Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland í efsta sæti annað árið í röð

Ljósmynd: iStock - mynd

Ísland skorar fullt hús stiga annað árið í röð nýrri skýrslu Alþjóðabankans um Women, Business and the Law. Auk Íslands fengu níu aðrar þjóðir 100 stig, Belgía, Danmörk, Frakkland, Írland, Kanada, Lettland, Lúxemborg, Portúgal og Svíþjóð.

Samkvæmt skýrslunni þokast þjóðir í áttina að auknu jafnrétti en konur um heim allan halda engu að síður áður áfram að standa frammi fyrir lögum og reglum sem takmarka þátttöku þeirra í efnahagslífinu. Þá hefur COVID-19 faraldurinn haft í för með sér nýjar áskoranir um heilsu, öryggi og afkomu kvenna.    

Í skýrslunni er lögð mælistika á lög og reglur þvert á átta svið, meðal annars ferðafrelsi, foreldrahlutverk og eftirlaun, sem hafa áhrif á efnahagsleg tækifæri kvenna í 190 löndum fyrir tímabilið september 2019 til október 2020. Í ljósi heimsfaraldursins skoða skýrsluhöfundar einnig viðbrögð stjórnvalda við COVID-19 og hvernig faraldurinn hefur haft áhrif á konur í atvinnulífinu og heima fyrir, með áherslu á umönnun barna, aðgang að réttarkerfinu og heilsu og öryggi.  

„Full þátttaka kvenna í efnahagslífinu er forsenda þróunar og hagsældar,“ segir David Malpass forseti Alþjóðabankans. „Þrátt fyrir árangur í mörgum löndum, blasir við afturför í einstaka löndum sem veldur áhyggjum, eins og takmörkun á rétti kvenna til að ferðast án leyfis karlkyns forráðamanns. Faraldurinn hefur aukið á misrétti sem fyrir var sem kemur sérstaklega niður á konum og stúlkum, til dæmis hindranir í að sækja skóla og halda störfum. Konur standa einnig frammi fyrir því að heimilisofbeldi hefur aukist, auk áskorana sem tengjast heilsu og öryggi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum