Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Fátækt barna í Evrópu áhyggjuefni Barnaheilla

Ljósmynd: Save the Children - Barnaheill. - mynd

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hvetja íslensk stjórnvöld til þess að eyrnamerkja ákveðið fjármagn á ársgrundvelli gegn fátækt meðal barna. „Fátækt er brot á mannréttindum. Barn sem býr við fátækt fær ekki sömu tækifæri og önnur börn. Barn sem býr við fátækt getur ekki látið drauma sína rætast og jafnvel ekki kynnst eigin draumum eða hæfileikum. Barn sem býr við fátækt er líklegra til að búa við fátækt sem fullorðinn einstaklingur en það barn sem ekki býr við fátækt,“ segir í frétt frá Barnaheillum – Save the Children um þátttöku samtakanna í verkefni Velferðarsjóðs Evrópusambandsins sem snýr að fátækt meðal barna i Evrópu.

Velferðarsjóður Evrópusambandsins eða ESF+ hefur samþykkt að eyrnamerkja sérstaklega um 5 prósent sjóðsins til að takast á við fátækt meðal barna í Evrópu. Fjármagninu verður sérstaklega beint til Rúmeníu, Litháen, Ítalíu og Spánar, en þar er fátækt meðal barna mikil.

Barnaheill – Save the Children í þessum löndum gegna mikilvægu hlutverki til að vinna með stjórnvöldum að verkefninu. Önnur aðilaríki eru jafnframt skuldbundin til að verja hluta af þeim fjármunum sem þeir fá úr sjóðnum til að vinna gegn fátækt í sínum ríkjum.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi taka þátt í Evrópuhópi samtakanna um málefni barna sem búa við fátækt. Eitt megin hlutverk hópsins er að vinna að rannsóknum og þrýsta á stjórnvöld að uppræta fátækt meðal barna.

„Öll samfélagsleg áföll bitna harðast á þeim sem síst skyldi. Við endurreisn samfélagsins eftir að heimsfaraldri lýkur þarf sérstaklega að huga að börnum sem standa höllum fæti og búa við fátækt. Þau mega ekki líða fyrir ákvarðanir stjórnvalda,“ segir í fréttinni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum