Þá lagði kærandi fram vottorð um að hún hafi gengið í hjúskap með maka sínum hér á landi þann [...] sl.

Með hliðsjón af hagsmunum kæranda og fjölskyldu hennar og því að hún og dóttir hennar hafa nú lagt inn nýjar umsóknir hjá Útlendingastofnun þykir rétt að stofnunin taki afstöðu til hinna nýju gagna í málinu. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar að nýju.

Varðandi athugasemdir kæranda í greinargerð um umsókn dvalarleyfis fyrir dóttur hennar þá lýtur ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. desember 2018, einungis að umsókn kæranda en fyrir liggur að stofnunin hefur ekki tekið ákvörðun um umsókn dóttur hennar. Telur kærunefnd því ekki tilefni til að taka afstöðu til þessarar málsástæðu kæranda enda er endurskoðunarvald kærunefndar bundið við þá ákvörðun sem kærð er, sbr. 7. gr. og 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant’s case.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                   Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum