Hoppa yfir valmynd
29. september 2017 Innviðaráðuneytið

Atvinnuleyfum leigubifreiða á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um 20

Breyting á reglugerð um leigubifreiðar tók gildi við birtingu í Stjórnartíðindum í gær og snýst hún um að fjölga atvinnuleyfum leigubifreiða um 20 á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi atvinnuleyfa á þessu svæði hefur verið óbreyttur frá 2003. 

Endurskoðun hefur staðið yfir í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu á fjölda atvinnuleyfa og hafa borist ábendingar bæði frá leigubifreiðarstjórum og leigubifreiðastöðvum. Frá árinu 2002 hefur íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um liðlega 23% auk þess sem erlendum ferðamönnum hefur fjölgað á þessum tíma.

Drög að breytingu á reglugerðinni voru kynnt í júlí og var þar gert ráð fyrir 100 leyfa fjölgun, 90 á svæði 1, sem er höfuðborgarsvæðið, og 10 á öðrum svæðum. Nokkrar umsagnir bárust bæði með og á móti svo mikilli fjölgun. Komu fram sjónarmið um að iðulega væri löng bið eftir þjónustu leigubifreiða á höfuðborgarsvæðinu og því væri brýnt að fjölga leyfum en aðrir töldu nægilega marga sinna leiguakstri og að fjölgun ferðamanna hefði ekki fært leigubifreiðastöðvum aukin verkefni svo nokkru næmi. Í kjölfar umsagna áttu sérfræðingar ráðuneytisins fundi með hagsmunaaðilum, m.a. fulltrúa Frama, og ráðherra hitti fulltrúa leigubifreiðarstjóra frá öllum stöðvum á svæði 1.

Niðurstaða ráðuneytisins varð sú að ekki væru forsendur til að fjölga atvinnuleyfum um 90 á einu bretti en ákveðið að fjölga leyfum um 20 á höfuðborgarsvæðinu og verða þau því alls 580.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum