Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Aukin fjármögnun frá einkageiranum mikilvæg fyrir uppbyggingu í kjölfar heimsfaraldurs

Ljósmynd: IFC/Tom Saater - mynd

Áskoranir tengdar COVID-19 og djúpstæð efnahags- og félagsleg áhrif heimsfaraldursins á þróunarríki voru ofarlega á baugi á árlegum tveggja daga fjarfundi kjördæma Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá fjölþjóðlegum þróunarbönkum. Samhljómur var um mikilvægi aukinnar fjármögnunar fyrir græna og bætta enduruppbyggingu í kjölfar faraldursins en einnig voru skulda-, loftslags- og orkumál áberandi umræðuefni á fundinum.

Fundurinn var haldinn á vegum utanríkis- og fjármálaráðuneytisins með þátttöku rúmlega eitt hundrað fulltrúa kjördæma Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sex þróunarbanka, Alþjóðabankans (WBG), Þróunarbanka Asíu (ADB), Innviðafjárfestingabanka Asíu (AIIB), Þróunarbanka Afríku (AfDB), Þróunarbanka Ameríkuríkja (IDB) og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD). Hópurinn hittist árlega í höfuðborgum Norðurlandanna í janúar og til stóð að fundurinn yrði haldinn í Reykjavík.

Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins opnaði fundinn og Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins átti lokaorðin. Þeir lögðu báðir áherslu á lykilhlutverk fjölþjóðlegu þróunarbankanna í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mikilvægi samstarfs Norðurlanda og Eystrasaltslandanna á vettvangi bankanna, bæði innan þeirra og þvert á stofnanirnar. Þátttakendum var tíðrætt um mikilvægi þess að fjölþjóðlegu þróunarbankarnir vinni náið saman og vegi hvorn annan upp í þeim stóru verkefnum sem fram undan eru. Jafnframt var áréttað mikilvægi þess að missa ekki sjónar á langtímaþróunarmarkmiðum eins og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og Parísarsamkomulaginu um aðgerðir í loftslagsmálum.

Á fundinum fóru fram pallsborðsumræður um spurninguna: Hvernig geta fjölþjóðlegu þróunarbankarnir betur stuðlað að því að virkja aukið einkafjármagn fyrir græna og bætta enduruppbyggingu eftir COVID-19? Þátttakendur í pallborðinu voru Chris Humphrey (Overseas Development Institute), Guilia Christianson (World Resource Institue), Sören Elbech (JP Morgan) og Karin Kemper (Alþjóðabankanum). Engilbert Guðmundsson frá utanríkisráðuneytinu stýrði umræðum. Nýlega kom út skýrsla frá þróunarbönkunum um fjárfestingar einkageirans á sviði þróunarsamvinnu, í tengslum við verkefni bankanna.

Alþjóðabankinn er stærstur þróunarbankanna og meðal stærstu og áhrifamestu alþjóðastofnana á sviði þróunarsamvinnu í heiminum. Geir H. Haarde er aðalfulltrúi kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í stjórn Alþjóðabankans, en Ísland leiðir nú kjördæmisstarfið.

  • $alt

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum