Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2018

Staða staðarráðins starfsmanns við sendiráð Íslands í Stokkhólmi laus til umsóknar

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi gætir hagsmuna Íslands og Íslendinga ásamt því að efla tengsl Íslands og Svíþjóðar. Sendiráðið er auk þess sendiráð Íslands gagnvart Albaníu og Kúveit

Helstu verkefni staðarráðins starfsmanns

· Almenn skrifstofustörf svo sem símsvörun, skjalavarsla, svörun almennra fyrirspurna bæði munnlega og skriflega, móttaka gesta og upplýsingagjöf á vefsíðu og samfélagsmiðlum sendiráðsins.
· Þjónusta við Íslendinga í Svíþjóð og í öðrum umdæmislöndum sendiráðsins, s.s. vegna umsókna um vegabréf og fleira.
· Aðstoð við ýmis verkefni og viðburði á vegum sendiráðsins, t.d. á sviði menningar- og viðskiptamála og almennra kynningarmála.

Unnið er náið með utanríkisráðuneytinu og eftir atvikum opinberum stofnunum á Íslandi og kjörræðismönnum Íslands. Samskipti eru við opinberar stofnanir í Svíþjóð og í öðrum umdæmislöndum sendiráðsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Grunnháskólagráða sem nýtist í starfi.
· Gott vald á íslensku og sænsku í ræðu og riti, ásamt góðri enskukunnáttu.
· Góð tölvukunnátta, Word, Excel, Power Point.
· Góð þekking á opinberum stofnunum, menningu og samfélagi í Svíþjóð og á Íslandi.

Leitað er að einstaklingi sem er lipur í mannlegum samskiptum, hefur ríka þjónustulund og getur unnið undir álagi. Viðkomandi þarf að vera nákvæmur og skipulagður. Gerð er krafa um að viðkomandi hafi ökuréttindi og geti sinnt akstri fyrir sendiráðið.

Starfskjör staðarráðins starfsmanns eru samkvæmt sænskum reglum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Frekari upplýsingar veitir Estrid Brekkan, sendiherra, í síma (+46) 4428300. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]. Umsóknir á íslensku eða sænsku ásamt ferilskrá skulu berast sendiráði Íslands í Stokkhólmi fyrir 10. mars 2018 á netfangið [email protected].  

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum