Hoppa yfir valmynd
27. mars 2014 Forsætisráðuneytið

5. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta 
  3. Framsal ríkisvalds í þágu alþjóðasamvinnu
  4. Auðlindir
  5. Umhverfisvernd 
  6. Önnur mál

Fundargerð

5. fundur haldinn föstudaginn 28. febrúar 2014, kl. 9.15, í Þjóðmenningarhúsinu, stofu Jóns Sigurðssonar, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Sigurður Líndal, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Skúli Magnússon, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Freyja Haraldsdóttir hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 4. fundar, föstudaginn 14. janúar 2014, var send nefndarmönnum með tölvupósti 18. febrúar. Engar athugasemdir komu fram og telst fundargerðin samþykkt.

2. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Ný útgáfa minnisblaðs (drög nr. 3) var send nefndarmönnum 18. febrúar og óskað eftir skriflegum athugasemdum. Unnið var úr þeim athugasemdum sem bárust í kjölfarið og ný útgáfa (4) var send nefndarmönnum 27. febrúar.

Orðið gefið laust og nefndarmenn ræddu um efni minnisblaðsins.

Ákveðið var að fela formanni að ljúka vinnslu á minnisblaðinu, í samræmi við það sem fram kom í umræðum. Send verða út drög (5) að uppfærðu minnisblaði og óskað eftir skriflegum athugasemdum nefndarmanna ef einhverjar eru.

3. Framsal ríkisvalds í þágu alþjóðasamvinnu

Ný útgáfa minnisblaðs (drög nr. 2) var send nefndarmönnum 18. febrúar og óskað eftir skriflegum athugasemdum. Engar athugasemdir bárust en nokkrir nefndarmenn lýstu þeirri skoðun sinni að ræða þyrfti málið frekar áður en að því kæmi.

Orðið gefið laust og nefndarmenn ræddu um framsal ríkisvalds í þágu alþjóðasamvinnu. Ákveðið var að í kjölfar fundarins fái nefndarmenn vikufrest til að koma jafnframt á framfæri skriflegum athugasemdum.

Formanni falið að stýra frekari vinnslu á minnisblaðinu, í samræmi við umfjöllun á fundinum og væntanlegar skriflegar athugasemdir. Drög (3) að uppfærðu minnisblaði verða send út að þeirri úrvinnslu lokinni.

4. Auðlindir

Minnisblað (drög 1) var sent nefndarmönnum 27. febrúar.

Orðið gefið laust og rætt efnislega um náttúruauðlindir, með áherslu á eftirfarandi atriði:

  • Stöðumat (fræðileg/pólitísk greining því hvort breytinga(r) er þörf).
  • Sér nefndin fyrir sér miklar breytingar eða litlar? Breytingar í einu lagi eða áföngum? Þarf sérstakt ferli?
  • Framtíðarsýn og markmið við endurskoðun.
  • Helstu leiðir/áherslur að mati nefndarinnar og áhrif þeirra.

Ákveðið var að fela formanni að stýra frekari vinnslu á minnisblaðinu, í samræmi við það sem fram kom í umræðum. Drög (2) að uppfærðu minnisblaði verða send út að þeirri úrvinnslu lokinni og óskað eftir skriflegum athugasemdum nefndarmanna.

5.Umhverfisvernd

Minnisblað (drög 1) var sent nefndarmönnum 27. febrúar.

Umfjöllun frestað.

6. Önnur mál

Ekkert var tekið fyrir undir þessum lið.

Næsti fundur verður haldinn föstudaginn 14. mars, á reglulegum fundartíma og fundarstað nefndarinnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.00.

PÞ skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum