Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2019 Utanríkisráðuneytið

SOS: Stuðningur við sex hundruð barnafjölskyldur á Filippseyjum

Ljósmynd: SOS Filippseyjum. - mynd

SOS Barnaþorpin á Ísland hófu í apríl síðastliðnum undirbúning verkefnis til stuðnings 600 barnafjölskyldum í nágrenni tveggja SOS barnaþorpa í Calbayog og Tocloban. Starfið hefur gengið samkvæmt áætlun og í gær var lokið við að velja þær fjölskyldur sem samtökin ætla að styðja næstu þrjú árin. Alls er um 57 milljónum króna varið til verkefnisins en það er fjármagnað af SOS Barnaþorpunum á Íslandi með styrk frá utanríkisráðuneytinu.

Markmiðið með verkefninu er að gera fjölskyldurnar fjárhagslega sjálfstæðar til þess að þær geti mætt grunnþörfum barnanna en í þessum 600 barnafjölskyldum eru um 1800 börn og ungmenni. „Fyrstu mánuðirnir hafa farið í starfsmannaráðningar, uppsetningu á skrifstofum, mati á aðstæðum fólksins á svæðinu og viðtölum við fjölskyldurnar sem þurfa á hjálp okkar að halda. Nú í júlí verður lokið við að útvega skólagögn fyrir 1500 börn,“ segir í frétt á vef SOS Barnaþorpanna.

Í fréttinni segir að eitt af hverjum 20 börnum á Filippseyjum hafi ýmist verið yfirgefið, sé munaðarlaust eða vanrækt. „Nærri 13 milljónir af 38 milljónum barna á Filippseyjum eru í fjölskyldum sem lifa undir fátæktarmörkum. Þetta er yfir 30% barnafjölskyldna. Fátæktin gerir börn sérstaklega berskjölduð fyrir ógnum af ýmsu tagi og til að mynda er áætlað að um 300 þúsund börn séu fórnarlömb mansals.“

Verkefnið á Filippseyjum er fjórða fjölskyldueflingarverkefnið sem SOS á Íslandi fjármagnar. Það fyrsta var í Gíneu Bissá og nú eru þrjú yfirstandandi verkefni, á Filippseyjum, í Eþíópíu og Perú.

 

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum