Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Endurnýjun samnings um lögfræðiráðgjöf til innflytjenda

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, rituðu í dag undir nýjan samning um að Mannréttindaskrifstofa Íslands annist áfram lögfræðiráðgjöf við innflytjendur þeim að kostnaðarlausu. Mannréttindaskrifstofan hefur sinnt slíkri þjónustu síðastliðin þrjú ár og er samningurinn endurnýjaður í ljósi vaxandi eftirspurnar eftir ráðgjöf og góðrar reynslu af verkefninu. Eygló Harðardóttir sagði við undirritunina að sú faglega ráðgjöf sem Mannréttindaskrifstofan veiti innflytjendum sé einkar mikilvæg til að gæta réttar þeirra og tryggja góða aðlögun að samfélaginu.

Fengin reynsla sýnir að veruleg og vaxandi þörf er fyrir þessa þjónustu.  Á síðasta ári veitti Mannréttindaskrifstofan 513 viðtöl samanborið við 471 árið 2013 og 445 árið 2012. Innflytjendur óska helst eftir ráðgjöf á sviði fjölskylduréttar, einkum vegna skilnaðar-, forsjár- og umgengnismála, en ýmis önnur mál koma einnig við sögu, svo sem ráðgjöf vegna dvalar- og atvinnuleyfa, húsnæðismála, fjárhagsörðugleika og annað sem varðar félagsleg réttindi innflytjenda. Óski einstaklingur eftir að hafa túlk með sér í viðtalið er það honum að kostnaðarlausu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, sagði að ráðgjafar skrifstofunnar finni fyrir mikilvægi þess að innflytjendur fái persónulega leiðsögn um réttindi sín og skyldur. Ráðgjöfin hafi spurst út bæði meðal innflytjenda og í stjórnsýslunni sem skýri vaxandi eftirspurn eftir henni.

Mannréttindaskrifstofa Íslands fær fimm milljónir króna til verkefnisins samkvæmt samningnum og er fénu fyrst og fremst ætlað að standa straum af kostnaði vegna lögfræðiráðgjafar og túlkaþjónustu.

Lögfræðiráðgjöf Mannréttindaskrifstofu Íslands við innflytjendur er veitt í húsnæði skrifstofunnar, Túngötu 14, á þriðjudögum kl. 14–20 og á föstudögum kl. 9–14. Tekið er við tímapöntunum í síma 552 2720 eða í tölvupósti: [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum