Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 11/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 4. febrúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 11/2020

Í stjórnsýslumáli nr. KNU19080014

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

Þann 6. ágúst 2019 barst kærunefnd útlendingamála kæra [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. maí 2019, um að brottvísa honum og ákveða honum endurkomubann til Íslands í 20 ár.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 7. júní 2019. Þann 6. ágúst 2019 barst kærunefnd tilkynning um kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 22. júní 2019, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar dags. 9. ágúst 2019, veitt tækifæri til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi sendi Útlendingastofnun greinargerð og fylgigögn þann 27. nóvember sl. og áframsendi Útlendingastofnun erindið á kærunefnd þann 5. desember sl. Í greinargerð kemur m.a. fram að þegar kærandi hafi samþykkt brottvísun Útlendingastofnunar hafi hann verið undir miklu álagi, m.a. vegna ráðlegginga um að samþykkja brottvísun frá lögmanni sínum. Hann mótmæli nú brottvísun en hann hafi engan samastað í heimaríki þar sem samlandar hans líti þann glæp sem hann hafi verið dæmdur fyrir mjög alvarlegum augum. Óskar kærandi eftir því að fá að dveljast áfram á landinu. Af þeim gögnum sem kærandi lagði fram þann 5. desember sl. verður jafnframt ráðið að kærandi hafi verið í sálfræðimeðferð hér á landi frá apríl til október 2018 og stundi nú nám við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þá lagði kærandi fram gögn sem bera með sér að vera afrit af samskiptum hans við eiginkonu sína og frænda í heimaríki, en af þeim verður m.a. ráðið að tengdapabbi kæranda vilji ekkert með hann hafa og að kærandi hafi kallað mikla skömm yfir fjölskyldu sína. Jafnframt lagði kærandi fram yfirlýsingu frá forstöðumanns fangelsisins á Kvíabryggju vegna veru kæranda þar.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Eins og áður hefur komið fram var ákvörðun Útlendingastofnunar birt kæranda þann 7. júní 2019. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Gögn málsins bera jafnframt með sér að kæranda hafi verið tilkynnt ákvörðun Útlendingastofnunar að viðstöddum túlki.

Kærunefnd telur að þær athugasemdir sem færðar hafa verið fram leiði ekki til þess að afsakanlegt geti talist að kæran hafi ekki borist fyrr. Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The Immigration Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                            Bjarnveig Eiríksdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum