Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skipað í embætti forstöðumanns Árnastofnunar

Guðrún Nordal mun veita Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum forstöðu næstu fimm árin og tók við skipunarbréfi þess efnis í gær úr hendi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Staða forstöðumanns stofnunarinnar var auglýst hinn 10. október sl. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun sem hefur náin tengsl við Háskóla Íslands. Hlutverk hennar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum, einkum á sviði miðaldafræða, íslenskrar tungu og bókmennta, að miðla þekkingu á þeim fræðum og varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin eða hún á. Guðrún tók við embætti forstöðumanns stofnunarinnar árið 2009.

Guðrún hefur gegnt margvísilegum trúnaðarstörfum í þágu íslensk vísindasamfélags, meðal annars verið formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs (í ráðinu frá 2003) og stjórnarformaður Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs (seinna Innviðasjóðs) 2006-15, stjórnarformaður Nordforsk 2008-14, og í stjórn European Science Foundation 2006-15 og Fróðskaparsetursins í Færeyjum frá árinu 2017.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum