Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 30/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. júlí 2020
í máli nr. 30/2020:
Snæland Grímsson ehf.
gegn
Strætó bs. og
Hópbílum hf.

Lykilorð
Fjárhagslegt hæfi. Tæknilegt hæfi. Kröfu um stöðvun útboðs hafnað.

Útdráttur
Hafnað var kröfu kæranda um að stöðva um stundarsakir útboð um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 2. júlí 2020 kærir Snæland Grímsson ehf. útboð Strætó bs. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 14799 auðkennt „Sameiginleg akstursþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að ganga að tilboði Hópbíla hf. í hinu kærða útboði. Þess er jafnframt krafist að hið kærða útboð verði ógilt í heild sinni og lagt verði fyrir varnaraðila að auglýsa það að nýju. Þá er þess krafist að kærunefnd láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til kröfu kæranda um að hið kærða útboð verði stöðvað um stundarsakir á meðan leyst er endanlega úr kæru.

Í mars 2020 auglýsti varnaraðili hið kærða útboð og var óskað eftir tilboðum í sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Í grein 0.8 í útboðsgögnum kom fram að samið yrði við þann aðila sem ætti hagkvæmasta gilda tilboðið á grundvelli lægsta verðs. Í grein 0.10.3 kom fram að bjóðandi skyldi hafa yfir að ráða nægjanlegum fjölda sérútbúinna hópferðarbifreiða sem uppfylltu kröfur útboðsgagna. Skyldi bjóðandi skila með tilboði sínu skrá með greinargóðum upplýsingum yfir allar sérútbúnar hópferðabifreiðar sem boðnar eru til þjónustunnar. Í þeirri skrá skyldi meðal annars tilgreina þann fjölda og stærð bifreiða sem bjóðandi hefði til umráða auk útlistunar á því hvernig þær bifreiðar uppfylltu kröfur sem nánar voru tilgreindar í kafla 2.0.7. Í kafla 2.0.7 í tæknilýsingu útboðsgagna kom meðal annars fram að vél hópferðabifreiða skyldi uppfylla „kröfur um útblástursmengun sem gerðar [væru] samkvæmt þeim stöðlum sem í gildi [væru] fyrir bifreiðina á hverjum tíma og að lágmarki kröfu EURO VI staðals um losunarmörk, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 595/2009 með síðari breytingum“. Þá kom einnig fram að kaupandi hefði áætlað fjölda hópferðabifreiða sem þyrfti á háannatíma til þess að sinna akstursþjónustu fatlaðs fólks og skyldi seljandi miða tilboð sitt við 45 hópferðabifreiðar fyrir níu farþega, sérstaklega útbúnar til flutnings á hreyfihömluðum einstaklingum. Í hverri bifreið skyldu vera tvö stæði fyrir hjólastóla og ekki færri en fjögur sæti í farþegarými. Þá kom fram að þann 1. júlí 2020, þegar samningsbundinn akstur átti að hefjast, skyldi seljandi hafa yfir að ráða a.m.k. 25 sérútbúnum hópferðabifreiðum og þann 1. september sama ár a.m.k. 45 sérútbúnum bifreiðum.

Tilboð voru opnuð 7. maí 2020 og bárust tilboð frá sex fyrirtækjum. Upplýst var að kostnaðaráætlun varnaraðila næmi 4,5 milljörðum króna. Ferðó ehf. var lægstbjóðandi með tilboð að fjárhæð 2.953.820.000. Tilboð kæranda sem nam 3.776.300.000 krónum var þriðja lægsta tilboðið en tilboð Hópbíla hf. sem nam 4.244.715.000 krónum var fimmta lægsta tilboðið sem barst. Meðal gagna málsins er minnisblað ráðgjafa varnaraðila frá 19. júní 2020 þar sem er að finna greiningu og mat á því hvort tilboð, þar með talið tilboð kæranda, fullnægðu kröfum útboðsgagna. Í minnisblaðinu kemur fram að kærandi hafi ekki fullnægt kröfum um faglegt og tæknilegt hæfi og því hafi tilboði hans verið hafnað. Jafnframt er fjallað um mat á tilboði Hópbíla hf. og þeim reglum sem gilda um losunarmörk, þar með talið EB reglugerð nr. 595/2009 sem varðar EURO VI staðalinn. Rökstutt er að boðnar bifreiðar hafi uppfyllt umrædda kröfu, en í þeim efnum er m.a. bent á að upplýsingar um losunarstaðal séu ekki skráðar í bifreiðaskrá en að það hafi verið skilyrði nýskráningar umræddra bifreiða á sínum tíma að þær uppfylltu skilyrði EURO VI staðalsins.

Með tölvubréfi 20. júní 2020 tilkynnti varnaraðili að hann hefði samþykkt að taka tilboði Hópbíla hf. sem hefði átt lægsta gilda tilboðið í útboðinu.

Kærandi byggir að meginstefnu til á því að boðnar bifreiðar Hópbíla hf. fullnægi ekki lágmarkskröfum útboðsgagna. Þannig uppfylli boðnar bifreiðar einungis losunarmörk EURO V staðalsins en ekki EURO VI, eins og áskilnaður hafi verið gerður um. Þá beri gögn málsins ekki með sér að umræddar bifreiðar fullnægi kröfum 10. og 11. mgr. kafla 2.0.7 í tæknilýsingu útboðsgagna, en fyrir liggi að bjóðandinn þurfi að gera einhverjar breytingar á boðnum bifreiðum til þess að fullnægja kröfum útboðsgagna. Þá hafi jafnræði bjóðenda verið raskað með því að heimila Hópbílum hf. að leggja fram viðbótargögn til skýringar á tilboði sínu eftir skil tilboða. Jafnframt hafi forsendur útboðsins breyst þar sem varnaraðili hyggist gera notendum akstursþjónustunnar kleyft að panta þjónustuna í gegnum smáforrit og fylgjast með bifreiðum í rauntíma. Telur kærandi að í þessu felist breytingar á þeirri þjónustu sem hafi verið boðin út og því hafi forsendur fyrir tilboðum bjóðenda brostið. Þá hafi það aðeins staðið Hópbílum hf. til boða að aðlaga og breyta tilboði sínu til að mæta breyttum forsendum.

Varnaraðili byggir að meginstefnu til á því að tilboð kæranda hafi verið ógilt þar sem hann hafi ekki fullnægt áskilnaði útboðsgagna um reynslu, sbr. 2. mgr. greinar 0.10.3 í útboðsgögnum. Þá hafi kærandi ekki lagt fram skrá með upplýsingum um fullnægjandi fjölda bifreiða til samræmis við lágmarkskröfur 3. mgr. sömu greinar, auk þess sem eiginleikar framboðinna bifreiða hafi ekki verið í samræmi við kröfur tæknilýsingar. Jafnframt hafi kærandi ekki lagt fram lýsingu á gæðastjórnunarkerfi eins og krafa hafi verið gerð um í 4. mgr. greinar 0.10.3. Tekið er fram að kærandi byggi raunar ekki á því í kæru að tilboð hans hafi uppfyllt kröfur útboðsgagna. Þá hafi tilboð Hópbíla hf. fullnægt öllum kröfum útboðsgagna og varnaraðila því verið skylt að taka tilboðinu sem lægsta gilda tilboðinu sem barst. Fyrirtækið hafi skilað upplýsingum um áskilinn fjölda bifreiða í samræmi við útboðsgögn, en um hafi verið að ræða gögn úr bifreiðaskrá um 41 bifreið og gögn um átta nýjar bifreiðar. En ekki hafi verið gerð krafa um að allar bifreiðarnar uppfylltu kröfur um eiginleika 1. júlí 2020 heldur hafi hvað varðar hluta bifreiðanna verið miðað við seinna tímamark eins og fram komi í útboðsgögnum. Þá hafi varnaraðili óskað nánari upplýsinga og skýringa frá fyrirtækinu hvað varðar umræddar bifreiðar, þar með talið um hvernig kröfur um útblástursmengun og losunarmörk væru uppfylltar, sbr. 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Hafi meðal annars verið litið til EB reglugerðar nr. 595/2009 og hafi nokkrar bifreiðar verið teknar til skoðunar af handahófi sem hafi uppfyllt staðalinn. Hafi elstu bifreiðarnar uppfyllt staðalinn og verði að leggja til grundvallar að hinar yngri geri það einnig enda séu kröfur til útblástursmengunar þeirra strangari. Jafnframt beri að leggja til grundvallar í ljósi gildandi reglna að bifreiðarnar hefðu ekki verið skráðar hefðu þær ekki uppfyllt umræddar kröfur um losunarmörk.

Af hálfu Hópbíla hf. er einkum byggt á því að tilboð fyrirtækisins hafi verið lægsta gilda tilboðið í útboðinu og því hafi varnaraðila borið að taka því. Bent er á að vegna kröfu um að bifreiðar uppfylltu EURO VI staðalinn hafi verið óskað frekari upplýsinga frá fyrirtækinu og hafi verið brugðist við því. Bifreiðarnar hafi verið skráðar eftir 31. desember 2013 og hafi samkvæmt þágildandi lögum og reglugerðum að lágmarki þurft að uppfylla kröfur umrædds staðals, sbr. EB reglugerð 595/2009. Þá er lögð áhersla á að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup og beri því að aflétta stöðvun samningsgerðar, auk þess sem brýnir almannahagsmunir krefjist þess.

Niðurstaða

Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér tilboð Hópbíla hf. og önnur gögn málsins, þar með talið samskipti varnaraðila og kæranda eftir að tilboð voru opnuð sem lutu meðal annars að eiginleikum boðinna bifreiða og því hvernig kröfum um útblástur væri fullnægt. Í ljósi fyrirliggjandi gagna og þeirra reglna sem gilda um losunarmörk telur nefndin, eins og mál þetta liggur fyrir nú, ekki hafa verið leiddar verulegar líkur að því að þær bifreiðar sem Hópbílar hf. buðu í hinu kærða útboði hafi ekki fullnægt kröfum EURO VI staðalsins eins og útboðsgögn áskildu. Þá verður jafnframt að leggja til grundvallar, miðað við fyrirliggjandi gögn, að boðnar bifreiðar Hópbíla hf. hafi fullnægt að öðru leyti kröfum greinar 0.10.3 og kafla 2.0.7 í tæknilýsingu útboðsgagna, en í þeim efnum verður að taka tillit til þess að útboðsgögn gerðu ráð fyrir því að bjóðendur fullnægðu þeim kröfum sem þar komu fram við upphaf aksturs, fyrst 1. júlí 2020 og síðan 1. september sama ár, en ekki þegar við skil tilboða. Þá hefur kærandi ekki fært haldbær rök fyrir því að forsendur útboðsins hafi brostið vegna fyrirætlana varnaraðila um að hægt yrði að panta akstursþjónustu með smáforriti eða að jafnræði bjóðenda hafi verið raskað með því að varnaraðili kallaði eftir skýringum Hópbíla hf., en telja verður að það hafi verið heimilt með vísan til 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Jafnframt er til þess að líta að kærandi hefur ekki leitast við að færa haldbær rök fyrir því að mat varnaraðila á tilboði hans og sú afstaða að það sé ógilt standist ekki.

Samkvæmt framangreindu og eins og mál þetta liggur fyrir nú hafa ekki verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup við framkvæmd útboðsins sem getur leitt til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Verður því að hafna kröfu kæranda um að samningsgerð á grundvelli hins kærða útboðs verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið leyst úr kæru.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Snælands Grímssonar ehf., um að útboð varnaraðila, Strætó bs., nr. 14799 auðkennt „Sameiginleg akstursþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu“, verði stöðvað um stundarsakir, er hafnað.


Reykjavík, 17. júlí 2020


Ásgerður Ragnarsdóttir (sign)

Sandra Baldvinsdóttir (sign)

Auður Finnbogadóttir (sign)

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum