Hoppa yfir valmynd
11. desember 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatturinn tekur til starfa um áramót: Stofnunum fækkar

Stofnunum á sviði skatta og tolla fækkar um eina um áramót, en Alþingi samþykkti í dag lög sem greiða fyrir sameiningu embætta ríkisskattstjóra og tollstjóra. Sameinuð stofnun mun heita Skatturinn og verða öflug og leiðandi upplýsingastofnun á sviði skatta- og tollamála. 

Stofnunum á sviði skatta og tolla hefur fækkað mikið undanfarinn áratug. Árið 2009 voru þær þrettán talsins, en verða nú um áramótin þrjár.  Um 470 manns munu starfa í hinni nýju stofnun, undir forystu núverandi ríkisskattstjóra, Snorra Olsen.

Ljóst er að mikil tækifæri felast í því að álagning, innheimta og eftirlit sé á sömu hendi, en meginmarkmiðið með sameiningu embætta tollstjóra og ríkisskattstjóra er að bæta þjónustu. Stafræn þjónusta og sjálfvirknivæðing verður í forgrunni í sameinaðri stofnun, sem verður betur í stakk búin til að takast á við áskoranir til framtíðar en tvær minni sjálfstæðar stofnanir.

Þess er vænst að sameiningin skili auknum árangri við vettvangseftirlit tollgæslu og betri möguleikum til að takast á við stærri efnahagsbrot innanlands og yfir landamæri, s.s. peningaþvætti.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum