Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2017 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Niðurstaða A hluta umsóknarferlis fyrir Ísland ljóstengt á næsta ári

Umsóknarferli fjarskiptasjóðs vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2018 sem nú stendur yfir skiptist í A og B hluta. A hlutinn er nokkurs konar forval og er þeim hluta lokið en B hlutinn eru skil á eiginlegum styrkbeiðnum sem nú fer í hönd.

A hlutanum lauk miðvikudaginn 9. nóvember síðastliðinn. Alls bárust gögn frá 25 sveitarfélögum. Mat á þeim gögnum liggur nú fyrir.

Fáein sveitarfélög þurfa að ljúka markaðskönnun áður en lokafrestur vegna B hluta rennur út og er sá frestur til klukkan 13:00 þann 23. nóvember næstkomandi.

Að öðru leyti uppfylla öll sveitarfélögin kröfur til gagna vegna A hluta og eru það eftirfarandi sveitarfélög:

  • Vesturland: Borgarbyggð, Dalabyggð og Skorradalshreppur.
  • Vestfirðir: Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Vesturbyggð.
  • Norðurland vestra: Húnaþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður.
  • Norðurland eystra: Fjallabyggð, Langanesbyggð og Norðurþing.
  • Austurland: Borgarfjarðarhreppur, Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað og Seyðisfjarðarkaupstaður.
  • Suðurland: Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skaftárhreppur og Sveitarfélagið Árborg.
  • Suðurnes: Sveitarfélagið Vogar.
  • Höfuðborgarsvæðið: Kjósarhreppur.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum