Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2010 Utanríkisráðuneytið

Landstjóri Sichuan þakkar Íslendingum

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hélt í dag til jarðskjálftasvæðanna í Sichuan, þar sem 300 þúsund manns létu lífið í jarðskjálftunum í maí 2008.

Á fundi utanríkisráðherra og landstjórans sem fram fór í Chengdu, höfuðborg Sichuan, þakkaði landstjórinn, Jiang Jufeng, Íslendingum sérstaklega fyrir liðveislu þeirra við íbúa jarðskjálftasvæðanna á sama tíma og Ísland hefði verið að ganga í gegnum mjög erfiða efnahagskreppu. Sagði landstjórinn að það hefði vakið athygli um gervallt Kína og Íslendingar myndu finna að því yrði ekki gleymt af Kínverjum.

Þegar jarðskjálftarnir dundu yfir veittu Íslendingar íbúum hamfarasvæðanna þrenns konar stuðning. Ríkisstjórnin veitti framlag til neyðaraðstoðar. Íslensk fyrirtæki sem eiga viðskipti við Kína söfnuðu fé til að reisa grunnskóla fyrir 200 börn á afskekktu fjallasvæði. Einnig tók Össur hf ásamt hjálparsamtökum frá Hong Kong þátt í að setja upp endurhæfingastöð þar sem einstaklingar sem misstu útlimi í jarðskjálftunum fá nýja fætur, sem gera þeim kleift að lífa eðlilegu lífi.

Landsstjórinn þakkaði Íslendingum sérstaklega byggingu skólans og þátttöku í að gera fórnarlömbum jarðskjálftanna kleift að taka eðlilegan þátt í samfélaginu á nýjan leik.

Á fundinum var jafnframt rætt ítarlega um samskipti Íslands og Kína, ekki síst í tengslum við jarðhita, en víða í Sichuan eru möguleikar á að nýta jarðhita til húshitunar og jafnvel raforkuvinnslu. Sichuan er fjölmennasta hérað Kína.

Eftir fundinn með landsstjóranum hélt utanríkisráðherra með fylgdarliði í heimsókn á endurhæfingastöðina og átti fund með starfsmönnum hennar og sjúklingum. Um 600 fórnarlömb jarðskjálftanna hafa nú fengið nýja fætur og voru nokkrir þeirra viðstaddir þegar íslenska sendinefndin kom í heimsókn sína.

„Það var ótrúlegt að finna þakklætið í garð Íslendinga hjá þessu góða fólki, sem vegna íslenskrar tækni og stuðnings er búið að finna nýja fótfestu í lífinu," sagði utanríkisráðherra í lok heimsóknarinnar á endurhæfingastöðina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum