Hoppa yfir valmynd
28. október 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þjóðarsáttmáli um læsi

Haustið 2015 gerðu mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélög með sér Þjóðarsáttmála um læsi um það markmið að öll börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun í kjölfar Hvítbókar um umbætur í menntun. Framlag ráðuneytisins verður í formi ráðgjafar, stuðnings, lesskimunar og aukins samstarfs við foreldra.

Mikilvægt að snúa vörn í sókn

Lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í lýðræðis- samfélagi en bágur lesskilningur getur haft neikvæð áhrif á námsframvindu og þar með atvinnutækifæri síðar meir. Margt er vel gert í skólastarfi hér á landi og sýna alþjóðlegar kannanir að Íslendingar búa við gott menntakerfi, þar sem helstu styrkleikar eru jafn námsárangur milli skóla, vellíðan nemenda og sveigjanlegt skólakerfi með lítilli miðstýringu. Það veldur þó miklum áhyggjum að lesskilningur hefur versnað og að við lok grunnskóla getur of stór hluti barna ekki lesið sér til gagns. Ástæðan er ekki augljós en vafalaust er um að ræða flókið samspil margra þátta og því mikilvægt að snúa vörn í sókn. Á næstu fimm árum verður gert margþætt átak sem mun skila okkur enn betra menntakerfi til framtíðar.

Ákvörðun um árangur í læsi

Gott læsi er nauðsynlegt til að hver og einn geti nýtt hæfileika sína til fulls samfélaginu öllu til góða. Til að ná markmiði Þjóðarsáttmála um læsi þarf að grípa til margvíslegra aðgerða sem ráðuneytið mun styðja við á ýmsan hátt. Mikilvægur þáttur í því er að ríki og sveitarfélög ákveði sameiginlega að bæta læsi barna á Íslandi til framtíðar. Þar skiptir sköpum skýr markmiðssetning um árangur í læsi, ákvörðun um eftirfylgni og framlag skólastjórnenda, kennara, foreldra og annarra aðstandenda.

Ráðgjöf, stuðningur og starfsþróun

Menntamálastofnun hefur umsjón með verkefninu Þjóðarsáttmáli um læsi. Ráðnir verða ráðgjafar um læsi sem munu styðja við lærdómssamfélag skóla og sveitarfélaga, halda námskeið og leiðbeina skóla- stjórnendum, kennurum og öðru skólafólki um læsi og lestrarnám. Markmiðið er að Þjóðarsáttmáli um læsi festist í sessi og verði hluti af almennu skólastarfi til framtíðar.

Skimun og mat á læsi í grunnskólum

Menntamálastofnun hefur verið falið að gera tillögu um útfærslu og framkvæmd skimunarprófa fyrir læsi í grunnskóla og breytingar á inntaki samræmdra prófa í samræmi við markmið aðalnámskrár grunnskóla. Jafnframt mun 

Menntamálastofnun skoða forsendur þess að leggja mat á hæfni sem liggur til grundvallar lestrarnámi 5 ára barna.

Læsi barna er samvinnuverkefni

Mikilvægt er að öll börn fái tækifæri til að eiga daglega lestrarstund til loka grunnskóla. Foreldrar og aðstandendur þurfa að vera virkir þátttakendur í námi barna sinna og fylgjast með framvindu og árangri. Mikilvægt er að foreldrar fái stuðning og fræðslu frá skólum og sérfræðiþjónustu sveitarfélaga til þess að hlúa að lestrarnámi barna sinna, ekki síst þeirra barna sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda. Ráðuneytið mun semja sérstaklega við Heimili og skóla - landssamtök foreldra um aðkomu þeirra að því að virkja foreldra í stuðningi við læsi barna sinna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum