Hoppa yfir valmynd
15. mars 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 37/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 37/2023

Miðvikudaginn 15. mars 2023

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 18. janúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 13. janúar 2023, þar sem umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri var samþykkt frá 1. desember 2022.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 13. janúar 2023, var umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri samþykkt frá 1. desember 2022. Undir rekstri málsins hjá úrskurðarnefnd velferðarmála tók Tryggingastofnun ríkisins nýja ákvörðun í málinu, dags. 22. febrúar 2023, þar sem kæranda var jafnframt metinn endurhæfingarlífeyrir vegna tímabilsins 1. ágúst 2022 til 30. nóvember 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. janúar 2023. Með bréfi, dags. 19. janúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 22. febrúar 2023, tilkynnti Tryggingastofnun ríkisins að stofnunin hefði ákveðið að taka kröfu kæranda til greina og samþykkja endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. ágúst 2022 til 30. nóvember 2022. Með bréfi, dags. 23. febrúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til bréfs stofnunarinnar. Svar barst ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að meginskilyrði fyrir veitingu endurhæfingarlífeyris sé að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu í umsjón fagaðila með starfshæfni að markmiði. Kærandi telji að þegar hann hafi verið samþykktur inn til geðheilsuteymis og byrjað í reglulegum viðtölum hjá teymisstjóra hafi þau skilyrði verið uppfyllt. Kærandi sé því ekki sammála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hefja greiðslur endurhæfingarlífeyris 1. desember 2022 þar sem virk endurhæfing hafi byrjað 1. ágúst 2022. Kærandi telji sig því eiga rétt á greiðslum frá þeim tíma. 

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að við yfirferð umsóknar í tengslum við kærumálið hafi verið ákveðið að breyta afgreiðslu á umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri. Tryggingastofnun hafi ákveðið að taka kröfu kæranda til greina og samþykkja endurhæfingarlífeyri fyrir tímabilið 1. ágúst 2022 til 30. nóvember 2022.

Þar sem mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju hjá Tryggingastofnun og krafa kæranda verið tekin til greina sé farið fram á að málið verði fellt niður hjá úrskurðarnefndinni.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. janúar 2023 þar sem umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri var samþykkt frá 1. desember 2022.

Í kjölfar kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála tók Tryggingastofnun ríkisins ákvörðun með bréfi, dags. 22. febrúar 2023, þar sem einnig var fallist á greiðslu endurhæfingarlífeyris vegna tímabilsins 1. ágúst 2022 til 30. nóvember 2022. Þá óskaði stofnunin eftir því í bréfi, dags. 22. febrúar 2023, að úrskurðarnefnd velferðarmála felldi málið niður á þeim grundvelli að stofnunin hefði fallist á kröfu kæranda. Með bréfi, 23. febrúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til greinargerðarinnar og bréfs stofnunarinnar, dags. 22. febrúar 2023. Engin svör bárust frá kæranda.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um tiltekin ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 13. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur samþykkt greiðslu endurhæfingarlífeyris vegna umdeilds tímabils. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefndinni.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum