Hoppa yfir valmynd
30. júní 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Bóluefni gegn apabólu væntanlegt í lok júlí

Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa með þátttöku í Evrópusamstarfinu HERA tryggt sér birgðir af bóluefninu Jynneos gegn apabólu. Ísland fær samtals 1.400 skammta og er efnið væntanlegt til landsins í lok júlí. Samningur um þetta var undirritaður fyrir skömmu.

Bóluefnið Jynneos er sambærilegt bóluefninu Imvanex. Það er skráð til notkunar fyrir fullorðna við bólusótt og talið að það veiti einnig vernd gegn apabólu. Gert er ráð fyrir að bólusetning verði boðin þeim sem verða útsettir fyrir apabólu, sérstaklega einstaklingum með undirliggjandi ónæmisbælingu og heilbrigðisstarfsmönnum. Bóluefnið getur einnig veitt vernd ef gefið fyrstu dagana eftir útsetningu.

Evrópusambandið hefur annast kaup á bóluefninu. Því er úthlutað til þeirra þjóða sem taka þátt í Evrópusamstarfinu HERA og EU4health og er úthlutunin hlutfallsleg í samræmi við íbúafjölda hverrar þjóðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum