Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Óvænt afsögn forseta Alþjóðabankans

Jim Young Kim. Ljósmynd: Alþjóðabankinn - mynd

Jim Young Kim forseti Alþjóðabankans hefur sagt upp störfum. Hann kom stjórnarmönnum og starfsmönnum bankans verulega á óvart í gær þegar hann kallaði saman til fundar og tilkynnti afsögn sína, þremur árum áður en ráðningatímabili hans lýkur.

Jim hyggst láta af störfum í lok þessa mánaðar og hefja störf hjá fjárfestingafyrirtæki. Hver tekur við starfi forseta Alþjóðabankans 1. febrúar er enn á huldu en taki ráðningarferlið lengri tíma mun Kristalina Georgieva stjórnarformaður bankans hlaupa í skarðið. Leit að eftirmanni er þegar hafin.

Jim Young Kim var fyrst kjörinn forseti Alþjóðabankans árið 2012 til fimm ára. Árið 2017 hófst annað fimm ára ráðningartímabil sem hefði átt að ljúka árið í árslok 2021.

"Það hefur verið mér mikil heiður að þjóna þessari merkilegu stofnun sem forseti hennar, stofnun sem er full af ástríðufullum einstaklingum reiðubúnum að einhenda sér í það verkefni að binda endi á fátækt á okkar æviskeiði,“ sagði Kim í yfirlýsingu í gær.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum