Hoppa yfir valmynd
10. mars 2020 Utanríkisráðuneytið

Pekingsáttmálinn ítrekaður og staðfestur á ný

Frá upphafi fundarins í gær. Ljósmynd: UN Women - mynd

Árlegur fundur kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York er fámennur að þessu sinni vegna kórónaveirunnar. Aðeins fastanefndir ríkjanna ásamt kvennasamtökum í New York taka þátt í fundinum í ár. Engu að síður hófst fundurinn í gær og samþykkt var yfirlýsing þar sem Pekingsáttmálinn frá 1995 var ítrekaður og staðfestur á ný.

Þema fundarins í ár – 64. fundar Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW64) – er stöðumat á réttindum kvenna 25 árum eftir samþykkt Pekingsáttmálans. Samkvæmt frétt UN Women á Íslandi er yfirleitt gefin út pólitísk yfirlýsing í lok fundar en í ár liggur fyrir samkvæmt úttektum og stöðumati á stöðu kvenna og stúlkna gagnvart Pekingsáttmálanum, að markmiðum sáttmálans hafi ekki verið náð. „Auk þess virðist sem heimsmarkmiðum SÞ verði ekki náð ef hraði framfara í þágu kynjajafnréttis og réttinda kvenna helst óbreyttur,“ segir í fréttinni.

UN Women segir að um leið og leiðtogar aðildarríkja SÞ endurstaðfesti og ítreki pólitískan vilja til breytinga, viðurkenni þeir um leið nýjar áskoranir við að jafna stöðu kvenna og stúlkna sem krefjast öflugra aðgerða og samstillts átaks ríkjanna, sérstaklega þegar kemur að eftirfarandi atriðum:

  • Gera öllum stúlkum og konum kleift að mennta sig, með sérstöku tilliti til iðn- og tæknigreina
  • Tryggja konum og stúlkum jafna og raunverulega þátttöku til áhrifa og valda á öllum stigum og sviðum samfélagsins
  • Tryggja konum efnahagslega valdeflingu, t.a.m. jöfn atvinnutækifæri, jöfn laun, félagslegt öryggi og lánshæfi.
  • Takast raunverulega á við misskiptingu á ólaunuðum umönnunar- og heimilisstörfum sem konur og stúlkur sinna í mun meiri mæli
  • Takast raunverulega á þeim misskiptu áhrifum sem loftslagsbreytingar og náttúruhamfarir hafa á konur og stúlkur
  • Afnema skaðlega siði og ofbeldi gegn konum og stúlkum
  • Vernda konur og stúlkur í vopnuðum átökum og tryggja aðkomu kvenna í friðarviðræðum og málamiðlunum.
  • Viðurkenna rétt kvenna og stúlkna til að hljóta heilbrigðisþjónustu
  • Takast á við hungur og vannæringu kvenna og stúlkna.

Í frétt UN Women segir að þar að auki hafi ríkin lýst yfir vilja til að útrýma lögum sem mismuna konum og stúlkum með einhverjum hætti, brjóta niður kerfislægar hindranir sem konur verða fyrir innan kerfa og félagsleg norm sem mismuna konum og stúlkum á einhvern hátt, auk þess að berjast gegn stöðluðum ímyndum kynjanna sem hindra framgang kvenna og stúlkna, meðal annars í fjölmiðlum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum