Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 43/2021 Úrskurður

 

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. febrúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 43/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120003

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 1. desember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. nóvember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, í fyrsta lagi með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í þriðja lagi krefst kærandi þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Í fjórða lagi gerir kærandi kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 31. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 6. september 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að kæranda hefði verið veitt alþjóðlega vernd þar í landi þann 6. nóvember 2019. Við umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi með gildistíma frá 16. desember 2019 til 15. desember 2022 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 22. júní 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 11. nóvember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 17. nóvember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 1. desember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 10. desember 2020 ásamt fylgigögnum. Frekari gögn og viðbótarathugasemdir bárust 5. og 15. janúar 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar um málavexti. Þar kemur m.a. fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hafa flúið heimaríki og haldið til Tyrklands og síðan Grikklands þar sem hann hafi sótt um alþjóðlega vernd. Kærandi hafi greint frá því að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið slæmar. Kærandi hafi dvalið í Moria flóttamannabúðunum þar sem hann hafi upplifað öryggisleysi, mikið hafi verið um ofbeldi og vandamál auk þess sem skortur hafi verið á aðstoð og heilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi þurft að yfirgefa flóttamannabúðirnar í kjölfar þess að honum hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Grísk stjórnvöld hafi hvorki útvegað kæranda húsnæði né hafi hann fengið frá þeim framfærslu, hann hafi því þurft að búa á götunni. Þá hafi kærandi ekki fengið atvinnuleyfi í Grikklandi auk þess sem mikill skortur væri á störfum. Kærandi hafi leitað á náðir félagsmálayfirvalda í Grikklandi en ekki fengið aðstoð. Þá hafi kærandi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi þrátt fyrir að hafa þarfnast aðstoðar. Að auki hafi stjórnvöld ekki veitt kæranda aðstoð við að aðlagast grísku samfélagi. Kærandi hafi upplifað fordóma í Grikklandi, m.a. hafi honum verið neitað um þjónustu og munnsöfnuður fólks í hans garð hafi verið ljótur. Kærandi hafi greint frá því að hafa óttast um líf sitt í Grikklandi þar sem mikið hafi verið um ofbeldi. Þá hafi hann leitað til lögreglu en hann hafi ekki fengið aðstoð.

Um aðstæður í Grikklandi vísar kærandi til skjals sem hann kallar fylgiskjal með greinargerð til Útlendingastofnunar en skjalið rekur afstöðu kæranda til réttinda, framkvæmdar og aðstæðna flóttafólks í Grikklandi.

Kærandi fjallar um afstöðu Útlendingastofnunar gagnvart úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020. Kærandi mótmælir afstöðu Útlendingastofnunar og vísar til þess að niðurstaða kærunefndar hafi m.a. byggst á samverkandi áhrifum á stöðu kæranda í Grikklandi, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirri óvissu sem af faraldrinum hafi leitt að öðru leyti. Kærandi telur að aðstæður flóttafólks í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að úrskurðurinn féll, hvorki varðandi stöðu flóttafólks í Grikklandi né varðandi áhrif Covid-19 faraldursins, sem hrundið gæti fordæmisgefandi gildi hans. Kærandi vísar til þess að úrskurðir kærunefndar útlendingamála séu bindandi fyrir Útlendingastofnun og í ljósi 11. gr. stjórnsýslulaga hafi stofnuninni borið að leggja úrskurð kærunefndar til grundvallar í ákvarðanatöku í máli hans. Kærandi byggir á því að þær takmarkanir sem í gildi séu vegna Covid-19 faraldursins í Grikklandi séu víðtækar og íþyngjandi, því hafi Útlendingastofnun borið að meta hvaða afleiðingar þær hafi ásamt því neyðarástandi sem nú sé uppi í Grikklandi vegna Covid-19 faraldursins og eldsvoðans í Moria flóttamannabúðunum og hvaða áhrif það muni hafa á lífsskilyrði kæranda komi til endursendingar. Kærandi telur að Útlendingastofnun geti ekki metið aðstæður með tilliti til getgáta um framtíðarhorfur, enda hafi stofnunin engar forsendur til að meta hvernig Covid-19 faraldurinn muni halda áfram þegar fram líða stundir eða hvaða langtímaáhrif hann muni hafa á lífsviðurværi flóttafólks í Grikklandi. Kærandi fjallar um afstöðu Útlendingastofnunar gagnvart áhrifum eldsvoðans í Moria flóttamannabúðunum en í ákvörðun stofnunarinnar kemur fram að vandséð sé hvernig bruninn í Moria búðunum ætti að hafa áhrif á hag kæranda á meginlandi Grikklands. Kærandi telur að framangreind fullyrðing Útlendingastofnunar byggi á mikilli einföldun og geri lítið úr þeim vanda sem blasi við flóttafólki í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að í kjölfar brunans hafi fjöldi fólks verið flutt yfir á meginlandið og því hafi eftirspurn eftir aðstoð og þjónustu aukist gífurlega hratt sem hafi leitt til þess að fjöldi fólks hafi þurft að hafast við á götum úti við bágar aðstæður.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar m.a. hvað varðar mat stofnunarinnar á aðgengi hans að heilbrigðisþjónustu. Útlendingastofnun hafi metið það svo að kæranda standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi þó að aðgangshindranir séu til staðar. Kærandi vísar til þess að þrátt fyrir að grísk lög mæli fyrir um óhindraðan aðgang flóttafólks að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi sé raunverulegt aðgengi þessa hóps verulega takmarkað, m.a. vegna gríðarlegs niðurskurðar síðustu ár. Kærandi telur að komið sé í veg fyrir aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu með stjórnsýslulegum aðgerðum þar sem gerðar séu kröfur um að fólk framvísi gögnum sem ómögulegt sé fyrir flóttafólk að afla. Þá gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um aðgengi hans að húsnæði og framfærslu. Í ákvörðuninni komi fram að samkvæmt gögnum þyki ljóst að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á aðgengi að húsnæði. Þó hafi Útlendingastofnun sett fyrirvara á þau réttindi og segi að sérstakt húsnæði fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og framboð gistiskýla, sé af skornum skammti auk þess sem vísað sé til nýlegrar löggjafar sem kveði á um að fólk þurfi að yfirgefa húsnæði við verndarveitingu. Kærandi telur að allar líkur séu á því að hann muni þurfa að hafast við á götunni í Grikklandi verði hann sendur þangað aftur og ljóst sé að möguleikar hans til framfærslu og félagslegrar aðstoðar frá grískum yfirvöldum séu nær engir, vísar kærandi til fyrrnefnds fylgiskjals með greinargerð og alþjóðlegrar skýrslu máli sínu til stuðnings. Þá komi fram í hinni kærðu ákvörðun að þó að kærandi hafi ekki fengið aðstoð við framfærslu í Grikklandi standi honum slík aðstoð til boða. Kærandi vísar til þess að samkvæmt grískum lögum ættu þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að njóta sama réttar og grískir ríkisborgarar til framfærslu og félagslegrar aðstoðar. Hins vegar sé langt því frá að allir þeir sem hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi fái slíka aðstoð þar sem kröfur grískra stjórnvalda séu það miklar að þær geri þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd nær ómögulegt að uppfylla þær. Í hinni kærðu ákvörðun komi þá fram að í dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi felist óhindraður aðgangur að atvinnumarkaði landsins þó að atvinnuleysi sé mikið í Grikklandi. Kærandi andmælir þessari fullyrðingu og vísar til þess að hann hafi greint frá því í viðtali að hann hafi ekki haft atvinnuleyfi í landinu og ómögulegt væri að finna vinnu í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að hið mikla atvinnuleysi í Grikklandi komi verst niður á flóttafólki sem þegar glími við ýmis kerfisbundin og eðlislæg vandamál og mismunun. Kærandi vísar til þess að erfiðleikar við útgáfu skattnúmera, erfiðleikar við skráningu á atvinnuleysiskrá fyrir heimilislaust flóttafólk sem og gríðarlegar tafir innan grísku stjórnsýslunnar hindri þennan viðkvæma hóp við leit að atvinnu. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til tveggja alþjóðlegra skýrslna. Þá komi fram í hinni kærðu ákvörðun að það sé mat Útlendingastofnunar að kæranda standi ekki ógn af kynþáttafordómum og mismunun þrátt fyrir frásögn hans um slíka lífsreynslu í Grikklandi frá almenningi sem og lögregluyfirvöldum. Kærandi andmælir þessu mati stofnunarinnar og vísar í alþjóðlegar skýrslur máli sínu til stuðnings.

Kærandi gerir þá athugasemd við mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum hans. Kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að líkamlegt og andlegt heilsufar hans væri slæmt. Kærandi hafi orðið fyrir skotárás í heimaríki auk þess sem hann hafi gengið í gegnum áföll á lífsleiðinni sem hafi áhrif á andlega heilsu hans. Kærandi hafi greint frá því á Göngudeild sóttvarna að hann væri með byssukúlu í líkamanum og að hann fyndi fyrir óþægindum vegna þess. Í ljósi heilsufarsgagna og frásagnar kæranda um að hann væri verulega verkjaður og með skerta hreyfigetu vegna áverka á öxl var óskað eftir því að Útlendingastofnun biði með birtingu ákvörðunar í máli hans þar til frekari gögn lægju fyrir um skerðingu hans en samkvæmt heilsufarsgögnum hafi kærandi þarfnast sjúkraþjálfunar. Kærandi vísar til þess að í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga komi fram að Útlendingastofnun beri að tryggja eins fljótt og kostur sé, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. sömu laga. Eðli máls samkvæmt þyrfti slíkt mat að fara fram áður en Útlendingastofnun tæki ákvörðun. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að ekki verði séð hvernig mat sjúkraþjálfara komi til með að hafa áhrif á mat á sérstaklega viðkvæma stöðu og þess heldur á mat á sérstökum ástæðum kæranda. Kærandi telur í fyrsta lagi að niðurstaða stofnunarinnar hvað varðar mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans sé sett fram án fullnægjandi rökstuðnings. Kærandi telur að Útlendingastofnun uppfylli ekki þær lágmarkskröfur sem gerðar séu til efnis rökstuðnings, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu hans og vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá fjallar kærandi um úrskurð kærunefndar í máli nr. KNU17040035 frá 2. júní 2017 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Útlendingastofnun hafi ekki lagt fullnægjandi grundvöll að ákvörðun sinni með því að hafa m.a. ekki kallað eftir skýrslum lækna um heilsufar umsækjanda. Þá vísar kærandi einnig til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU17040017 frá 27. júní 2017 þar sem umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi var send aftur til Útlendingastofnunar til efnismeðferðar. Með vísan til þessa telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar hafi verið verulega áfátt. Því sé gerð sú krafa að hin kærða ákvörðun verði ógilt og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar varðandi nánara inntak og heimfærslu ákvæðanna. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að í fyrsta lagi skuli taka mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til fyrrnefnds fylgiskjals varðandi aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér fyrir hann, bæði líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Kærandi fjallar um reglugerð nr. 276/2018 sem breytti reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærandi vísar til þess að í 32. gr. a í umræddri reglugerð komi fram að þau viðmið sem sett séu fram í greininni séu nefnd í dæmaskyni og því sé ekki um tæmandi talningu að ræða á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Ljóst sé að atriði sem talin séu upp í dæmaskyni í reglugerðinni geti ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi telur að aðstæður kæranda í Grikklandi falli undir þau almennu viðmið sem sett séu fram í reglugerðinni. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110022 frá 25. mars 2020 þar sem nefndin fjallaði um hindranir sem flóttafólk mæti í Grikklandi. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020. Með vísan til framangreinds telur kærandi að hann verði fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi verði honum gert að snúa þangað aftur. Ennfremur sé fullvíst að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi. Því sé óumdeilanlegt að sérstakar ástæður séu uppi í máli kæranda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á Íslandi.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar að ótækt sé að beita heimildinni í a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess að frelsi sé í hættu eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð.  Kærandi telur að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Þá telur kærandi að mál hans skuli tekið til efnislegrar meðferðar með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar. Kærandi vísar til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi þróað aðferðarfræði sem greini ólögmæta mismunun sem slíka. Frá árinu 2010 hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, öðru gildi um þá sem hlotið hafi alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi vísar til fyrrnefnds fylgiskjals þar sem vitnað sé til heimilda þar sem fram komi að staða viðurkennds flóttafólks með dvalarleyfi í Grikklandi sé síst skárri en þeirra sem bíði niðurstöðu í máli sínu. Kærandi vísar til dóma Evrópudómstólsins máli sínu til stuðnings.

Kærandi vísar til þess að hann hafi greint frá mikilli andlegri vanlíðan, bæði í viðtali hjá Útlendingastofnun og í samtölum við heilbrigðisstarfsmenn á Göngudeild sóttvarna sem hann telji varpa ljósi á viðkvæma stöðu hans. Í samræmi við skyldu íslenskra stjórnvalda til að framkvæma ítarlegt einstaklingsbundið mat á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í hverju máli, telur kærandi að kærunefnd útlendingamála sé ekki stætt á öðru en að hlutast til um öflun sálfræðimats á kæranda.

Í viðbótarathugasemdum kæranda fjallar hann m.a. um úrskurði kærunefndar nr. KNU20110005 og KNU20110009 frá 10. desember 2020. Kærandi er ósammála niðurstöðu kærunefndar og telur að það liggi í augum uppi að enn ríki mikil óvissa í  heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins verði á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Á degi hverjum breytist aðstæður í ríkjum heimsins og óhætt sé að segja að framvinda Covid-19 faraldursins sé ófyrirsjáanleg. Óvissu um áhrif faraldursins hér á landi sé hægt að heimfæra yfir á Grikkland sem hafi glímt við gríðarmiklar efnahagslegar áskoranir síðustu ár. Þá vísar kærandi til úttektar grískrar endurskoðunarskrifstofu þar sem frekari efnahagsleg krísa sé talin vera framundan og erfitt sé að spá fyrir um framtíðarhorfur landsins. Kærandi telur því fullyrðingar kærunefndar í ofangreindum úrskurðum vera óvarlegar og ótímabærar þar sem óvissan sem fylgi faraldrinum sé hvergi nærri liðin hjá. Nýtt afbrigði faraldursins breiðist út víða um heim sem sé talin vera 70% meira smitandi og hafi hærri smitstuðul en fyrra afbrigðið. Kærandi vísar til þess að hið nýja afbrigði hafi borist til Grikklands og vegna hárrar tíðni smita á síðustu vikum séu miklar samfélagslegar takmarkanir í landinu, m.a. útgöngubann. Kærandi vísar til þess að stjórnvöld í Grikklandi hafi tengt útbreiðslu Covid-19 faraldursins við flóttafólk og með því kynt undir fordóma í garð flóttafólks, sem þegar hafi verið miklir. Þá sé ekki hægt að segja til um hvaða áhrif Covid-19 faraldurinn muni hafa til langs tíma á heilsufar flóttafólks og hversu rík þjónustuþörf þeirra sem upplifað hafa þessar takmarkandi aðstæður muni verða. Kærandi telur það ábyrgðarlaust að horfa til þess að um tímabundið ástand sé að ræða og komast að þeirri niðurstöðu að óhætt sé að senda fólk í framangreindar aðstæður. Þá áréttar kærandi að umfjöllun í fylgiskjali með greinargerð til Útlendingastofnunar sé ekki sjálfstæð heimild sem slík, gefin út af Rauða krossinum, heldur byggi á áreiðanlegum heimildum sem talsmaður kæranda hafi aflað og varpi ljósi á þann aðbúnað og aðstæður sem flóttafólk búi við í Grikklandi.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hefur framvísað dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 15. desember 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);

·         Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

·         Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);

·         Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

·         EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);

·         Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

·         Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

·         Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

·         Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);

·         Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);

·         Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

·         World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);

·         Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 18. febrúar 2021) og

·         Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 18. febrúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitölu (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefna kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið kynntar lagabreytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveða á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhafar alþjóðlegrar verndar sem dvelja í svokölluðu ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, er skylt að yfirgefa þau innan 30 daga. Þó eru undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM) útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fari út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.    

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála á síðasta ári fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar á Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fá einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (Manpower Employment Organization, gr. Οργανισμός Απασχόλησης Εργατικού Δυναμικού (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin eru m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára einstæður karlmaður. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna dags. 7. október 2020, kemur fram að greinilegar afleiðingar skotáverka sjáist á röntgenmyndum af lungum. Um sé að ræða töluverða rúmmáls minnkun á hægra lunga og miðmæti sé dregið yfir til hægri. Þá sé veruleg fleiðruþykknun eða fleiðruvökvi hægra megin. Þá megi greina röntgenþétta aðskotahluti bæði í brjóstholi og í kviðvegg. Vinstra lunga sé þó án breytinga. Í samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 20. október 2020, kemur fram að kærandi hafi fengið tilvísun til sjúkraþjálfara vegna vandamála í öxl. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. nóvember 2020, kemur fram að kærandi sofi illa og sé hræddur við að verða skotinn auk þess sem hann hafi áhyggjur af afleiðingum skotanna. Þá finni kærandi fyrir miklum verkjum í kvið og hrygg ásamt höfuðverk. Honum hafi verið ávísað verkjalyfjum vegna þessa. Í bréfi frá sjúkraþjálfara, dags. 15. desember 2020, kemur fram að skoðun á kæranda hafi ekki sýnt fram á vandamál í öxl, dofi hafi verið áberandi í framhandlegg ventralt og niður í vísi- og þumalfingur, vantað hafi upp á styrk í tvíhöfða (e. biceps) hægra megin sem og extensor carpi radialis hægra megin. Einkennin passi við 6. hálstaug hægra megin og ekki sé ólíklegt að hún hafi orðið fyrir sköddun við byssuskotið. Kæranda hafi verið kenndar æfingar en ljóst sé að um varanlegan skaða sé að ræða og því ekki haldið áfram með sjúkraþjálfun. Í bráðamóttökuskrá Landspítala, dags. 19. desember 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa orðið fyrir taugaskaða vegna skots sem hann fékk í hægra herðablað og höndin hafi visnað mikið síðastliðin ár, kraftur skertur og miklir taugaverkir séu í hendinni. Kæranda hafi verið ávísað verkjastillandi lyfjum og vísað til heimilislæknis í endurmat og eftirfylgd. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing. Kærandi hafi virst vera undir áhrifum lyfja og talað um að hann vildi lyf vegna höfuðverks og verks þar sem hann hafi verið skotinn auk þess sem hann ætti erfitt með að sofa.

Í greinargerð kæranda er óskað eftir því að kærandi verði látinn undirgangast sálfræðimat. Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 13. janúar 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar þann 15. janúar sl. Með vísan til framangreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla sálfræðimats.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé ekki í boði í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan. 

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, en m.a. hafa heilsufarsvandamál hans verið rakin sem og sú aðstoð sem hann hefur fengið hér á landi. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikkland þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn.  Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi.

Kærunefnd vill þá árétta að líkt og að framan greinir, og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá telur kærunefnd það sama eiga við um útgáfu kennitalna (AMKA) til flóttamanna, sem veitir þeim m.a. aðgang að heilbrigðisþjónustu í landinu. Í fyrrgreindum málum var það m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna. Í því máli sem hér er til meðferðar, er kærandi einstæður, að mestu heilbrigður og vinnufær karlmaður sem kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. afla sér skattnúmers og kennitölu, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann óttist um öryggi sitt í Grikklandi og að hann hafi orðið fyrir ofbeldi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Grikklandi sveiflast nokkuð en samkvæmt síðarnefndu vefsíðunni er nýgengi smita í Grikklandi síðustu 2 vikur með því lægsta á meðal EES ríkjanna. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, vinnustöðum og almenningssamgöngum, banni við að ferðast innanlands nema vegna sérstakra ástæðna, landamæraskimun og sóttkví. Til að greiða fyrir áframhaldandi málsmeðferð og þjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa yfirvöld útlendingamála í Grikklandi (e. Asylum Services Offices) opnað rafrænan vettvang þar sem einstaklingar eiga þess kost að sækja um vernd. Hyggjast einstaklingar sækja um vernd þurfa þeir að bóka viðtal í gegnum samskiptaforritið Skype. Skipulögð viðtöl við umsækjendur um alþjóðlega vernd fara þó fram með venjubundnum hætti og hafa aðrar ráðstafanir verið gerðar í tengslum við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, þ. á m. viðkvæmra einstaklinga og umsókna um fjölskyldusameiningu. Jafnframt hafa stjórnvöld framlengt gildistíma á útrunnum dvalarleyfisskírteinum sjálfkrafa en ný dvalarleyfisskírteini er hægt að sækja með því að panta tíma fyrirfram hjá yfirvöldum útlendingamála. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna aðstoðað grísk stjórnvöld í baráttunni við veiruna, m.a. með því að veita aðstoð til flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í landinu. Hefur stofnunin m.a. veitt viðeigandi stuðning svo flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisstofnunum og annarri þjónustu. Eins og áður sagði hefur nýgengi smita fækkað verulega á síðustu vikum eftir fjölgun í haust. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við lýði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á þremur tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá hefur bólusetning hafist í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að það ástand sem nú ríki, sem kærunefnd hefur ekki forsendur til að telja annað en tímabundið, komi til með hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí sl., telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindu máli. Í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar í framangreindum úrskurði kemur m.a. fram að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrðu á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar stofnunarinnar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í maí sl. m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu í Grikklandi fyrr í haust, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. í Grikklandi. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 31. ágúst 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar þeirra hafa ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða er til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná háu alvarleikastigi til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er af yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort raunverulegum líkamlegum skaða eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. 70. mgr. ákvörðunarinnar. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væri bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi and Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. gr., en dómarnir setja mjög háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að lög Evrópusambandsins séu byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki deila með öðrum aðildarríkjum þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að því gagnkvæma trausti á að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. til hliðsjónar dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki óhugsandi að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi, verði hann fluttur til þess ríkis, sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmálanum, sbr. t.d. til hliðsjónar dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Í ljósi þess, ef byggt yrði á því að sú forsenda að reglum sáttmálans sé fylgt af aðildarríkjum sáttmálans sé óhrekjanleg yrði það ekki samrýmanlegt þeirri skyldu að túlka og beita íslenskum lögum til samræmis við grundvallarmannréttindi svo sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. einnig 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, og skiptir þar ekki máli hvort sú meðferð tengist flutningi umsækjanda til viðtökuríkis, aðbúnaði meðan á umsóknarferli stendur eða eftir að hann hefur fengið niðurstöðu í því ferli, sbr. til hliðsjónar N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr. og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Af þeim sökum hefur Evrópudómstóllinn talið að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök sýna fram á að raunveruleg hætta sé á að hann verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar opinbert afskiptaleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna þeirrar sérstaklega viðkvæmu aðstöðu sem hann kann að vera í, lendir, án tillits til óska hans eða persónulegra ákvarðana, í slíkri stöðu efnislegrar sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, svo sem fæði, hreinlæti, þaki yfir höfuðið, sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og einnig til hliðsjónar Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra gagna, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. þau viðmið sem rakin voru hér að framan. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. til hliðsjónar Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 11. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr. og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi, við mat stofnunarinnar á stöðu kæranda og  við umfjöllun stofnunarinnar um Covid-19 faraldurinn.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærandi gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar á heilsu hans, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, og mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. Skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Jafnframt er ljóst að fyrir utan tilvísun til sérstaklega viðkvæmrar stöðu fylgdarlausra barna í 6. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er hvergi vikið að réttaráhrifum þess að einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á grundvelli 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess fengið tækifæri til framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Í greinargerð kæranda vísar hann til þess að Útlendingastofnun hafi verið upplýst um stöðu hans og meðvituð um að hann ætti tíma hjá sjúkraþjálfara þann 3. nóvember sl. en samt sem áður ákveðið að hvorki afla gagna um stöðu hans né bíða eftir frekari upplýsingum og gæta þannig að því að málið yrði nægjanlega upplýst áður en ákvörðun yrði tekin í málinu. Þann 15. desember 2020 óskaði kærunefnd eftir umræddum gögnum frá kæranda og bárust gögnin þann 5. janúar 2021. Kærunefnd telur að ekki verði annað séð en að stofnunin hafi gripið til viðeigandi úrræða í kjölfar frásagnar kæranda og þau gögn sem kærunefnd hafa borist benda ekki til þess að ástæða hafi verið til að afla frekari gagna. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi ekki verið ábótavant hvað þetta varðar. 

Kærandi telur að íslenskum stjórnvöldum sé þá skylt, skv. 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar, að taka umsókn hans til efnismeðferðar. Í því sambandi vísar kærandi til nýlegra dóma Evrópudómstólsins sem hann telur að hafi fordæmisgildi í málinu, en talsmaður kæranda telur að dómurinn hafi slegið því föstu að ekki sé heimilt að mismuna einstaklingum eftir því hvort viðkomandi hafi hlotið alþjóðlega vernd eða sé enn í umsóknarferli ef aðstæður sem þeirra bíða í viðtökuríki séu viðlíka slæmar.

Kærunefnd hefur áður fjallað um ofangreinda málsástæðu í úrskurði nr. KNU19110024, dags. 17. febrúar 2020. Í úrskurðinum var tekið fram að í umræddum dómum Evrópudómstólsins, í máli Jawo gegn Þýskalandi, nr. C-163/17 og sameinuðum málum Ibrahim og fl. gegn Þýskalandi, nr. C-297/17, C-318/17, C-319/17 og C-438/17, reyndi m.a. á túlkun á 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins (ESB) um grundvallarréttindi. Þátttaka Íslands í Dyflinnarsamstarfinu byggir á þátttöku í Schengen-samstarfinu, sbr. Brussel-samninginn sem fullgiltur var að hálfu Íslands þann 26. maí 2000, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Ísland er ekki aðili að ESB né aðili að sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þá hefur Dyflinnarreglugerðin (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 604/2013) ekki verið innleidd í íslensk lög að undanskildum ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga og er skuldbinding íslenska ríkisins í Dyflinnarsamstarfinu fyrst og fremst af þjóðaréttarlegum toga. Þrátt fyrir framangreint hafa íslensk stjórnvöld og dómstólar þó í framkvæmd vísað að einhverju leyti til dóma Evrópudómstólsins við túlkun á ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar í því skyni að tryggja einsleitna framkvæmd reglugerðarinnar. Slík sjónarmið eiga hins vegar ekki við í máli kæranda enda hefur hann hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi og því reynir ekki á beitingu ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar í málinu. Þá er Ísland líkt og áður greinir ekki aðili að sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og hefur tilvísun kæranda í framangreinda dóma, sem varða að stóru leyti túlkun á 4. gr. sáttmálans, því takmarkaða eða enga beina þýðingu fyrir íslenskan rétt. Þá er Ísland ekki aðili að sameiginlega evrópska hæliskerfinu (Common European Asylum System, CEAS) sem byggist fyrst og fremst á tilskipunum Evrópusambandsins um málsmeðferð, móttökuskilyrði og viðmið veitingar alþjóðlegrar verndar. Kærunefnd fellst því ekki á það með kæranda að framangreindir dómar Evrópudómstólsins hafi fordæmisgildi fyrir íslenskan rétt.

Engu að síður er hafið yfir vafa að sú vernd sem felst í 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu á við alla einstaklinga sem fluttir eru frá aðildarríki sáttmálans til annarra landa, hvort sem grundvöllurinn er brottvísun, frávísun, framsal, eða flutningur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Tilvísuð ummæli dóms Evrópudómstólsins sem m.a. koma fram í dómi hans í máli Ibrahim o.fl. er því ekki nýmæli heldur í samræmi við þau viðmið sem nefndin hefur stuðst við. Hins vegar er ljóst, eins og fjallað hefur verið um að ofan, að aðstæður kæranda, sem er handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi, eru ekki af því alvarleikastigi að þær nái þeim háa þröskuldi sem dómar Mannréttindadómstól Evrópu og Evrópudómstólsins hafa sett fyrir broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstólsins í Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og vísað var til hér að framan og ummæli í dómum Evrópudómstólsins í málum Jawo og Ibrahim sem talsmaður kæranda vísaði sjálfur til. Kærunefnd telur að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd sem sendir eru aftur til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi séu almennt ekki sambærilegar þrátt fyrir staðhæfingar talsmanns kæranda um annað. Við það mat vísar kærunefnd til fyrri umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi en þar kemur fram að þeir hafi hlotið rétt til dvalar í Grikklandi og njóta því, ólíkt þeim sem eru í umsóknarferli, sambærilegra réttinda og ríkisborgarar Grikklands, einkum hvað varðar aðgengi að atvinnumarkaði, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.

Kærunefnd áréttar sérstaklega í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli 2. eða 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hvert mál er því skoðað í ljósi þeirra viðmiða sem nefndinni ber að fara eftir, hvort sem þau viðmið eiga stoð í íslenskum lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins. Í þessu sambandi bendir kærunefnd á að nefndin hefur aldrei fengið til umfjöllunar ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem einstaklingur sem sótt hefur um vernd í Grikklandi er endursendur þangað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nefndin hefur því ekki fjallað um hvort slík endursending sé ósamrýmanleg 2. eða 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. Séu aðstæður sambærilegar, eins og talsmaður kæranda heldur fram, kann að vera ástæða fyrir Útlendingastofnun, að undangenginni ítarlegri skoðun á aðstæðum í Grikklandi, að endurmeta þá stefnu að senda ekki umsækjendur þangað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nefndin minnir jafnframt á að nokkur önnur aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa á síðustu árum endursent umsækjendur þangað á grundvelli nefndrar reglugerðar.

Með greinargerð kæranda fylgdi skjal sem í greinargerð er kallað „Umfjöllun Rauða krossins á Íslandi um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi“ og er frá september 2020. Skjalið ber með sér að vera útbúið af Rauða krossi Íslands, þeirri stofnun sem hefur með höndum talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í greinargerð er vísað til skjalsins eins og það sé sjálfstæð og hlutlæg heimild um aðbúnað flóttamanna í Grikklandi og lýsi staðreyndum en ekki röksemdum. Skjalið innheldur m.a. umfjöllun um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi og er að því leyti villandi og óviðkomandi því máli sem hér er til umfjöllunar sem fjallar um umsækjanda sem er með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Þá er í upphafi skjalsins vísað á villandi hátt til hollensks dóms sem felldi úr gildi ákvörðun um endursendingu mæðgna til Grikklands. Skjalið er einnig haldið öðrum annmörkum sem rýra gildi þess. Í skjalinu er vísað til nokkurra áreiðanlegra heimilda alþjóðastofnanna og til ECRE, sem kærunefnd hefur einnig vísað til í sínum úrskurðum, en einnig til hagsmunasamtaka sem berjast fyrir auknum réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Þrátt fyrir að skjalið kunni að formi til að stafa frá samtökum sem telja sig hlutlaus og óháð, ber innihald skjalsins ekki með sér að vera hlutlæg umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki heldur hluti af röksemdafærslu kæranda fyrir því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar hér á landi. Þýðing skjalsins fyrir málið tekur því mið af því.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.


 

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 31. ágúst 2020. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og verða alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

 

                                                                                                                               Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir    

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum