Hoppa yfir valmynd
26. október 2018 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði árið 2019 vegna þjónustu við fatlað fólk

 Húsavíkurhöfn - mynd Mynd: iStock

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2019. Áætluð framlög næsta árs nema alls 16.770 m.kr.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Áætluð útgjaldaþörf þjónustusvæða nemur samtals 20.680 m.kr. á árinu 2019. Þar af nemur áætlun útsvarstekna vegna 0,25% hlutdeildar þjónustusvæða í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2019 alls 3.980 m.kr. Mismunur áætlaðrar útgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna þjónustusvæða eru áætluð almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2019.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2017 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2017 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2019. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 16.770 m.kr.

Framlögin eru greidd mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Við útreikning framlaganna á árinu 2019 verður gerð sú breyting að heilsuþörf þjónustuþega kemur nú í fyrsta skipti til hækkunar á framlagi.

Áætluð almenn framlög vegna málefna fatlaðra 2019

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum