Hoppa yfir valmynd
3. mars 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 113/2022 Úrskurður

Beiðni kæranda um endurupptöku er hafnað.

 

 

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. mars 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 113/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22020002

 

Beiðni [...]og barns hennar um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 21. október 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2021, um að taka umsóknir einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd [...]og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefnd kærandi), og barns hennar […], fd. […], ríkisborgara Palestínu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda hinn 25. október 2021.

Hinn 1. nóvember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar. Með úrskurði kærunefndar hinn 11. nóvember 2021 var beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa hafnað. Hinn 31. janúar 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku ásamt greinargerð.

Af beiðni kæranda um endurupptöku á málum þeirra má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að meira en 10 mánuðir séu nú liðnir frá því hún og dóttir hennar sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á þeirra ábyrgð. Með vísan til 32. gr. c reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, skulu umsóknir þeirra því teknar til efnismeðferðar hér á landi.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Af lestri ákvæðisins er ljóst að skylda til þess að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hvílir á íslenskum stjórnvöldum, sem í þessu tilviki eru Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Fer það eftir því hvar í málsmeðferðinni málið er statt, þ.e. hvort málið sé til vinnslu hjá Útlendingastofnun eða á kærustigi hjá kærunefnd útlendingamála, hvaða stjórnvald það er sem skuli taka umrætt atriði til efnislegrar skoðunar.

Með breytingarreglugerð nr. 276/2018, dags. 15. mars 2018, var þremur ákvæðum bætt við reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, 32. gr., 32. gr. a og 32. gr. b og fjalla þau um sérstakar ástæður og sérstök tengsl, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvæðin eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og mæla fyrir um hvaða viðmið geti leitt til þess að uppi séu sérstakar ástæður eða sérstök tengsl í máli umsækjanda um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laganna.

Með breytingarreglugerð nr. 638/2019, dags. 6. júlí 2019, var ákvæði 32. gr. c bætt við í reglugerð um útlendinga. Í ákvæðinu kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt, á grundvelli sérstakrar beiðni eða að eigin frumkvæði, að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því að umsókn barst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Af orðalagi ákvæðisins leiðir að það er aðeins á forræði Útlendingastofnunar að ákveða að taka til efnislegrar meðferðar umsókn barns þegar liðinn er sá tími sem mælt er fyrir um í ákvæðinu. Slík ákvörðun stofnunarinnar getur sætt kæru til kærunefndar útlendingamála á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga en að öðru leyti er ekki í lögum eða reglugerð um útlendinga að finna reglu sem mælir fyrir um að nefndinni sé heimilt að taka til skoðunar og mæla fyrir um að umsókn barns, sem svo háttar til sem mælt er fyrir um í 36. gr. c reglugerðar um útlendinga, verði tekin til efnismeðferðar. Er þetta í samræmi við það hvernig kærunefndin hefur túlkað t.a.m. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga um heimild Útlendingastofnunar til að fresta framkvæmd ákvarðana við tilteknar aðstæður.

Í máli kæranda sem kærunefndin lauk með úrskurði nr. 113/2022 var ekki til skoðunar afstaða Útlendingastofnunar til þess hvort tilefni væri fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar með vísan til 36. gr. c. reglugerðar um útlendinga. Samkvæmt öllu framangreindu er það því mat kærunefndar að beiðni kæranda um efnismeðferð, með vísan til 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, skuli beint til Útlendingastofnunar. Verður beiðni kæranda um endurupptöku máls hennar á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga og 32. gr. c reglugerðar um útlendinga vísað frá.

 

Úrskurðarorð

Kröfu kæranda um endurupptöku er vísað frá.

 

The appellant’s request to re-examine the case is dismissed.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Gunnar Páll Baldvinsson


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum