Hoppa yfir valmynd
1. október 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 307/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 307/2020

Fimmtudaginn 1. október 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 16. júní 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. mars 2020, um 75% bótarétt.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 20. janúar 2020. Með ákvörðun, dags. 16. mars 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 75%.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. júní 2020. Með bréfi, dags. 19. júní 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 7. júlí 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. júlí 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi starfað hjá tilteknu einkahlutafélagi í mörg ár og hafi átt hlut í því félagi sem hafi verið í uppbyggingu. Félagið hafi ávallt staðið skil á tryggingagjaldi sem og öllum öðrum opinberum gjöldum. Sumarið 2019 hafi ekki lengur verið forsenda til rekstrar og því hafi starfsemin verið lögð niður. Kærandi hafi því verið tekjulaus og talið sig eiga rétt á fullum atvinnuleysisbótum en bótaréttur hafi einungis verið metinn 75%. Kærandi krefst þess að fá fullar bætur, enda hafi verið lögð fram gögn sem sýni fram á að hann hafi verið í fullu starfi, og að greiðslur verði leiðréttar aftur í tímann. Kærandi bendir á að hann hafi óskað eftir rökstuðningi vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar en sá rökstuðningur hafi ekki enn borist.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Kærandi hafi starfað hjá eigin fyrirtæki áður en hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga. Í 15. gr. laganna sé kveðið á um hvaða tímabil teljist til ávinnslutímabils atvinnuleitanda þegar ákvarða skuli rétt hans til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. 15. gr. segi: „Launamaður, sem starfað hefur skemur en tólf mánuði en lengur en þrjá mánuði á síðustu tólf mánuðum á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar, telst tryggður hlutfallslega í samræmi við lengd starfstíma að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, sbr. einnig 4. mgr.“ Í 2. mgr. 16. gr. laganna segi að þegar um sé að ræða launamann sem starfi hjá eigin félagi, svo sem einkahlutafélagi eða samlagsfélagi, skuli miða við reglur Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald við mat á bótarétti einstaklinga. Með ákvæðinu sé kveðið skýrt á um að þegar um sé að ræða umsækjendur um atvinnuleysisbætur sem hafi starfað hjá eigin félagi á ávinnslutímabilinu skuli miða við reglur Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald í viðkomandi starfsgrein.

Útreikningur bótaréttar þeirra sem starfi hjá eigin fyrirtækjum eða sem sjálfstætt starfandi einstaklingar fari eftir 19. gr. laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun beri að reikna bótarétt kæranda út frá þeim launum sem hann hafi reiknað sér vegna vinnu sinnar. Ef endurgjald nái ekki lágmarksviðmiðum Ríkisskattstjóra ákvarðist bótaréttur af hlutfalli endurgjalds sem greitt hafi verið af og viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Kærandi geti því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald sé lægra en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein. Starf kæranda falli undir tekjuflokk E9 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Flokkurinn eigi við um einstaklinga sem vinni í störfum sem ekki krefjist fagmenntunar og séu að hefja starfsemi og starfi einir eða með einum starfsmanni. Viðmiðunartekjur Ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk E9 vegna ársins 2019 hafi verið 288.000 kr. á mánuði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi laun hans ekki numið lágmarks    viðmiðunartekjum. Þar sem laun hafi ekki numið lágmarks viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra beri Vinnumálastofnun að ákvarða tryggingarhlutfall kæranda af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hafi verið af og viðmiðunarfjárhæðar. Samkvæmt skýru ákvæði 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri að byggja útreikning á bótarétti á þeim mismuni. Hæsta mögulega hlutfall reiknaðs endurgjalds kæranda og viðmiðunarfjárhæðar Ríkisskattstjóra nemi 75% á ávinnslutímabili. 

Með hliðsjón af ofangreindum sjónarmiðum sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að bótaréttur kæranda sé rétt ákvarðaður 75%.

 IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um 75% bótarétt kæranda.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt. Sjálfstætt starfandi einstaklingur er hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum Ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns, sbr. b-lið 3. gr. laganna.

Óumdeilt er að kærandi var sjálfstætt starfandi áður en hann sótti um atvinnuleysisbætur. Í IV. kafla laga nr. 54/2006 er fjallað um skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. telst sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., að fullu tryggður samkvæmt lögunum eftir að hafa greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald samfellt á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar að öðrum skilyrðum uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Í 2. mgr. 19. gr. segir svo um útreikning bótaréttar:

„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sem greitt hefur mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald skemur en tólf mánuði en þó lengur en þrjá mánuði á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar, telst tryggður hlutfallslega í samræmi við fjölda þeirra mánaða sem hann hefur greitt staðgreiðsluskatt að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Hið sama gildir um sjálfstætt starfandi einstakling sem hefur greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem er lægra en viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar en þá ákvarðast tryggingahlutfall hans af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæðar, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr.“

Samkvæmt framangreindu ber Vinnumálastofnun að reikna bótarétt sjálfstætt starfandi einstaklings út frá þeim launum sem viðkomandi reiknar sér vegna vinnu sinnar. Ef reiknað endurgjald atvinnuleitanda nær ekki lágmarksviðmiðum Ríkisskattstjóra ákvarðast bótaréttur af hlutfalli reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra. Umsækjandi um atvinnuleysisbætur getur því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald er lægra en viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein.

Starf kæranda fellur undir tekjuflokk E9 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, settum á grundvelli 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Viðmiðunartekjur Ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk E9 vegna ársins 2019 voru 288.000 kr. á mánuði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum greiddi kærandi mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem nam lægri fjárhæð en sú viðmiðunarfjárhæð. Tryggingarhlutfall kæranda ákvarðast því af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæðar. Samkvæmt skýru ákvæði 19. gr. laga nr. 54/2006 ber að byggja útreikning á bótarétti á þeim mismuni. Hæsta mögulega hlutfall reiknaðs endurgjalds kæranda og viðmiðunarfjárhæðar Ríkisskattstjóra nam 75% á ávinnslutímabili. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um 75% bótarétt kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. mars 2020, um 75% bótarétt A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum