Hoppa yfir valmynd
26. maí 2025 Forsætisráðuneytið

Styrkur Norðurlandanna er norræna módelið

Frá vinstri: Jens Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, Katrin Sjögren, formaður landsstjórnar Álandseyja, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja.  - myndForsætisráðuneyti Finnlands

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í árlegum sumarfundi norrænna forsætisráðherra sem fram fór í Turku í Finnlandi. Nýr kanslari Þýskalands, Friedrich Merz, var gestur á kvöldverðarfundi forsætisráðherranna.

Meginefni fundarins að þessu sinni var viðbúnaður Norðurlandanna á sviði öryggismála og samfélagsinnviða og voru á fundinum samþykktar tvær sameiginlegar yfirlýsingar, annars vegar um öryggi og viðbúnað og hins vegar um skammtatækni. Fundurinn fór fram undir formennsku Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni 2025 og var einn liður fundarins samtal norrænu forsætisráðherranna við forsvarsmenn atvinnulífsins í ríkjunum, með þátttöku formanns Samtaka iðnaðarins og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins á Íslandi.

„Styrkur Norðurlanda er norræna módelið. Það skapar traust og öryggi í samfélögum okkar. Ég lagði áherslu á að Norðurlöndin byggðu áfram á þessum styrkleikum með þéttu samstarfi ríkis, fyrirtækja og launafólks. Það á ekki síst við núna með vaxandi vægi öryggis- og varnarmála í okkar heimshluta,” segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

„Það var frábært að ná samtali við atvinnulífið á þessum sumarfundi norrænna forsætisráðherra. Við ræddum meðal annars tækifæri til að auka samstarf hins opinbera og einkaaðila þegar kemur að því að styrkja áfallaþol og varnarviðbragð samfélagsins. En kraftmikil verðmætasköpun er líka lykilatriði almennt til að efla öryggi og varnir í Evrópu. Í því samhengi ræddum við meðal annars atvinnustefnu, innviðauppbyggingu og einföldun regluverks, vinnu gegn gullhúðun EES-gerða og mikilvægi þess að samstarf EES/EFTA-ríkja við Evrópusambandið raskist ekki vegna væringa í alþjóðaviðskiptum.“

Á fundi norrænu forsætisráðherranna voru ræddar leiðir til að efla samstarf og sameiginlegan viðbúnað til að bregðast við aðsteðjandi ógnum, bæði á sviði almannavarna sem og varnarmálasamstarf. Í því umróti í alþjóðamálum sem uppi hefur verið síðustu misseri og ógninni af Rússlandsstjórn hefur kastljósið beinst í æ ríkara mæli að Norðurlöndunum og Norðurslóðum. Á vettvangi Atlantshafsbandalagsins (NATO), Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) og varnasamstarfs Norðurlandanna (NORDEFCO) er æ ríkari áhersla lögð á að tryggja svæðisbundið samstarf í öllum öryggis- og varnarviðbúnaði og tekur það mið af ógnum bæði við Eystrasalt en ekki síður í Norður-Atlantshafi og á Norðurskautssvæðinu.

„Þó að Ísland sé herlaust land þá erum við í lykilstöðu í Norður-Atlantshafi. Ég vil að Ísland taki virkan þátt og veiti forystu í öryggis- og varnarmálum í okkar nærumhverfi. Með því að styrkja getu Íslands til að vinna með bandalagsríkjum okkar og með því að leiða saman önnur ríki á svæðinu og vinaþjóðir okkar í Evrópu og vestanhafs. Ég fagna því til dæmis að forsætisráðherrar Færeyja og Grænlands hafi tekið þátt á fundinum í dag. Það skiptir okkur máli og við viljum efla samstarfið við þessi ríki.“

Á kvöldverðarfundi norrænu forsætisráðherranna með Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, var rætt um stöðu öryggismála við Eystrasaltið og á Norðurslóðum, fjölþáttaógnir og undirbúning leiðtogafundar NATO sem fram fer í Haag í lok júní. Þá ræddu leiðtogarnir um stöðu mála í Úkraínu og áframhaldandi stuðning Evrópuríkja við stjórnvöld í Kyiv. Þá snerust umræður ennfremur um samkeppnisstöðu Evrópu og áskoranir í orkumálum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta