Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2022 Innviðaráðuneytið

Endurskoðaðar áætlanir um útgjaldajöfnunarframlög og jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir framlaga til sveitarfélaga á árinu 2022. Að tillögu nefndarinnar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 11.600 milljónir kr. og áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 10.825 milljónir kr.

Útgjaldajöfnunarframlög

Farið hefur fram endurskoðun á áætlaðri úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2022, skv. 14. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi og íbúafjölda í sveitarfélögum 1. janúar 2022.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 11.600 m.kr. Þar af nema framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 575 m.kr. Í desember koma til úthlutunar og greiðslu viðbótarframlög að fjárhæð allt að 175 m.kr. vegna íþyngjandi kostnaðar sveitarfélaga af skólaakstri úr dreifbýli á árinu 2022 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2022 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli. Uppgjör framlaganna fer fram í desember nk.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Endurskoðun á áætlaðri úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla fyrir árið 2022 hefur farið fram, skv. 3. gr. reglugerðar um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla nr. 351/2002. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna ársins 2020 og áætlun um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2021. Jafnframt var áætlunin uppfærð hvað varðar fjölda íbúa á grunnskólaaldri í hverju sveitarfélagi 1. janúar 2022.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 10.765 m.kr. Til viðbótar eru leiðréttingar á framlögum ársins 2020 að fjárhæð 60 m.kr. Áætlaðar heildargreiðslur framlaganna nema því 10.825 m.kr. á árinu 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum