Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 564/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 564/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090056

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 12. maí 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. febrúar 2021, um að taka umsókn [...], fd. [...] ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda þann 17. maí 2021.

Þann 19. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun þann 23. september. Athugasemdir og gögn bárust frá talsmanni kæranda þann 23. september 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku kemur fram að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 19. september 2020. Hinn 19. september 2021 hafi því 12 mánuðir verið liðnir frá umsókn hans um alþjóðlega vernd var lögð fram. Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hans og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með vísan til framangreinds er gerð sú krafa að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 19. september 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 19. september 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun þann 23. september 2021 varðandi fyrirspurnir um tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda kom fram að samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild hafi kærandi neitað að fara Covid-19 sýnatöku fyrir flutning og því hafi ekki verið hægt að framkvæma flutninginn. Með þessari háttsemi liti Útlendingastofnun svo á að kærandi hafi tafið mál sitt í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari frá stoðdeild sem barst kærunefnd þann 23. september 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild frá Útlendingastofnun þann 5. júlí 2021. Þann 12. júlí 2021 hafi verið haft samband við kæranda símleiðis og hann spurður hvort hann vildi fara til Grikklands. Kærandi hafi greint frá því að hann vildi fara til Grikklands en hann vildi fyrst ráðfæra sig við lögmann sinn áður en hann tæki endanlega ákvörðun. Kærandi hafi verið beðinn um að láta lögmanninn hafa samband við stoðdeild eftir að þeir ræddu saman. Ekkert símtal hafi borist frá lögmanninum.

Í athugasemdum kæranda dags. 23. september 2021, kemur fram að ekki sé að sjá að aðhafst hafi verið frekar af hálfu stoðdeildar til þess að vinna að flutningi kæranda úr landi. Óljóst sé á hverju fullyrðing Útlendingastofnunar um að kærandi hafi neitað að fara í Covid-19 sýnatöku byggir. Kærandi vísar til þess að munnleg og almenn yfirlýsing kæranda þess efnis að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki ein og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins. Vísar kærandi til nýlegra úrskurða kærunefndar þess efnis. Þá telur kærandi að ekkert komi fram í gögnum, né svörum Útlendingastofnunar eða stoðdeildar sem bendi til þess að kærandi beri nokkra ábyrgð á töfum málsins.

Af svari frá stoðdeild má því ráða að þau samskipti sem áttu sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Kærunefnd telur að líta verði svo á að yfirlýsing kæranda á því að hann vilji ráðfæra sig við lögmann sinn áður en hann tæki endanlega ákvörðun geti ekki eitt og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins. Þá má sjá af samskiptum stoðdeildar við kæranda að síðasta tilraun til að koma kæranda í Covid-19 sýnatöku var þann 12. júlí 2021 en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 19. september 2021. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum