Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2018 Innviðaráðuneytið

Umferðaröryggi er forgangsmál - grein í Fréttablaðinu 12. febrúar

Umferðaröryggi á að vera forgangsmál. Banaslys og alvarleg slys í umferðinni eru alltof mörg. Við þurfum að spyrna við fæti. Þar á ég bæði við stjórnvöld og okkur vegfarendur.

Á síðasta ári urðu hvorki banaslys í flugi né siglingum og ekki heldur árið áður. Við þurfum að stefna að sama árangri í umferðinni. Undanfarin ár hafa 9 til 18 manns látist í umferðinni á ári hverju með undantekningu árið 2014 þegar fjórir létust. Á þessu ári hafa þegar þrír látist af völdum umferðarslysa. Milli 130 og 210 manns hafa slasast alvarlega á ári hverju síðustu árin.

Margt gott hefur verið gert á liðnum árum til að bæta öryggi vegfaranda en betur má ef duga skal. Í stjórnarviðræðum og sáttmála ríkisstjórnarinnar var samkomulag um að við forgangsröðun í vegamálum verði sérstaklega litið til ólíkrar stöðu landsvæða, ferðaþjónustu og öryggissjónarmiða. Í samgönguáætlun sem er nú er unnið að verður sérstakur kafli um umferðaröryggi með það markmiði að fækka slysum.

Endurbætur og uppbygging vega

Eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum er brýnt að hraða uppbyggingu í vegamálum og öðrum samgönguinnviðum bæði nýframkvæmdum og viðhaldi. Síaukinn umferðarþungi kallar á nýbyggingu og endurnýjun vega, meira viðhald og auknar öryggisaðgerðir víða á vegum landsins. Vegakerfið annar varla umferðarálaginu í dag enda er það að miklu leyti byggt upp þegar bílar voru færri, vöruflutningar minni og hraðinn lægri. Uppbygging samgöngumannvirkja er stór þáttur í því að bæta umferðaröryggi en sú uppbygging þarf að vera mun hraðari en verið hefur. Undanfarin ár hafa framkvæmdir verið litlar, umferð aukist mikið og því bíða mikilvæg stórverkefni. Til að ná tilætluðum árangri verða sett metnaðarfull og skilvirk markmið um öryggi samgangna og skilvirkar öryggisáætlanir fyrir samgöngur á landi.

Öryggisaðgerðir

Meðal öryggisaðgerða á þjóðvegum eru að bæta merkingar enn frekar, til dæmis þar sem vegir liggja að einbreiðum brúm. Auk þess er markvisst unnið að því að fækka einbreiðum brúm. Þá þarf að eyða svartblettum, þ.e. ráðast í aðgerðir á svæðum þar sem slys hafa verið tíð. Dæmi um það er að lengja vegrið, laga vegfláa og bæta úr þar sem umhverfi vega getur verið skeinuhætt fólki ef t.d. bíll lendir útaf. Þá er brýnt að fjölga stöðum meðfram vegum þar sem ferðamenn geta stöðvað til að njóta landsins án þess að valda sjálfum sér eða öðrum hættu.

Aukin vetrarþjónusta

Vetrarþjónusta á þjóðvegakerfinu var aukin í byrjun árs. Góðar hálkuvarnir auka öryggi og þörfin var brýn víða þar sem umferð hefur aukist með tilkomu aukinna ferðalaga yfir veturinn. Mokstursdögum var fjölgað á ákveðnum leiðum á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi og hálkuvarnir hafa nú verið auknar.

Umferðarfræðslan

Umferðarfræðsla er ekki síst mikilvægur þáttur í umferðaröryggi. Það hefur sýnt sig að brýnt er að fræða erlenda ökumenn um íslenskar aðstæður og er þá til dæmis átt við malarvegina og þau óvæntu veðrabrigði sem hér geta orðið ekki síst að vetri sem gjörbreyta á andartaki öllum akstursskilyrðum. En við heimamenn þurfum einnig áminningar enda skilar áróður og fræðsla sér í meiri aga í umferðinni. Skólarnir eru einnig mikilvægur vettvangur fyrir umferðarfræðslu.

Hærri sektir og aukið eftirlit

Að lokum er aukinn umferðarhraði áhyggjuefni. Hraðaeftirlit skiptir sköpum og hækkun sekta við umferðarlagabrotum sem nú er í farvatninu er liður í því að fyrirbyggja umferðarslys. Við eigum að vera meðal bestu þjóða hvað varðar fjölda látinna í umferð. Eftirlit og sektir ef við brjótum af okkur veita aðhald og eru til þess fallin að gera okkur að betri vegfarendum. Það er kjarni málsins þegar umferðaröryggi er annars vegar.

Forgangsröðum með agaðri umferð – það skilar líka árangri  í umferðaröryggi.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Greinin birtist í Fréttablaðinu 12. febrúar 2017.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum