Hoppa yfir valmynd
19. október 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 402/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 402/2022

Miðvikudaginn 19. október 2022

Dánarbú A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 5. ágúst 2022, kærði B, f.h. dánarbús A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

A fékk greiddar tekjutengdar greiðslur á árinu 2021. A lést 10. maí 2021 og tók þá kærandi við öllum réttindum og skyldum hennar. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2021 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 745.492 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. ágúst 2022. Með bréfi, dags. 9. ágúst 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 22. ágúst 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. ágúst 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að samkvæmt kröfuyfirliti Tryggingastofnunar vegna dánarbús A, dags. 25. maí 2021, hafi skuldastaðan þá verið 508.600 kr. en samkvæmt endurreikningi, dags. 19. maí 2022, sé skuldastaðan 745.492 kr. Óskað sé eftir rökstuðningi fyrir endurreikningnum þar sem engar greiðslur eða bætur hafi verið greiddar til dánarbúsins eftir að framangreint kröfuyfirlit hafi verið útbúið. Um sé að ræða 236.893 kr. hækkun á endurgreiðslu en forsendurnar séu þær sömu milli ára þar sem engar greiðslur eða bætur hafi borist dánarbúinu eftir framangreint kröfuyfirlit.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi A verið með endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur frá 1. janúar 2021 til 31. maí 2021. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 745.492 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021, hafi komið í ljós að tekjur A hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

A hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 26. janúar 2021. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2021 væru einu tekjur hennar 28.656 kr. í vexti og verðbætur. A hafi fengið greitt samkvæmt þessari tekjuáætlun í janúar og febrúar 2021.

A hafi skilaði inn nýrri tekjuáætlun þann 12. febrúar 2021 þar sem bætt hafi verið við lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð samtals 1.064.490 kr. en að öðru leyti hafi hún verið óbreytt. Tryggingastofnun hafi sent A bréf, dags. 24. febrúar 2021, og tilkynnt að bótaréttur hennar hefði verið endurreiknaður og fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 80.663 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Við reglulegt eftirlit Tryggingastofnunar í mars hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá RSK. Tryggingastofnun hafi útbúið nýja tillögu að tekjuáætlun á grundvelli þeirra upplýsinga og hafi í henni verið gert ráð fyrir að A hefði 1.520.916 kr. í lífeyrissjóðstekjur en sömu vaxtatekjur. A hafi verið sent bréf þann 15. mars 2021 þar sem henni hafi verið tilkynnt um hina nýju tillögu að tekjuáætlun og í því sama bréfi hafi henni verið tilkynnt um áætlaða kröfu að fjárhæð 52.345 kr. þegar tekið hefði verið tillit til staðgreiðslu skatta. Komið hafi fram að þessi áætlaða skuld yrði ekki innheimt fyrr en uppgjör hefði farið fram.

A hafi skilaði inn nýrri tekjuáætlun þann 19. mars 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir hækkun lífeyrissjóðstekna í 4.250.000 kr. en að öðru leyti hafi hún verið óbreytt. Tryggingastofnun hafi sent A bréf, dags. 24. mars 2021, og tilkynnt að bótaréttur hefði verið endurreiknaður og fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 364.746 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að frá 1. janúar og til með 31. maí 2021 hafi A haft 3.201.440 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 9.764 kr. í vexti og verðbætur. Tekjuáætlun Tryggingastofnunar hafði gert ráð fyrir að á því tímabili hefði A haft 1.770.830 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 11.940 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að A hafi fengið greiddar 1.206.163 kr. á árinu en hefði átt að fá greiddar 288.513 kr. Þetta hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 745.492 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðra skulda að fjárhæð 497.754 kr.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við þau lög og reglur sem gildi um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta. Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

A fékk greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun í janúar til og með maí 2021. Í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð segir að um endurhæfingarlífeyri gildi ákvæði a-liðar 1. mgr., 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Um aðrar tengdar bætur fari eftir sömu reglum og gildi um örorkulífeyri.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunni að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Í 6. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli hafa eftirlit með því að áætlaðar tekjur séu í samræmi við upplýsingar sem stofnunin aflar úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda eða frá öðrum þeim aðilum sem getið er um í 40. gr. Í 1. málsl. 1. mgr. 45. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli reglubundið sannreyna réttmæti bóta, greiðslna og upplýsinga sem ákvörðun um réttindi byggist á. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er Tryggingastofnun heimilt að endurskoða grundvöll bótaréttar hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum sem hafi orðið á aðstæðum greiðsluþega.

Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. sömu laga ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar, ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi Tryggingastofnun A tekjuáætlun, dags. 26. janúar 2021, vegna ársins 2021 þar sem gert var ráð fyrir 28.656 kr. í fjármagnstekjur á árinu. A skilaði inn nýrri tekjuáætlun 12. febrúar 2022 þar sem hún gerði ráð fyrir 1.064.490 kr. í lífeyrissjóðstekjur og óbreyttum fjármagnstekjum. Með bréfi, dags. 24. febrúar 2021, samþykkti Tryggingastofnun nýja tekjuáætlun, bótaréttur var endurreiknaður og var A upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 80.663. kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri ársins vorið 2022. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í mars 2021 kom í ljós að lífeyrissjóðstekjur A höfðu verið hærri en gert hafði verð ráð fyrir. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun þar sem gert var ráð fyrir 1.520.916 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu en óbreyttum fjármagnstekjum. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 15. mars 2021, var A tilkynnt um að bótaréttur hefði verið endurreiknaður og jafnframt var hún upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 52.345 kr. A lagði fram nýja tekjuáætlun 19. mars 2021 þar sem gert var ráð fyrir 4.250.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu en að öðru leyti var fyrirliggjandi tekjuáætlun óbreytt. Með bréfi, dags. 24. mars 2021, tilkynnti Tryggingastofnun A að bótaréttur hefði verið endurreiknaður og að fyrir lægi áætluð ofgreiðsla að fjárhæð 364.746 kr. A lést 10. maí 2021.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust lífeyrissjóðstekjur A á árinu vera 3.201.440 kr. og 9.764 kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós ofgreiðslu að fjárhæð 745.492 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Nánar tiltekið fékk A ofgreitt í bótaflokkunum grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót, sérstakri uppbót til framfærslu og orlofs- og desemberuppbótum. Dánarbú A hefur verið krafið um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust lífeyrissjóðstekjur A vera hærri á árinu 2021 en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun og leiddu til kærðrar ofgreiðslukröfu. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Kærandi gerir þær athugasemdir að krafa Tryggingastofnunar á hendur dánarbúinu sé hærri en hún var samkvæmt kröfuyfirliti, dags. 25. maí 2021. Eins og greint er frá hér að framan voru kröfur, sem voru myndaðar á árinu 2021, áætlaðar kröfur, byggðar á tekjuáætlunum. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs ársins 2021 var aftur á móti byggð á upplýsingum í skattframtali A vegna ársins 2021 og skýrir það framangreindan mismun.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum A vegna ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum dánarbús A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum