Hoppa yfir valmynd
8. ágúst 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 380/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 8. ágúst 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 380/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19060015

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 11. júní 2019 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. maí 2019 um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að henni verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 15. september 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 15. apríl 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 22. maí 2019, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var ofangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 11. júní 2019. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum þann 25. júní 2019. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna hótana glæpahóps og vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og henni skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti henni jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi búið að stærstum hluta ævi sinnar í Pasto í Narino héraði í Kólumbíu og að eiginmaður hennar og tveir synir búi þar enn, nánar tiltekið í […], fjalllendi fyrir utan Pasto. Kærandi kvaðst hafa starfað við að halda úti lánastarfsemi þar sem fólk sem geti ekki fengið lán í banka, t.d. vegna skorts á lánstrausti, geti leitað til hennar eftir láni og skuldbundið sig að greiða til baka með vöxtum. Þetta fyrirkomulag sé alþekkt í Kólumbíu og kallist gota a gota. Kærandi kvað þessa starfsemi ekki í sjálfu sér löglega þar í landi en hún væri þó óátalin af yfirvöldum og væri opinber að öllu leyti. Kærandi hafi lifað eðlilegu lífi þar til í október 2017 en þá hafi nágrannar hennar greint henni frá því að ótilgreindir einstaklingar væru að fylgjast með ferðum þeirra og starfi. Í nóvember s.á. hafi síðan tveir vopnaðir og grímuklæddir menn ráðist inn í hús fjölskyldunnar og m.a. ógnað henni og öðrum syni hennar með skotvopni. Kærandi kveður þessa menn hafa á einhvern óútskýrðan hátt verið búna að útvega lykla að húsi fjölskyldunnar. Þessir menn hafi jafnframt sagt við kæranda að hún ætti að láta af starfsemi sinni og láta sig hverfa, annars myndu þeir drepa hana og fjölskyldu hennar. Kærandi kvað þessa menn tilheyra ótilgreindum hópi glæpamanna sem væri hluti af stærri hóp sem starfaði um allt land en hefði höfuðstöðvar í Medellín. Eftir þetta atvik hafi fjölskyldan ákveðið að flytja sig um set innan Pasto og flutt til […], þau hafi jafnframt látið af lánastarfsemi og hafi farið að starfa við smíði og samsetningu á einskonar pallbílum. Í fyrstu hafi allt gengið vel en í júní 2018 hafi karlmaður komið á vinnustað hennar og spurt hana hvers vegna hún væri enn á svæðinu og að nú væri búið að aðvara hana og hún yrði að taka afleiðingunum. Kærandi hafi verið mjög óttaslegin við þetta og hafi fjölskyldan ákveðið að flytja til Santander de Quilichao sem sé í um 8-10 klst. fjarlægð frá Pasto. Þar hafi fjölskyldan hins vegar ekki verið látin í friði en kærandi hafi greint frá því að maður hafi hringt í hana og sagt að hann vissi hvar hún væri og að hún hefði ekki gert það sem hún hafi verið beðin um að gera. Fjölskyldan hafi síðan tekið ákvörðun um að flytja aftur til […], í afskekkt fjallendi en þar hafi þau talið sig vera öruggari. Kærandi hafi síðan ákveðið að flýja land en hún kveður að glæpahópar á borð við þann sem sé á eftir henni og fjölskyldu hennar muni alltaf hafa upp á þeim sem þeir beini spjótum sínum að. Ekki væri því nóg að flytja á milli svæða enda starfi þeir um allt land. Þá hafi eiginmanni kæranda og öðrum syni hennar borist hótanir í mars sl. sem hafi orðið þess valdandi að þeir ásamt hinum syni kæranda séu nú í felum, þeir mæti ekki til vinnu og fari sjaldan niður í þorpið eða borgina. Kærandi greinir jafnframt frá því að fjölskylda sín hafi í tvígang kært þessar hótanir til lögreglu en ekkert hafi komið út úr því. Lögregluyfirvöld sinni þessum málum illa en ástæður þess séu, m.a. spilling innan yfirvalda, tengsl glæpahópa við aðila innan stjórnvalda og mútugreiðslur. Kærandi telur að í næsta skipti muni þeir aðilar sem séu á eftir henni ekki aðvara hana heldur láta til skarar skríða. Þá geti kærandi og fjölskylda hennar ekki búið annars staðar í Kólumbíu og verið örugg enda hafi þau reynt að flýja en glæpahópurinn hafi alltaf haft uppi á þeim. Þrátt fyrir að þau eigi fjölskyldumeðlimi víða í Kólumbíu geti þau ekki verið örugg hjá þeim enda vilji þau ekki setja fleiri fjölskyldumeðlimi sína í hættu. 

Kærandi fjallar í greinargerð sinni um almennar aðstæður í Kólumbíu, friðarsamninga ríkisins og átök sem hafi geisað í kjölfar þessara samninga. Þar kemur m.a. fram að öryggisástand ríkisins sé mjög ótryggt. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna sem hún telur styðja mál sitt.

Aðalkrafa kæranda er reist á því að hún sæti ofsóknum af hálfu ótilgreinds glæpahóps í heimaríki sínu og að yfirgnæfandi líkur standi til þess að hún muni sæta áframhaldandi ofsóknum verði henni gert að snúa aftur til Kólumbíu. Ofsóknirnar felist fyrst og fremst í líflátshótunum í garð kæranda og fjölskyldu hennar vegna lánastarfsemi þeirra í heimaríki. Kærandi tilheyri því tilteknum þjóðfélagshópi vegna stöðu sinnar og gerir kröfu um að henni verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til vara heldur kærandi því fram í greinargerð að hún uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds telji kærandi ljóst að raunhæf ástæða sé til að ætla að hún eigi á hættu pyndingar eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis.

Hvað varði möguleika á flutning kæranda innanlands í heimaríki vísar kærandi til þess að við það mat skuli hafa til hliðsjónar leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í þeim komi m.a. fram að flutningur komi ekki til greina verði einstaklingurinn ennþá berskjaldaður fyrir ofsóknum á hinum nýja stað. Þá skuli skoða sögu einstaklings um þær ofsóknir sem hann hafi orðið fyrir og jafnframt hvort grundvallarmannréttindi séu virt í heimaríki. Þá skuli samkvæmt athugasemdum með 4. mgr. 37. gr. í frumvarpi sem varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 fara fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum umsækjanda og þeim aðstæðum sem séu í heimaríki hans. Í þeim tilvikum þar sem stjórnvöld séu völd að ofsóknum skuli gengið út frá því að raunverulega vernd sé ekki að fá í neinum hluta landsins. Taka skuli tillit til ýmissa þátta við matið, s.s. fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar og möguleika á vinnu og menntun. Í greinargerð er einnig fjallað um hvort flutningur sé raunhæft úrræði fyrir kæranda. Vísar kærandi til þess að ólöglegir vopnaðir hópar í Kólumbíu séu vel skipulagðir og fremji mannréttindabrot, svo sem mannrán, morð, sprengingar og hryðjuverk um allt landið. Ekki verði séð að fyrir hendi sé nokkurt það svæði sem kærandi kæmist til án þess að eiga á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða.

Þá vísar kærandi til þess að þegar ofsóknir megi rekja til aðgerða sem séu látnar viðgangast óátaldar af yfirvöldum eða opinberum starfsmönnum þá sé innri flutningur almennt ekki talinn tækur. Þá komi fram í leiðbeiningarreglum Flóttamannastofnunar að ef yfirvöld hafi komist að þeirri niðurstöðu að ríkið geti ekki eða vilji ekki vernda einstakling í einum hluta landsins þá megi almennt gera ráð fyrir að það sama gildi á öðrum svæðum innan landsins. Hafi það sýnt sig í tilviki kæranda þar sem hún hafi flutt sig um set innanlands en þeir hafi haft upp á henni. Þá hafi skipulögð glæpastarfsemi og endurtekin fjárkúgun færst í aukana síðustu ár. Kærandi vísar til þess að hún muni ekki njóta verndar yfirvalda á öðrum svæðum í Kólumbíu þar sem aðgerðir glæpahópanna séu látnar óátaldar og hafi yfirvöld hvorki vilja né getu til að vernda kæranda í heimaríki. Sé innri flutningur því ekki raunhæft úrræði fyrir kæranda.

Þá er í greinargerð fjallað um hvort innri flutningur geti talist sanngjarnt úrræði og vísað m.a. til þess að við matið verði að taka m.a. tillit til persónulegra aðstæðna kæranda, svo sem kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna og -tengslanets á öðrum stað, fyrri ofsókna, öryggis á hinum nýja stað, hvort mannréttindi séu almennt virt og efnahagslegra aðstæðna. Vísað er til þess að þeir meðlimir glæpahóps sem séu á eftir kæranda sé hluti stærri glæpahóps með höfuðstöðvar í Medellín en sé starfræktur um allt land og nái starfsemi hans jafnvel út fyrir landsteinana. Þá sé ljóst að efnahagslegar og félagslegar aðstæður hennar yrðu erfiðar ef henni yrði gert að flytja sig um set. Kærandi vísar til þess að þrátt fyrir að ríkið hafi reynt að auka aðgang einstaklinga, sem þurft hafi að yfirgefa heimili sín, að þjónustu, þá hafi sýslur víðs vegar um landið ekki haft getu til að bregðast við nýjum fólksflótta og hafi ekki getað veitt einstaklingum sem þurft hafi að yfirgefa heimili sín mannúðaraðstoð. Margir hafi búið við fátækt og óviðunandi aðstæður með takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun, húsaskjóli og vinnu. Mótmælir kærandi því að aðstæður séu viðunandi í Kólumbíu hvað félagslega stöðu og efnahagsleg tækifæri varði. Innri flutningur sé því ekki sanngjarnt úrræði í tilviki kæranda.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu dvalarleyfis á þeim grundvelli að útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærandi vísar til greinargerðar með frumvarpi til laganna en þar komi fram að með almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með hliðsjón af framangreindri umfjöllun um aðstæður kæranda og yfirvöld í heimaríki telji kærandi skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt verði ekki fallist á aðalkröfu né varakröfu hennar.

Kærandi telur að ljóst sé að með því að senda hana til Kólumbíu sé brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE), 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannsamnings Sameinuðu þjóðanna. Með hliðsjón af atvikum í máli kæranda beri að viðurkenna stöðu kæranda sem flóttamaður og veita henni alþjóðlega vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Að lokum er í greinargerð gerðar ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að átökin í Kólumbíu séu almennt staðbundin enda vísi stofnunin ekki í tilteknar heimildir þessari fullyrðingu til stuðnings. Þessu mati mótmælir kærandi enda bendi heimildir til annars, þrátt fyrir að ítök skæruliða- og glæpahópa séu e.t.v. mismikil eftir svæðum. Ofsóknaraðilar kæranda séu hins vegar ekki bundnir við eitt svæði og með vísan til framangreindrar umfjöllunar um starfsemi glæpahópa í Kólumbíu sé ljóst að innri flutningur sé ekki tækur fyrir kæranda. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við það að ekki hafi verið tilgreint til hvaða bæjar eða landshluta kærandi ætti að fara við endurkomu í hinni kærðu ákvörðun. Þá mótmælir kærandi því að í skýrslu Flóttamannastofnunar um Kólumbíu sé að finna jafn afdráttarlausa fullyrðingu og fram komi í ákvörðun Útlendingastofnunar um að í skýrslunni sé ekki lagst gegn endursendingum til Kólumbíu og að innri flutningur geti verið tækt úrræði. Kærandi telji að í skýrslunni sé þvert á móti fjallað um að sumir skæruliða- og glæpahópar séu starfandi um landið allt og að innri flutningur sé því oft ekki mögulegur þeim sem standi frammi fyrir ofsóknum af þeirra hálfu. Þá hafi Útlendingastofnun ekki lagt fullnægjandi einstaklingsbundið mat á aðstæður kæranda, tekið mið af fjölskylduaðstæðum eða tekið tillit til þeirra ofsókna sem hún hafi orðið fyrir í Kólumbíu og áfalla vegna þeirra. Sönnunarbyrði hvíli á þeim sem haldi því fram að viðkomandi geti flutt sig um set innanlands og þannig komist undan ofsóknum, í þessu tilviki Útlendingastofnun. Kærandi telji að stofnunin hafi ekki rannsakað þennan þátt málsins nægilega vel og þá skorti á rökstuðning fyrir niðurstöðunni sem sé því í andstöðu við 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


 

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

·         Colombia 2018 Human Rights Report (US Department of State, 13. mars 2019);

·         Colombia 2017 Human Rights Report (US Department of State, 20. apríl 2018);

·         Colombia 2016 Human Rights Report (US Department of State, 3. mars 2017);

·         Freedom in the World 2019 – Colombia (Freedom House, 15. mars 2018);

·         World Report 2019 – Colombia (Human Rights Watch, 4. febrúar 2019);

·         Corruption Perceptions Index 2017 (Transparency International, skoðað 28. september 2018);

·         UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum- Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);

·         Amnesty Annual Report 2017/2018 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

·         In the Shadow of “No“ : Peace after Colombia´s Plebiscite. Latin America Report No. 60 (International Crisis Group, september 2015);

·         World Report 2019 - Events of 2018 (Human Rights Watch, janúar 2019);

·         Recycled Violence, Abuses by FARC dissident groups in Tumaco on Colombia’s Pacific Coast (Human Rights Watch, 13. desember 2018);

·         Colombia suspends peace talks with ELN after bomb attack (Reuters, 29. janúar 2018);

·         A Battle Not Yet Over: Displacement and Women´s Needs in Post- Peace Agreement Colombia (Refugees International, 12. desember 2016);

·         Colombia – Peace and Stability in the Post-Conflict Era (Center for Strategic and International Studies (CSIS), mars 2014);

·         Paramilitary successor groups and criminal bands (bandas criminales, BACRIM), areas of operation and criminal activities, including the Clan del Golfo (also known as Urabenos or Autodefensas Gaitanistas de ColombiaI; states response, including reintegration of, and assistant to combatants (May 2016-March 2017) (Canada: Immigration and Refugeees Board of Canada, 24. apríl 2017);

·         Colombia: Requirements and procedures to submit a complaint to the police, the Fiscalía General de la Nación, and the Defensoría del Pueblo, including types of complaints; standardization and appearance of documents; requirements and procedures to obtain af copy of the complaint and investigative report for each organization, both from within the country and from abroad (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 3. maí 2017);

·         Colombia: State protection programs for victims and witnesses of crimes; requirements to access to the programs; statistics on the number of applications for relocation that are granted and refused; duration and effectiveness of these programs I2012-March 2016) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 6. apríl 2016);

·         Colombia: The National Liberation Army (Ejército de Liberación National -ELN), including number of combatants and areas of operations; activities, including ability to track victims; state response and protection available to victims (2016-April 2018) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 17. apríl 2018);

·         Colombia: The presence and activities of Los Rastrojos, including in Buenaventura; information on their relationship with the Gaitanist Self- Defense Forces of Colombia (Autodefensara Gaitanistas de Colombia, AGC) (also known as Gulf Clan (Clan del Golfo) or Úsuga Clan (Clan Úsuga), and formerly known as Los Urabenos); state response (2017 - April 2018) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 17. apríl 2018);

·         Colombia: The Revolutionary Armed Forces of Colombia (Furezas Armadas Revolucionarias de Colombia, FARC), including demobilization of former combatans; information on dissident groups, including number of combatants, areas of operation, activities and state response (2016- April 2018) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 18. apríl 2018);

·         The World Factbook: Colombia (CIA, skoðað 17. júlí 2019);

·         Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group (ICG), 19. október 2017);

·         Foreign travel advice: Colombia (UK Foreign and Commonwealth Office, skoðað 17. júlí 2019);

·         Colombia 2018 Crime and Safety Report-Bogotá (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 30. janúar 2018);

·         Social Security Throughout the World, The Americas, Colombia (Social Security Office of Retirement and Disability Policy, 2017);

·         Ecuador Arms Trafficking Ring More Complex Than Previously Thought (Insight Crime, 6. mars 2019);

·         Battles Between Former FARC Groups Displace Hundreds in Colombia (Insight Crime, 11. mars 2019);

·         Colombia Cocaine Productions Breaks New Record Levels, UNODC Reports (Insight Crime, 19. september 2018);

·         Gaitanista Self-Defence Forces of Colombia (AGC)/Gulf Clan (Colombia Reports, 23. október 2018);

·         In Colombia, Loan sharking is now just a click away (InSight Crime, 27. maí 2019);

·         Colombia: the dark side of peace in Tumaco (Latin America Bureau, 20. september 2016);

·         A fractured peace, A Reuters Special Report (Reuters International, 26. apríl 2018);

·         Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, 28. júní 2018) og

·         Annual Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (UN Human Rights Council, 2. mars 2018).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með um 48 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllist 79 % íbúa kaþólska trú. Þann 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Af ofangreindum gögnum má sjá að algengustu mannréttindabrot í landinu séu morð framin í skjóli refsileysis, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu, þvingaðar fóstureyðingar og ofbeldi gegn LGBTI einstaklingum. Glæpatíðni og morðtíðni í Kólumbíu sé há og glæpahópar af ýmsum stærðum og gerðum starfi víðsvegar um landið. Þeir stærstu kallist FARC (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia – People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið í ágúst árið 2017, og hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk þann 1. september sl. og tekið þátt í þingkosningum í mars 2018. Skæruliðahópurinn ELN, hafi haldið áfram að fremja ofbeldisglæpi en þann 4. september 2017 hafi verið samþykkt vopnahlé sem hafi gilt frá 1. október 2017 til 9 janúar 2018. Þá hafi borist fregnir af því að ELN hafi rofið samkomulagið og friðarviðræður við samtökin hafi verið slitið af forseta landsins um óákveðinn tíma í ágúst 2018. Í heildina hafi ofbeldisglæpum fækkað og megi rekja það m.a. til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés við ELN. Vopna- og fíkniefnahópar eins og Gulf Clan starfi enn með einhverjum tengslum við ofangreinda skæruliðahópa en slíka hópa skorti sameinaða stefnu og yfirstjórn á landvísu og hugmyndafræði sem hafi einkennt fyrrnefnda skæruliðahópa. Stjórnvöld hafi boðið Gulf Clan friðarsamkomulag en það hafi ekki gengið eftir. Ólöglegir vopnaðir hópar og fíkniefnasöluhópar starfi enn í landinu með u.þ.b. 2900 meðlimi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, frá apríl 2018, kemur fram að skæruliðahópar, aðallega ELN, hafi borið ábyrgð á 69 hryðjuverkaárásum á árinu 2017, á tímabilinu janúar til september. Þá hafi ELN og aðrir skipulagðir glæpahópar stundað mannrán og pyndingar. Í ársskýrslu Human Rights Watch frá 2019 kemur fram að ofbeldi tengt vopnuðum hópum og afsprengihópum FARC hafi aukist árið 2018 og að stjórnvöld hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru fleiri en 1400 talsins.

Í ofangreindum heimildum kemur fram að spilling ríki meðal stjórnmálamanna og innan lögreglunnar. Í skýrslu International Crisis Group (ICG) frá árinu 2017 kemur t.a.m. fram að áskoranir sem kólumbísk stjórnvöld standi frammi fyrir í tengslum við friðarumleitanir við meðlimi skæruliða- og glæpahópa, tengist ekki einvörðungu samskiptum og samningaviðræðum við þá, heldur þurfi að byggja upp traust og laga innviði í landinu til að bæta lífsgæði almennra borgara. Ljóst sé að vantrausts gæti hjá almenningi í garð yfirvalda í Kólumbíu. Á hinn bóginn kemur fram í skýrslu Flóttamannastofnunar frá 2015 að yfirvöld hafi lagt mikið í að auka vernd þeirra sem hafi orðið fyrir barðinu á glæpahópum, m.a. með auknum fjármunum til embættis ríkissaksóknara og hafi aðgerðir gegn mannréttindabrotum verið settar í forgang. Þrátt fyrir áratugalöng innri átök við glæpa- og fíkniefnahópa og viðvarandi öryggisvandamál, sé Kólumbía með sterkar lýðræðislegar stofnanir sem einkennist af friðsælum og gagnsæjum kosningum og vernd borgaralegra réttinda.

Heimildir beri með sér að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þá hafi ýmis lög verið sett í því skyni að bæta réttarstöðu þolenda afbrota. Þó séu ákveðin svæði í Kólumbíu, s.s í Tumaco í Suður- Kólumbíu, þar sem glæpahópar hafi mikil völd eða virk átök eigi sér stað á milli aðila og á þeim svæðum sé geta yfirvalda til að vernda borgara talin mjög takmörkuð. Ástæður þess séu m.a. að löggæsluyfirvöld komist ekki inn á þessi tilteknu svæði, þau skorti getu og úrræði auk þess sem spillingar gæti hjá yfirvöldum á ákveðnum svæðum. Refsileysi innan öryggissveita ríkisins hafi einnig verið vandamál í landinu. Yfirvöld hafi þó á undanförnum árum handtekið, ákært og sakfellt fjölda starfsmanna hins opinbera fyrir tengsl við glæpahópa og hafi slíkum sakfellingum fjölgað töluvert.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi ber fyrir sig að hún verði fyrir ofsóknum og hótunum af hálfu meðlima glæpahóps og að hún geti ekki fengið aðstoð frá lögregluyfirvöldum, vegna spillingar og tengsla yfirvalda við glæpahópa. Þá hefur kærandi lagt fram lögregluskýrslur frá heimaríki máli sínu til stuðnings.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda var á því byggt að hún hefði sætt ofsóknum sem fólust í áreiti  af hálfu meðlima glæpahóps í heimaríki sínu. Af hálfu kærunefndar útlendingamála er ekki talin ástæða til annars en að leggja það til grundvallar við úrlausn málsins. Skýrslur og gögn um Kólumbíu sem kærunefnd hefur yfirfarið benda til þess að slíkt áreiti viðgangist víða í landinu og að ítök glæpahópa séu á mörgum svæðum sterk og löggæsla veik. Þá benda skýrslur og önnur gögn til þess að ítök glæpahópa séu sterk í bænum Pasto í Narino-héraði sem kærandi kveður vera heimabæ sinn. Að mati kærunefndar eru aðstæður á þessu svæði slíkar að ekki verður talið að hún geti snúið aftur þangað án þess að eiga á hættu áreiti af hálfu glæpahópa sem fellur undir 37. gr. laga um útlendinga, og að yfirvöld í Kólumbíu geti ekki veitt kæranda vernd gegn þeim ofsóknum, sbr. c-liður 4. mgr. 38. gr. sömu laga, á því svæði.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Í 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að ef útlendingur getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði getur verið að 1. og 2. mgr. eigi ekki við í þeim tilvikum og hann teljist ekki flóttamaður. Niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kærenda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, m.a. í heimahéraði kæranda, er það mat kærunefndar að gögnin sýni fram á að á öruggari svæðum, s.s. í borgunum Bogotá, Medellín og Cali, geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Nokkrir alþjóðlegir flugvellir eru utan átakasvæða í landinu. Kærandi er stödd hér á landi, er handhafi kólumbísks vegabréfs og ekki verður annað séð en að öruggari svæði í Kólumbíu séu henni aðgengileg á öruggan og löglegan hátt. Þá verður ekki talið að flutningur á önnur svæði en heimasvæði kæranda skapi henni hættu á að hún verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða.

Kærunefnd telur að þegar litið er til möguleikans á innri flutningi megi m.a. líta til umfjöllunar Flóttamannastofnunar um innri flutning í Kólumbíu, þar sem rakið er að líta verði til þess hversu miklar líkur séu á að viðkomandi verði eltur uppi af glæpahóp á þann stað sem hann flytur til innanlands. Eins og fram hefur komið kveður kærandi að ofsóknir glæpahópsins hafi beinst að henni og fjölskyldu hennar vegna starfa þeirra í tengslum við lánastarfsemi í Pasto í Narino héraði. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar um aðstæður í heimaríki kæranda tíðkist slíkar þvingunaraðgerðir sem kærandi hefur lýst í einhverjum mæli í Kólumbíu ásamt annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Eins og fram hefur komið fellst kærunefnd á að litla vernd sé að fá í heimahéraði kæranda, Narino, þar sem ítök hinna ýmsu glæpahópa eru sterk og þá gæti töluverðrar spillingar innan lögreglu í héraðinu og öryggi borgara sé því ekki nægilega tryggt. Kærunefnd telur að þrátt fyrir ofangreint bendi gögn til þess að átök í Kólumbíu séu að mestu staðbundin og að mati kærunefndar er ekkert í gögnum málsins sem gefur til kynna að glæpahópar kynnu að leita kæranda uppi snúi hún aftur til landsins og setjist að á öðrum stað í heimaríki. Þá bendi gögn til þess að verði hún fyrir áreiti af hálfu meðlima glæpahópa annars staðar en á þeim svæðum sem ítök þeirra séu mikil geti hún leitað til lögreglu eftir aðstoð og vernd. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að flutningur innanlands komi til álita í máli kæranda.

Að uppfylltu fyrra skilyrði við mat á möguleika á flutningi innanlands verður því næst að taka afstöðu til þess hvort unnt sé, með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og aðstæðum í heimaríki hennar, að ætlast með sanngirni til þess að kærandi setjist að á öðru svæði í Kólumbíu. Kærandi er með háskólamenntun og við ágæta heilsu. Kærandi aðhyllist kaþólska trú líkt og meirihluti kólumbískra ríkisborgara. Allir landsmenn hafa aðgang að almannatrygginga- og velferðarkerfi auk þess sem íbúum landsins er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu. Kærunefnd telur líkur standa til þess að hún hafi atvinnutækifæri í heimaríki og ætti ekki að eiga í erfiðleikum með að aðlagast á nýjum stað innan landsins. Kærandi eigi jafnframt eiginmann og tvo syni sem búi í Pasto. Kærandi kvað fjölskyldu sína hafa verið í felum síðan í mars 2019. Að mati kærunefndar bendir ekkert til annars en að fjölskylda kæranda geti flust til hennar og búið með henni á nýjum stað.

Er það mat kærunefndar að hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í Kólumbíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu uppfyllt og telst kærandi því ekki flóttamaður. Samkvæmt framansögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um þetta atriði staðfest. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi möguleika á flutningi innanlands á hún ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 4. mgr. 37. gr. og 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Langvarandi ófriðarástand hafi ríkt í heimaríki kæranda og heldur kærandi því fram að yfirvöld í Kólumbíu geti ekki veitt henni þá vernd sem hún þarfnist. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir og af fyrrgreindri niðurstöðu um möguleika kæranda á innri flutningi þá er ljóst að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá geti kærandi sest að á öðru svæði í heimaríki sem talið sé öruggt. Þá geti yfirvöld jafnframt veitt kæranda þar viðeigandi vernd.

Fjallað hefur verið um aðstæður kæranda í heimaríki en hún kvaðst jafnframt í viðtali hjá Útlendingastofnun vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún teljist hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemdir við málsmeðferð og úrlausn Útlendingastofnunar í máli hennar. Meðal annars hafi kærandi gert athugasemd við fullyrðingu stofnunarinnar að átökin í Kólumbíu séu almennt staðbundin. Þá hafi stofnunin ekki tilgreint það svæði eða þá borg sem stofnunin telji að kærandi geti flutt til og búið í við öryggi, auk þess sem skort hafi á rökstuðning við umfjöllun um mat á innri flutningi í máli hennar.

Kærunefnd bendir af þessu tilefni á að leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa ekki lagagildi hér á landi og eru eins og fram kemur í lögskýringargögnum að baki 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga einungis til hliðsjónar við mat samkvæmt ákvæðinu. Þá kemur fram í athugasemdunum að við matið skuli horfa til þess hvort einstaklingur geti fengið vernd i öðrum hluta heimalands hans en hann flúði frá og hvort hann geti sest að á svæði sem talið sé öruggt. Eins og fram hefur komið er það mat kærunefndar að kærandi geti flust til svæða í heimaríki utan heimahéraðs síns.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau öll gögn málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um aðstæður utan heimahéraðs kærenda í heimaríki þeirra við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 15. september 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hefur hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hún yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa henni. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Kærandi skal yfirgefa landið innan 15 daga frá birtingu úrskurðar þessa.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

               

Árni Helgason                                                                    Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum