Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2015 Utanríkisráðuneytið

Átt þú hagsmuna að gæta í viðskiptum við Filipseyjar?

Utanríkisráðuneytið hvetur fyrirtæki til að koma upplýsingum um viðskiptahagsmuni í Filipseyjum á framfæri vegna fríverslunarviðræðna.

Ráðuneytið fer með gerð fríverslunarsamninga fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og eru flestir fríverslunarsamningar Íslands gerðir í samstarfi við samstarfsríkin í fríverslunarsamtökum Evrópu - EFTA (Noreg, Sviss og Liechtenstein). Nú er hafinn undirbúningur viðræðna við Filipseyjar og gert er ráð fyrir að samningurinn muni ná til bæði vöru- og þjónustuviðskipta, ásamt því að samið verði um ákvæði um aðra þætti m.a. upprunareglur, hollustuhætti og samstarf á ýmsum sviðum.

Utanríkisráðuneytið hvetur fyrirtæki og einstaklinga eindregið til að koma á framfæri við ráðuneytið upplýsingum um viðskiptahagsmuni á Filipseyjum á sviði vöru- og þjónustuviðskipta (gerð þjónustu / tollskrárnúmer vöru) sem óskað er eftir að lögð verði áhersla á í viðræðunum. Ef fyrirtæki koma sjónarmiðum sínum á framfæri tímanlega getur íslenska samninganefndin haft þau að leiðarljósi við gerð samningsins.

Hægt er að koma ábendingum á framfæri við Ingibjörgu Rafnar Pétursdóttur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í s. 545-9936 og á netfangið [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum