Hoppa yfir valmynd
19. ágúst 2008 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrar NATO álykta um ástandið í Georgíu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sat í dag sérstakan aukafund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel þar sem fjallað var um ástand mála í Georgíu og viðbrögð bandalagsins við hernaðaraðgerðum Rússa í landinu.

Á fundinum samþykktu ráðherrarnir sameiginlega pólitíska yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við vopnahléssamkomulagið sem forsetar Georgíu og Rússlands undirrituðu fyrir tilstuðlan formennsku Frakka í Evrópusambandinu, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Bandaríkjanna. Ráðherrarnir ítrekuðu mikilvægi þess að sjálfstæði og landamæri Georgíu væru að fullu virt og hörmuðu fall óbreyttra borgara.

Í yfirlýsingunni er átökunum í Suður-Ossetíu lýst sem ógn við svæðisbundið öryggi, og eru Rússar hvattir til að standa við gefin loforð og kalla herlið sitt frá Georgíu nú þegar og tryggja að neyðaraðstoð komist til skila án tafar. Í því samhengi lýsa utanríkisráðherrar NATO áhyggjum sínum yfir nýlegum fregnum þess efnis að rússneskt herlið sé enn að valda eyðileggingu í Georgíu.

Full samstaða náðist meðal bandalagsríkja um aðgerðir til stuðnings Georgíu, einkum innan ramma núverandi samstarfs NATO og Georgíu. Ráðherrarnir ítrekuðu yfirlýsingu leiðtogafundar bandalagsins í Búkarest, frá því í apríl sl., um Georgíu. Einnig var ákveðið að stofna til viðræðna við stjórnvöld í Georgíu um að setja á fót sérstaka NATO-Georgíunefnd.

Þá átaldi bandalagið Rússland fyrir að beita óhóflegu vopnavaldi og áréttaði mikilvægi þess að rússnesk stjórnvöld virtu þau gildi sem ríkja í samskiptum Rússlands og NATO.

Yfirlýsingu utanríkisráðherrafundar NATO í heild sinni má finna á heimasíðu Atlantshafsbandalagsins www.nato.int



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum